Lesbók Morgunblaðsins


Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1964, Qupperneq 24

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1964, Qupperneq 24
tlimið við' dræsurnar á dekki. höfurr, alltaf lent beint í hrotuna, svona um 20. maí. Ég er alls ekki viss um, að ég fari á Grænland að þessu sinni. Eg er alveg að drepast í bakinu og annarri löppinnL IÞað gerir bogrið í dræsunum. Og þó? Ef við stoppum heima í tvo eða þrjá daga, getur verið að mér skáni svo, að ég álpist með, enda varla annað fyrir mig að gera, því að í landi getur enginn brúkað hræ af blók, sem hefur verið aldarfjórðung á sjónum. Annars er ég alltaf að reyna að herða mig upp í það að hoppa af, en ég hef engan tíma til þess að leita að vinnu, þessar stundir, sem ég stoppa í landi, enda ekki vandalaust, þar sem vinnan má hvorki reyna á bakið né fæturna. Það er ósjaldan að ég yrki eitthvað á þessa leið, nú í seinni tíð: Axla ég bráðum allt mitt dót, ai-ka í land og kyssi snót. Skip ei framar skeyti um hót, skil við storma og öldurót! Við Snæfellsnes 12. maí. Við erum að toga hér við jökulinn, en fáum ekki í soðið, en af því að við höf- um svo knappan tíma, tekur það því ekki að fara að leita annars staðar. Ég ætla að láta þig sjá ljóð, sem ég orti við landsýn, nú um hádegið. Það er svona: — Sumar —• Sól og yndi, sjást af fjallsins tindi — þarna, létt í lyndi iömbin taka á sprett. Ör, af vörmum vindi, vefur alda klett. —<* Sumar —• Sól og blíða, signir gróður hlíða, bunuiækir líða léttir niður fjöll. — Þarna rekkar ríða, rösklega um völh — Sumar — Sól og gleði sjúku fróar geði, þegar bjart af beði bfessað iandið rís. — Ber mig bárusleði beint í Paradís! Inn Sundin 13. maí. Mér fannst ómögulegt, kæri frændi, að láta þig ekki sjá þetta ljóð, sem rím- aðist í hausnum á mér núna áðan, er ég sá borgina rísa úr sjó. Ég var staddur uppi í brú, og var svo sem ekki að hugsa neitt, frekar venju, en allt í einu fannst mér eins og eitthvað væri farið að 28. maL Nú eru iiðnir 10 dagar g'rtwilenzkir, frá því ég skrifaði síðast. Ég hef bók- staflega ekki haft tíma til þess. Þó er þetta allélegásta vor, aflalega, sem ég hef lifað hér á miðunum, og veðrið hef- uv líka alltaf verið hálfvitlaust. í gær- kvöldi eftir 8 daga á fiskiríi, vorum við búnir að fá eitthvað um 125 tonn af full- stöðnum saltfiski, svo að okkur vantar „aðeins“ rúm 300 tonn í barkinn. brengja að í höfðinu á mér. Fór ég þá tnn í kortaklefann og hleypti því á blað, og hér er það: Borgiiu Þarna borgin bjarta ber við fjallið svarta — Grsenurn gróðri ei skarta glæstu fjöilin hér. Þó við þeirra hjarta þjóðin unir sér. Þarna borgin bíður báts, er drjúgum skríður heim og himinn víður horfir oná jörð. — Því á þessar siíður þakkar sem ég gjörð. — —• Vektu afl í armi, ást og von í barmi, gieymdq grimmd og harmi, gleðstu eins og ég. — Finnst mér gömlum garmL grózkan yndisleg. 1G. maí. Við fórum frá Reykjavík í gærkvöldi k!. 23,00, og eigum að fylia barkinn af saltfiski við V-Grænland. Aflafréttir eru þö engar þar af miðunum enn, en við vonum hið bezta! 