Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.1959, Síða 9
LESb JK MORGUNBLAÐSINS
641
Einar Þ. Cuðjohnsen;
F jal Iganga
í Bandaríkjum
Rainer séður frá
Paradise Inn.
HÆSTA fjall Washingtonfylkis
Bandaríkjanna og þriðja hæsta
fjall hinna 48 fylka heitir Mt. Rain-
ier. Hæð fjallsins er 14410 fet eða
4392 metra yfir sjó, rúmlega tvisvar
sinnum hæð Öræfajökuls. Þetta er
einstakur tindur, sem rís um 11
þúsund fet yfir nágrenni sitt, og
tilheyrir fjallgarði þeim, sem
Cascade-fjöll nefnast. Þau eru göm-
ul fellingafjöll á Kyrrahafsströnd-
inn og aðalefni þeirra granít. Víðs
vegar á fjallgarðinum eða í nánd
við hann hefir svo gosið á seinni
tímum, og hafa hlaðist þar upp há
fjöll úr basalti og ýmsum lausum
gosefnum.
Mt. Rainier er eitt þessara fjalla
og hið mesta þeirra, eins og áður
er sagt. Aðrir tindar svipaðs eðlis
eru Mt. Baker (10750 fet), Mt. St.
Helens (9671 fet), Mt. Adams
(12307 fet), Mt. Hood (11245 fet)
o. fl., allir tilheyrandi Cascade-
fjöllunum.
í hlíðum Rainiers eru 12 meiri
háttar skriðjöklar auk margra jök-
ulfanna, og hafa sumir þeirra graf-
ið djúpa dali í hlíðar fjallsins. Ekki
hafa nein eldgos orðið úr fjallinu
síðan Evrópumenn komu á þessar
slóðir fyrir nærri 200 árum, en ein-
anna, sem upp af þeim koma, al-
veg eins og litningar hjá mönnum
ráða augnalit barnanna. En við
geislanir breytist hinn eðlilegi lit-
ur stráanna, og verður nú skorið
úr því hvort svo fer um þau strá,
er upp af þessum geimferðarkorn-
um koma.
hver hreyfing mun þó hafa átt sér
stað öðru hverju á síðustu öld. Það
er álit jarðfræðinga, að áður hafi
Mt. Rainier verið um 16000 fet, og
hafi þá verið reglulega lagað keilu-
Gibraltar-kletturiim og Camp Muir.
eldfjall líkt og Fujiyama í Japan,
en hafi svo sprengt af sér ein 2000
fet í ofsalegum gosum.
Árið 1899 var fjallið og næsta ná-
grenni þess friðað og gert að þjóð-
garði, sem þykir vera einn fegursti
þjóðgarður Bandaríkjanna.
Brezki sægarpurinn og landkönn
uðurinn George Vancouver kann-
aði þessar slóðir árið 1792 og skírði
fjallið Mt. Rainier til heiðurs vini
sínum Peter Rainier flotaforingja,
enda þótt sá maður hti fjallið aldr-
ei augum.
Ýmsir hafa verið óánægðir með
þetta nafn, og hafa viljað taka aftur
upp eitthvert hinna mörgu Indíána-
nafna t. d. Tacoma, Tahoma eða
Tacob, en þessi nöfn þýða „snjórinn
mikli“ eða eitthvað í þá áttina.
Indíánarnir tilbáðu fjallið og
trúðu því, að guðirnir hefðu þar að-
setur. Fóru þeir tíðum pílagríms-
ferðir þangað, en hættu sér þó aldr-
ei of hátt upp. Þegar þeir Stevens