Lesbók Morgunblaðsins - 15.01.1967, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 15.01.1967, Síða 6
Lenin-bókasafnið í Moskvu. er í rauninni fyrsta opinbera bóka- safnið í Bandaríkjunum. A rcher M. Huntington safnaði einkum handritum og bókum varðandi Spán og lönd Spánar í Suður- og Mið- Ameríku. Hann ferðaðist mikið um á Spáni og skrifaði ferðabók, sem kom út 1898, „A Note Book in Northern Spain“. Auk þess stóð hann að út- gáfu sjaldgæfra spænskra rita. Hann safnaði öllum meiriháttar ritum varð- andi Spán og spænska sögu, bókmennt- Ir og listir, og er þetta safn einstakt í heiminum. Safn landfræðirita er það fyllsta sem menn þekkja. Hann gaf The Hispanic Society safn sitt, en hann var einn stofnenda þess félags. Henry Edwards Huntington var einn mesti safnari Bandaríkjanna. Hann varð- veitti safn sitt bæði New York og Pasa- dena í Kaliforníu. Hann átti mjög vandað handritasafn, 5400 vögguprent og 20 þúsund ensk rit í fyrstu útgáf- um, meðal þeirra mörg prentuð af Caxton, einnig fyrstu útgáfur að Shake- speare. í safni hans voru 55 þúsund rit varðandi Ameríku. Hann keypti fjölda einkasafna safni sínu til fyll- ingar. Handritasafn hans var mjög merkilegt, hann átti eiginhandritið að sjálfsævisögu Pranklins, töluvert af handritum Georges Washingtons og stærsta einkasafn bréfa Lincolns for- seta, sem um getur í einkaeign. Kali- forníuríki á nú þetta safn. John Pierpont Morgan var sonur vellauðugs bankaeiganda og var einn auðugasti maður heims á sinni tíð (d. 1913). Hann græddi offjár á stáli og alls konar iðnaði, veitti miklu fé til alls konar mannúðarstarfa og var einn mesti bóka- og listaverkasafnari, sem uppi hefur verið. Talið er að hann hafi varið tæpum 500 milljónum króna til bókakaupa. 1807 reisti hann marmara- höll í New York yfir bókasafnið. Hann keypti fjölda einkasafna og lét kaupa bækur á uppboðum um allan heim. Safn hans var mjög fjölskrúðugt, forn lýst handrit á skinni, 1000 vögguprent, fjöldi franskra og enskra dýrmæta frá 16. og 17. öld, bréf og rithandarsýn- ishorn frægra manna og papýrushandrit voru í safni hans. Auk þessara, sem hér hafa verið taldir, var mikill grúi annarra safnara; mörg þessi söfn eru nú í eigu ríkja eða borga, því að bandarískir auðmenn höfðu og hafa margir þann sið að gefa fæðingarborgum sínum bóksöfn sín. F yrsta háskólasafnið var stofnað í Bandaríkjunum við Harvard-háskól- ann 1638 á 18. öldinni voru fleiri slík stofnuð. Almenningsbókasöfn koma upp í byrjun 19. aldar og óvíða eru slík söfn fullkomnari en þar í landi. Fjár- ráð þessara stofnana eru rýmri en víð- ast annars staðar og skipulag full- komnara. Mesta safn í Bandarikjunum er The Library of Congress í Wash- ington, sem er þjóðbókasafn Banda- ríkjanna. Það var stofnað árið 1800 og er stærsta bókasafn í hinum vest- ræna heimi, telur um 10 milljónir binda og pésa. Þetta safn er skrásetningar- miðstöð fyrir önnur söfn í Bandaríkj- unum og veitir auk þess margvíslega bókfræðilega þjónustu. Þar er séð um lán milli bókasafna og gefin út skrá vikulega, Information Bulletin. Þetta safn er nokkurskonar móðursafn banda- rískra safna. Auk þessa safns eru nokk- ur sérsöfn til viðbótar í Washington. f sérhverju ríki Bandarikjanna eru ríkissöfn. Háskólasöfnum hefur fjölg- að stórlega á 19. og 20. öld og binda- fjöldi hefur stóraukizt í eldri háskóla- söfnum. f Harvard telur safnið taép- lega 6 milljónir binda og við alla stærri háskóla Bandaríkjanna er bindatala einstakra safna yfir milljón bindi og margra um tvær milljónir. Mikill hluti bandarískra safna var í upphafi stofn- aður fyrir frumkvæði og með fjár- styrk einstaklinga; bandarískir auð- menn hafa verið þessum söfnum sann- ir Mæsenar. Söfn þessi njóta styrkja úr opinberum sjóðum en stærð þeirra og rúm fjárráð má fyrst og fremst þakka einstaklingum. í öðrum ríkjum Ameríku eru helzt: Þjóðbókasafnið í Mexíkó, stofnað 1857, þjóðbókasafnið í Buenos Aires, stofnað 1810 og á sama ári var stofnað þjóð- bókasafn í Rio de Janeiro af Jóhanni VI, en hann flutti stofn þess safns til Rio, þegar hann flúði frá Portúgal und- an Napóleon. í öðrum löndum Suður- Ameríku er stofnað til þjóðbókasafna á 19. öldinni og í Ecuador er elzta safn- ið stofnað 1768. í Kanada var stofnað háskólasafn „Bibl. de l’Université Laval“ 1663. Þjóð- bókasafnið þar í landi er Library of Parliament