Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1961, Síða 44

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1961, Síða 44
524 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Linda man um lind og lindarkjóla skreytir, Indíana yndisleg Indíasólin heitir. Símoni Bjarnasyni er tamt að líkja fegurðargyðjunum við dalablómin, enda kenndi hann sjálfan sig við dali: Sprakk í sundur bjargið blátt, brunnin ósageislum fríðum gekk út hrund þar bauða brátt björt sem rós í dalahlíðum. Hallgrímur Pétursson metur fróm- leik og dyggð ekki síðri öðrum kost- um; Drottning hans var dyggðarblóm, dýrstum hlaðin mektum, hýr í lyndi, fögur og fróm, fædd af kóngaslektum. Þá kemnr hér ein hjá Sigurði Bjarnasyni, með skæra liti: Starfa Fenju lóðin Ijós litinn hafði nýta, eins og menju rauðleit rós rituð á pappír hvíta. Páll Bjarnason finnur eina fríða, þótt ekki sé hún aldurshá: Háradýrust hindin trú, nörundskírust víst var sú, ágæt Týrus auðarbrú ara hýrust tólf og þrjú. Vigfús Jónsson kveður yfirlætis- laust, en fer þó fullvel: Menntun búin dyggust drós, dável rjóð í kinnum, dyggða kransað hennar hrós hafði þjóð í minnum. Sigurður Bjarnason kunni að kveða vel að kvenlegri fegurð og yndis- þokka: Prýði fáð var frúar sál — fríðum skráð af glósum — íðilfáðu brúnabál blíðu stráðu ljósum. Sigurður Breiðfjörð kunni að segja írá hreinum litum: Um hvíta vanga — eg letra ljóð — líkast snjónum hreinum, þar má fanga rósin rjóð rúm á kinabeinum. Við margt má líkja kvenlegri feg- urð og snyrtimennsku, eins og Gunn- ar Ólafsson kveður: Fögur og rjóð var flæðarglóð, fáguð upp og niður, en sumstaðar sú blómann bar björt sem svanafiður. Víst mega það teljast góðir kven- kostir, sem Guðmundur Bergþórsson telur upp í þessari vísu: Vænleik ber yfir vífin flest, vitinu prýdd þó allra mest, kann sú drósin kvenmannslyst kurteislegust silkirist. Lýður Jónsson kveður svo: Drottning þar hjá skata skein, skemmtunar með safni, sólar vara sólin hrein Sólbjört var að nafni. Jón Þorsteinsson hefir auga á gull- inu: Þó bar jómfrú þessi langt af öllum, hennar ásýnd, skrúði og skart skein sem unnarljósið bjart. Þorsteinn Jónsson þekkir eina sólu fegri: Svo var fögur sunnan bjarta sólar elfu, að auka þótti hún að hálfu hnita skinið Vífilsálfu. Magnús Magnússon leit ekki sízt á hárprýði: Fástína hét fylkis jóð, fríðari engin lands um slóð fannst en hún, en hárið lá hreint sem gullið fótum á. Gisli Sigurðsson metur yndisþokka og ástarbríma: Niður settist nipur rétt og fögur laukastrindi ljúf mér hjá, Ijómaái yndiú sólia þá. Magnús Magnússon metur dyggðir ekki síður öðru: Þá er Græðisbrennu brík beztu hlaðin dyggðum, engin fæðist önnur slík öllum heims í byggðum. Vísur þær, sem hér eru tíndar saman, eru frá öllum öldum rímn- anna, allt frá 14. fram á 20. öld. Má þar sjá að keppst hefir skáld við skáld, öld af öld, og er vandséð hver drýgstur verður. En öllum metum hnekkir Sigurður Breiðfjörð með yfirlætislausum fjórum vísuorðum: Ef eg segja ætti frá allri meyar prýði, bókin eigi entist þá í það reginsmíði. Engin þessara vísna er tekin úr mansöng, en þar er mikla fjölbreytni að finna. Almáttugur guð allra stétta, yfirbjóðandi engla og þjóða, ei þurfandi stað né stundir staði haldandi í kærleiksvaldi, senn verandi úti og inni, uppi og niðri og þar í miðju, lof sé þér um aldur og ævi einig sönn í þrennum greinum. Þetta er upphafið að kvæði Eysteins munks Ásgrímssonar, því kvæði, „er öll skáld vildu kveðið hafa“. Alls er kvæðið 99 vísur. Sagt er að Lilja hafi kraft til að stökkva burt óhreinum öndum, og er það til marks um það, að gömul kerl- ing var einhvern tíma á bæ, sem kunni Lilju, og kvað hana í hverju rökkri. En fólkið á bænum gerði gabb að þessu, og lærði ekkert af kvæðinu. Þegar kerlingin var dáin, gerðist hajög reimt á bænum; var þá stundum sagt með dimmri rödd: „Kveðið þið nú Lilju.“ En það gat enginn, því að eng- inn kunni, og lagðist bærinn svo í eyði. (Þjóðs. i- Á.J

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.