Lesbók Morgunblaðsins - 07.02.1960, Page 16
68
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
BRIDGE
* D 9 3
¥ Á G 8 5 2
♦ 9 7 3
«98
A G 8 2
¥ 9 6
♦ A 6 5
* 10 7 6 4 3
« A 10 6
V 10 7
♦ K D 10 4
* A K G 2
S gaf og sagnir voru þessar:
s V N A
1 ♦ pass 1 ¥ pass
2 * pass 2 ♦ pass
2 gr. pass pass pass 3 gr. pass
V sló út láglaufi, A drap með drottn-
ingu og S með kóng. Eins og sjá má er
ekki auðvelt að fá útspil úr borði, svo
að S tók þá ákvörðun að spila TK.
Hann var gefinn. Svo kom TD, en V
drap hana með ás og sló út seinasta
tigli sínum, en þann slag fekk A. Nú
kom lauf og þann slag fekk S. Hann
tók þá slagi á T10 og LÁ, og nú voru
þessi spil eftir:
* D 9 3
V A G 8
♦ —
* —
* G 8 2
¥96
♦ —
* 10
A Á 10 6
¥ 10 7
♦ —
* 2
S sló nú út H10, gaf í borði og A
fekk slaginn. Hann kaus nú að slá út
lágspaða, S lét S6 og V drap með S8;
það var rétt spilað, því að hefði hann
látið gosann, þá var A kominn í hom-
klofa með kónginn. ’S drap með S9, sló
út lágspaða, drap með ás, og sló enn
út spaða, en þann slag fekk A á kóng.
Og nú varð hann að slá út hjarta og
þannig fekk A báða slagina. — Það
þótti laglega af sér vikið að vinna
þetta spil.
A K 7 5 4
¥ K D 4 3
♦ G 8 2
* D 5
MILDUR VETUR — í Skarðsárbók segir frá svo mildum vetri, að menn
gengu berfættir til tíða á jólum, en húsuðu og lögðu garð á þorra. Þessi
vetur er álika mildur. Myndin sýnir hvernig var umhorfs í grend við Reykja-
vík á þorranum. Meiri snjór en þar sést, hefir ekki komið í vetur, og jörð
er klakalaus. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
GEIMGEISLAR
Vel mætti kalla hið sýnilega ljós frá
fastastjörnunum geimgeisla, og einnig
mætti nota það heiti um „útvarps-
bylgjur" þær, sem berast til jarðar ut-
an úr himingeimnum. Orð þetta er þó
alls ekki notað í þeim merkingum,
heldur sem heiti á annari, miklu
„harðari“ geislun. Geimgeislar eru í
fyrsta lagi atómkjarnar, sem berast
um geiminn með svo að segja ljós-
hraða (frumgeislum), og í öðru lagi
ýmsar aðrar frumagnir, svo sem
gamma- og röntgengeislar, sem verða
til í lofthjúpi jarðar við árekstra frum-
geislanna. Frumgeislamir, sem berast
að jörðu jafnt úr öllum áttum, eru
naktir atómkjarnar (þ. e. án elektrónu-
hjúps), hlaðnir jákvæðu rafmagni.
Þar ber mest á vetnis- og því næst
helíumkjömum, en auk þeirra eru þar
kjarnar þyngri frumefna allt upp í 26
atómnúmer (járn), eða jafnvel hið 27.
(Almanak)
PÁLSMESSA
Svo segir í gömlum veðurspám, að
ef bjartviðri sé á Pálsmessn (£S. j*a.)
þá muni verða mjög gott árferði, en
ef þá sé dimmviðri þá boði það harð-
indi og fjárfelli. — Að þessu sinni var
veðri svo farið í Reykjavík þennan
dag, að fram til hádegis var sólskin,
en snjómugga og dimmt veður eftir
hádegi. — Ef menn fylgjast vel með
tíðarfari fram á sumar, má bæta við
spána hvað slíkt veðurlag á Pálsmessu
boðar.
HREPPSTJÓRAR í STRÍÐI
VIÐ BISKUP
Fyrir 200 árum (1760) stefndu hrepp-
stjórar í Biskupstungum biskupinum,
herra Finni, fyrir afdrátt við fátæka,
sem var: hann vildi ekki taka sveitar-
ómaga eftir þarvenju, og hafi svo dóm-
ur fallið, að hann ómagana taka skyldi
og sektast þar fyrir utan. Þennan dóm
vildi hann ekki halda, varð þetta svo
i jögun; hann stefndi upp dóminum
og lét ekki úti (Grímsstaðaannáll).
LEIÐRÉTTINGAR
í seinustu Lesbók varð sú villa i
skrá um gervitunglin, að hausavíxl
urðu á minnstu og mestu hæð spor-
brautar þeirra. — Þá stóð E. A. und-
ir greininni Gæruskinnið, en átti að
ver* S. &.