Lesbók Morgunblaðsins - 05.08.1962, Side 13
'
'
, ;* T*‘
»• * . :•>
'*• oTOr^r* '
.
>-Y*TJí-t“r'ri'*t''TT^*t^rrrT''rTTS-tvrrt'H^
LEITAD AÐ FYRSTU
ÞúAmdir Ný-Sjálendinga fóru sína
fyrstu flugferS í þessum vélum. Þaer
gátu borið tvo farþega í framsætinu,
en flugmaðurinn sat fyrir aftan.
Bolt flaug B & W vélunum til 1924.
Hann er sennilega eini flugmaður
heimsins, sem hefur verið bjargað með
vél sinni af járnbrautarlest, og í annað
sinn af gufuskipi.
Um 1920 var hann eitt sinn að
lenda á Wairo-ánni við Dargaville. Þó
rakst sjóflugvélin á drumb og tók að
sökkva. Sem betur fór var snarráður
lestarstjóri staddur með lest á stöðinni
í Dargaville. Brautin lá í fjörunni á
kafla, og lestarstjórinn ók eimvagnin-
um aftur á bak í flýti niður í fjöruna.
Þar kastaði hann kaðli til flugvélarinn-
ar og dró hana í land.
Bolt var bjargað eitt sinn af gufu-
skipi, þegar hann varð að nauðlenda
sökum vélarbilunar á hafi úti. Svo vel
vildi til, að strandgæzluskip sigldi
fram á hann og dró vélina til hafnar.
B & W vélarnar voru enn í góðu á-
standi, þegar flugskólinn hætti árið 1924.
Ný-sjálenzka stjórnin fékk flugvélarnar
og flughöfnina og afnenti hernum
hvorttveggja 1925. Ár.um saman spurði
enginn um, hvað orðið hefði aí B & W
vélunum. Þegar Bolt hóf leit að þeim
fyrir nokkrum árurn, voru vélarnar
horfnar, og enginn vissi hvað af þeim
hafði orðið.
OEING-VÉLiNN!
P oeingflugvélaverksmiðjurnar eru
einhverjar hinar stærstu í heimi. Þær
framleiða nú stærstu farþegaþotur og
hraðfleygustu herþotur, þyrilvængjur
og fjarstýrð flugskeyti. Enda þótt
menn hugsi þar mikið um framtíðina,
hafa þeir líka tima til að renna hug-
anum til fortíðarinnar — og um þessar
mundir eru þeir að hefja mikla leit að
fyrstu Boeing-flugvélinni. Vonir eru til,
að hún finnist í Nýja-Sjálandi.
Fjaran í Mission Bay á Nýja-Sjá-
landi hefur nú ef til vill gefið svar við
þessari 35 ára görálu gátu; hvað orðið
hefur af fyrstu flugvélinni, sem Boeing
verksmiðjurnar smiðuðu.
Frásögn af hugsanlegum afdrifum
þessarar frægu sjóflugvélar, sem hald-
ið var saman með stöngum og vírum,
birtist í ný-sjálenzlca dagblaðinu Auck-
land Star.
George Bolt, velþelcktur brautryðj-
andi flugs í Nýja-Sjálandi og fyrrver-
andi yfirverkfi-æðingur flugfélagsins
Tasman Empire Airways, stjórnaði leit-
inni að þessari gömlu flugvél.
í rauninni var hér um að ræða tvær
flugvélar, sem voru nákvæmlega eins.
Þær voru smíðaðar árið 1916 af W. E.
Boeing og Conrad Westei-velt í Seattle
í Washington-ríki, og voru fyrirrennar-
ar 5,750 flugvéla og eldflauga, sem
Boeing hefur smíðað síðan. Þessar vél-
ar hlutu heitið B & W.
B oeing notaði þessar sjóflugvélar
til sýninga í nokkra mánuði. Árið 1919
voru þær seldar Flugskóla Nýja-Sjá-
lands í Auckland. Bolt var só maður,
sem flaug vélunum í Nýja-Sjálandi.
Hann var þá flugmaður í skólanum.
Hann flaug annarri B & W vélinni
16. desember 1919 frá Auckland til
Dargaville með fyrsta flugpóstpoka á
Nýja-Sjálandi. Sama árið setti hann ný-
sjálenzkt hæðarmet í annarri vélinni,
6500 fet
^ mislegt benti til, að þær hefðu
verið látnar í geymslu í neðanjarðar-
göngum hersins undir North Head, í
grennd við Fort Cautley. Bolt fékk
leyfi til að leita í göngunum og vonaði
að finna vélarnar þar óskemmdar.
Þegar hér var komið sögu, kynntist
Bolt, George Salt, fyrrverandi stór-
skotaliða, sem hafði verið meðal ner-
manna, sem drógu nokkrar flugvélar
niður á ströndina í grennd við gamla
flugskólann, og brennt þær. Salt mundi
að nokkrar þessara véla höfðu verið
DH9-sjóflugvélar. Hann man ekki eftir
að hafa séð B & W sjóflugvélarnar.
Salt og Bolt leituðu í fjörunni um
háfjöru og fundu hluti, sem þeir töldu,
að gætu verið úr fyrstu Boeing-vél-
inni, eða tvíburasystur hennar. Þessir
hlutir voru sendir til Boeing i Seattle
til rannsóknar, og í ljós kom að þeir
voru ekki úr B & W vélunum.