17. maí. Veðrið er gott og við stímum til Græn- lands, en þar er engan fisk að fá enn þá — en asafiskirí á okkar gamla Hala! 4. jum, Við hér á togurunum erum alltaf að hasla við að „bjarga iandinu“ en veðrið er alltaf að tefja okkur. Nú erum við búnir að „slóa“ í 23 tiima i norðan skafn- ingsroki, stórsjó og ísreki. Annars erum við búnir að fá það mikinn fisk núna síðustu dagana, að nú á 20. degi, erum við með ögn meiri afla en á sama tíma í fyrra. í fyrra vorum við heima á 3®. degi, og ef lygnir fljótlega, næ ég heim á fertugsafmælinu mínu, og víst væri það gaman. Við vorum í Færeyingahöfn á Sjó- mannadaginn. Þar haía Danir, Norð- menn og Færeyingar í sameiningu reist allglæsilegt fiskiþorp. Færeyingar og Norðmenn leggja þar á land fisk úr tog- að stofna Grænlandsáhugamannafélag. Stýrimaðurinn, sem er Eskimói frS Diskó, sagði reyndar, að vafalaust væri gaman að kynnast íslendingum, en hann kærði sig ekkert um að þeir hefðu neinn sérstakan áhuga á Grænlandi. „Baunarn ir væru nógu erfiðir nú, þótt þeir væm ekki alveg eins bölvaðir og áður.“ Á 29. degi, 13. júní. Tregt finnst manni tíminn líða, tekur á, að þurfa að bíða þessa að líta þokka hlíðar og þá ei síður blíða snót —■ þreytir augað grænlenzkt grjótl Eilífð hér á úfnum sænum,_____ óralangt frá túnum grænum, fossanið og fljóðum vænum, er finnast mörg í bænum heima —• lætur okkur gleði gleyma! Samt má enginn sitja og gráta sína heimsku, — en fylla báta urunum og línuveiðurunum, en Danirn- ir róa þaðan úr landi á trillubátum, og um 12 lesta mótorbátum, þó ekki fyrr en í júlí og ágúst, því að fyrr gengur fiskurinn ekki í firðina. Grænlendinga sjáum við þar fáa. Þó eru „hveitubátarnir", en svo eru skút- urnar kallaðar, sem sigla með lúðuna þaðan til Bandaríkjanna, mannaðar að mestu Eskimóum. Það eru skemmtilegir menn. Ég fer oft um borð í eina skútuna til að skrafa við þá. Eg hef þekkt iþá þar um borð í 5 ár. Alltaf sömu menn- irnir. Þeir hlógu mikið, þegar ég sagði þeim, að við á íslandi væram búnir Varpan liöluð inn. Myndin hér að ofan er af Færeyinga- höfn eins og hún var árið 1955, en síöan er búið að byggja þar töluvert af nýjum húsum. Fjöllin veit ég ekki, hvað heita, þótt ég hafi heyrt þau flest nefnd á græn lenzku, en þau standa okkar fjöllum ekkert að baki, hvað fegurð snertir, eina og þið sjáið. I september 1953 eða 1954 fór ég upp. í dal, sem liggur þarna til norðurs (til vinstri á myndinni). Þar fann ég mikið af berjum, krækiberjum og bláberjum. Fuglalif var þar líka f jölskrúðugt. Alls- konar þrestir, sem ég kann ekki aS nefna. Þarna í dalnum, voru að mínu viti, mjög góðir hagar fyrir sauðfé, ea jarðvegurinn grunnur, og þess vegna ckiki hentugt til ræktunar. í víkinni, sem ber ýfir möstrin lengst til hægri, rennur vatnsmikil á. Mér er sagt, að í henni sé ógrynnin öll af laxi, enda sér maður borðsigna báta koma þaðan, og halda til Godthaab, sem er í 70 mílna fjarlægð héðan. fiski — og síðan fljóta láta farið heim með dýran feng. Blóm í hlíð og blíðlynd táta, brosir þá við góðum dreng. Á 30. degi. Tíminn styttist alltaf ögn, enn er dagur liðinn. Drengina í djúpri þögn, dreymir lækjarniðinn. 24 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS- 88. tbl. 1964

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.