Lesbók Morgunblaðsins - 02.10.1960, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 02.10.1960, Page 8
484 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Solskinsdagar á Búðum II. Kirkjan á Búðum HRAUNHÖFN var vestasti bær í Staðarsveit og var þangað um hálf þingmannaleið frá Staðarstað. Þetta var langur og erfiður kirkju- vegur og þess vegna var snemma á öldum reist bænhús í Hraun- höfn, eða hálfkirkja, en efasamt er talið að það hafi verið graftar- <irkja. í þessari kirkju messaði presturinn á Staðarstað endrum og 3innum og er sennilegt að hún hafi jpphaflega verið fyrir Hraunhöfn >g Bakka og ef til vill Kálfárvelli tíka, og síðan, er býlum fjölgaði barna, hafi þau einnig átt þangað ■iirkjusókn. Þegar Bent Lárusson kom að Sraunhöfn var þarna torfkirkja njög hrörleg og bláfátæk. En er íann fluttist að Búðum og reisti aar Bentsbæ, fekk hann leyfi Jóns oiskups Vídalíns til þess að taka íiður kirkjuna í Hraunhöfn og reisa aðra á Búðum, og skyldi það /era graftarkirkja og guðsþjónust- jr fara þar fram reglulega. Veitti nskup hinni nýu kirkju þá al- tirkjurétt. Nú kom að því að kirkjunni >kyldi valinn staður, en þá kom ipp úr kafinu, að hvergi í Búða- andi var jarðvegur nógu djúpur ;il þess að þar væri hægt að taka gröf. Hér var alls staðar hraun jndir og grunnt á því. Virtist nú oku fyrir það skotið, að kirkja jæti verið þarna. Urðu Bent þetta 'nikil vonbrigði og öllum Búða- nönnum, sem höfðu hlakkað til að íingast nýa kirkju. Til er munnmælasaga um það avernig þetta vandræðamál leyst- ist og er hún á þessa leið: Þegar í öll skjól virtist fokið, var leitað ráða gamallar og fram- sýnnar konu þar á staðnum. Hún íhugaði málið um stund, en lagði síðan svo fyrir, að bundið skyldi fyrir augun á manni og hann leidd- ur á stað sem hún til tók. Þar skyldi honum snúið í hring unz hann væri orðinn algjörlega átta- villtur. Þá skyldi honum fenginn örvabogi og þrjár örvar, og ein þeirra merkt krossi. Þessum örvum skyldi maðurinn svo skjóta af handahófi, og þar sem merkta örin kæmi niður, þar ætti kirkjan og kirkjugarðurinn að vera. Nú var farið að ráðum kerlingar, en lítt fannst mönnum úr rætast er það kom í ljós, að merkta örin hafði leitað staðar í víðri hraun- hvos, þar sem ekki var neinn jarð- vegur. Þótti mönnum nú sem gömlu konunni hefði brugðizt bogalistin allhastarlega. En hún var gallhörð á því að þarna hefði forsjónin valið kirkjunni og kirkju- garðinum stað, og væri nú ekki um annað að gera en fylla hraunhvos- ina af sandi. Það var svo gert og fekkst þá þarna nógu djúpur graf- reitur. Og svo segja menn, sem tek- ið hafa grafir í Búðakirkjugarði, að þar sé eintómur sjávarsandur undir. Sýnir það að sögnin hefir við rök að styðjast, en sennilega hefir það verið Bent sjálfur sem fann upp á því, að láta vinnumenn sína og Búðamenn fylla hvosina af sandi. Hefir þetta eflaust verið geisimikið verk, því að kirkjugarð- urinn er nokkuð stór. En þegar

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.