Þess vegna halda þeir leitinni áfram
— í von um að enn liggi Bœing-vélin
einhvers staðar lítt skemmd.
ST ALÍN
Frh. af bls. 1
köllum mannlegt, eftir því, frá hvaða
sjónarhóli það er metið.
Svo er og um Stalín.
•G é litið af sjónarhóli mannúðar og
frelsis, þá hefur mannkynið ekki séð
jafn dýrslegan, hrottalegan og blygðun-
arlausan harðstjóra og Stalín. Sem
glæpamaður var hann vísindalegur í
starfi, altækur og alger. Hann var einn
þessara sjaldgæfu og hræðilegu kreddu-
trúarmanna, sem eru færir um að út-
rýma níu tíundu hlutum mannkyns, til
þess að gera tíunda hlutann, sem eftir
Verður, „hamingj usaman".
Ef við viljum ákvarða, hvert gildi
Staiín hafði í aögu kommúnismans,
veröum við engu að síður í bili að telja
ttiann langmikilvægustu persónuna næst
á eftir Lenín í þeirri sögu. í grundvallar
atriðum þróaði hann ekki hugmyndir
kommúnismans, en hann barðist fyrir
þeim í fylkingarbrjósti og gerði þær að
raunveruleika í þjóðfélagi sinu og ríki.
Hann bjó ekki til neitt fyrirmyndarþjóð-
félag — enda er það ekki hægt vegna
eðli mannsins og mannlegs samfélags, en
hann breytti Rússlandi í iðnaðarveldi og
heimsveldi, sem sækir æ ákveðnara og
óbilgjarnara til heimsyfirráða.
Sé miðað við árangur og pólitíska
skarpskyggni, kemst tæplega nokkur
stjórnmálamaður á samtíð Stalíns fram
úr honum.
Ég er vitaskuld langt frá þvf að álíta,
að góður árangur í pólitískum átökum sé
eina mælistikan á mannlegt gildi. Enn
síður vil ég jafna stjórnmálum saman
við siðleysi, þótt ég neiti því ekki, að
einmitt vegna þess að stjórnmál fela
í sér baráttu um líf eða dauða sérstakra
hópmynda í mannlegu samfélagi, hætt-
ir þeim til að einkennast af van-
rækslu venjulegs siðferðis. í mínum
augum eru þeir miklir stjórnmálamenn,
sem geta sameinað hugsjónir og raun-
veruleika; geta staðfastlega stefnt að
markmiðum sínum, um leið og þeir halda
fast við grundvallaratriði almenns sið-
gæðis.
egar allt kemur til alls, var
Stalín ófreskja, scm í framkvæmd átti
engan mælikvarða nema árangurinn,
þólt hann aðhylltist óhlutlægar, algildar
og í grundvallarati iðum sælulandskennd
ar og íjarstæðar hugmyndir. Þetta þýddi:
ofbeldi og andlega og líkamlega útrým-
ingu.
Samt sem áður skulum við ekki vera
óréttlátt gagnvart Stalín. Það, sem
Stalín vildi gera, og jafnvel það,
sem honum tókst að gera, var
ekki hægt að framkvæma á nokkurn
annan hátt. Öflin, sem hrundu Stalín
áfram, og hann leiddi aftur, með hinum
algeru og skilyrðislausu hugsjónum
þeirra, gátu ekki haft annars konar leið-
toga en hann, þegar tekið er tillit til
ástandsins í Rússlandi og annars staðar
í lieiminum, né heldur hefði verið unnt
að þjóna þessum öflum með öðrum að-
ferðum en þeim, sem Stalín notaði. Hann,
sem var skapari iokaðs þjóðfélagskerf-
is, var um leið verkfæri þess og — við
breyttar kringumstæður og allt of seint
— fórnardýr þess. Þótt enginn hafi kom-
izt frnm úr Stalín í ofbeldi og glæpum,
var hann engu að síður leiðtogi og skipu-
leggjari ákveðins þjóðfélagskerfis. í dag
er gengi hans mjög lógt. Hann er fyrir-
litinn, hæddur og settur í gapastokk fyrir
„villur“ sínar, og með því ætla forystu-
menn sama þjóðfélagskerfis að afplána
misgerðir kerfisins og sjálfra sín.
Þótt afsetning og niðurlæging Stalíns
hafi verið framkvæmd með ómerkileg-
um leíksviðsetningarbrögðum, sýnir það
samt, að sannleikurinn leitar út um
síðir, jafnvel þó að það sé ekki hægt fyrr
en þeir hafa látið lífið, sem fyrir hann
börðust. Mannleg samvizka sættir sig
ekki við neitt, er óbilgjörn og óeyðan-
ieg.
Jafnvel nú, eftir hina svokölluðu
stalínisma-hreinsun, komumst við því
miður að sömu niðarstöðu og áður: Þeir
verða að berjast fyrir lífi sínu, er vilja
halda áfram að lifa í heimi, sem er
frábrugðinn þeim e. Stalín skóp, og enn
er í fullu fjöri og aldrei sterkari.
l
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 13
» 19. tölublað 1962