í Ottawa, stofnað 1849. IVÍeð Rómantíkinni hefst þjóðern- isvakning á Þýzkalandi og þar með aukinn áhugi á þýzkri sögu og bók- menntum. Áhugi fyrir söfnun þýzkra eldri bóka stói'eykst samhliða áhuga á þýzkri málsögu og tungu. Fram und- ir aldamótin 1800 var frönsk bók- menntatízka ráðandi með þeim stétt- um á Þýzkalandi, sem lásu fagrar bók- menntir að einhverju ráði. Á þessu verður breyting með Rómantíkinni. Margir frumkvöðlar þessarar stefnu á Þýzkalandi voru jafnframt miklir safnarar, svo sem Brentano, Grimms bræður, Hoffman von Fallersleben og fleiri. Þessi áhugi breiðist síðar út með- al almennings og hafði það sín áhrif á stóraukna útgáfustarfsemi. H. F. von Diez var mjög fróður um AusturlönO, menningu þeirra og bókmenntir, og safn aði mjög vönduðu safni í þeim fræð- um. Hann náði saman miklum sæg handrita í Konstantinói>el, settist að í Berlín og hélt áfram söfnun þar. Hann var náinn vinur Goethes, en það virð- ist ekki hafa aukið áhuga hans á þýzk- imi bókmenntum, því að hann virðist hafa hirt lítið um þau fræði. Hann ánafnaði safn sitt konunglega bóka- safninu í Berlín. Safn hans taldi um 17 þúsund bindi bóka og handrita. Hein- rich Klemm safnaði einkum vöggu- prenti og bókum frá 16. og 17. öld. Með- al merkari bóka í safni hans var Gut- enbergsbiblían á skinni. Alls taldi safn hans um 5 þúsund bindi og var keypt af saxnesku stjórninni. Klemm hóf aft- ur söfnun og var það safn síðar boð- ið upp. Eitt bezta safn varðandi Lúther og siðaskiptin var safn Joachims Karls Friedrichs Knaake. Hann gaf konung- lega bókasafninu í Berlín nokkum hluta safns síns, afgangurinn var seld- iu á uppboði í Leipzig að honum látn- um. Joseph Freiherr von Lassberg var rithöfundur og bókasafnari. Hann hafði mikinn áhuga á germönskum fræðum og safnaði einkum bókum varðandi þau fræði, og var safn hans lengi vel eitt það bezta sinnar tegundar í einkaeign. Safn hans taldi um 12 þúsund bækur og handrit. Karl Hartwig Gregor Frei- herr von Meusenbach einskorðaði söfn- un sína öðrum fremur við þýzkar bók- menntir. Hann átti mjög gott safn þýzkra verka frá 16. og 17. öld og síð- ar. Safn hans taldi um 30 þúsund bindi og var um tíma bókfræðileg miðstöð þeirra, sem fengust við germönsk fræði. Eitt vandaðasta safn músikrita á Þýzka- landi var safn Werners Wolffheims, en hann var einn fróðasti maður um músik sögu á þessari öld. Hann átti mjög gott safn varðandi músik og ágætt hand- ritasafn. Þetta safn var selt á uppboði í Berlín á árunum 1928-29 fyrir um 600 þúsund mörk. Sá maður sem af mörgum var talinn bókfróðastur á Þýzkalandi á 19. og 20. öld var Fedor von Zobeltitz. Hann var einnig afkasta- mikill rithöfundur og skrifaði ógnar- fjölda bóka, sem jöðruðu við eldhús- reyfarann. Hann var mikill bókasafnari og bókavinur, gaf út tímarit, sem hafði það markmið að efla betri smekk á frágangi bóka og bókbandi. Hann átti gott safn bóka og safnaði einkum þeim, sem voru frábærar um prentun, pappír og band. Barátta hans fyrir meiri bók- menningu átti mikinn þátt í því að bæta smekk manna á bækur. S tærsta bókasafn á Þýzkalandi er „Deutsche Staatsbibliothek“ í Austur- Berlín. Það er sama safnið og Friðrik Vilhjálmur stofnaði 1661. Þetta safrt jókst mjög á 19. og 20. öld eins og öll önnur söfn á Þýzkalandi. Safn þetta taldi tæpar 3 milljónir binda fyrir sið- ari heimsstyrjöld. Nokkur hluti þessa safns eyðilagðist í stríðinu og hluti þess var fluttur í „Westdeutsche Bibli- othek“ í Marburg, en það safn er nú landsbókasafn Vestur-Þýzkalands og tel- ur um 2 milljónir binda. Annað helzta safn í Berlín er háskólabókasafnið, stofnað 1831. Ágæt söfn eru við þýzka háskóla og eitt það stærsta er safnið í Göttingen, rúml. 1 milljón bindL Hirðbókasöfnin voru mörg gerð opin- ber á 19. öld og fjöldi nýrra safna var þá stofnaður af borgum, ríkjum og við háskóla. Þjóðbókasafnið í Munchen er eitt merkasta safn á Þýzkalandi; það er upphaflega stofnað á 16. öld af Albrecht hertoga í Bæjaralandi. Hann keypti mikið af bókum frá ítalíu og síðar runnu klaustrasöfnin inn í það safn 1803, eins og víðar á Þýzkalandi, og jukust söfn þá mjög. Safnið telur um 2 milljónir binda, þar af 16 þúsund vögguprent. í Dresden var ágætt safn, en 250 þúsund bindi af því safni voru eyðilögð í árás- um á borgina í lok síðara stríðs. Borg- arbókasafnið í Lubeck fór enn verr í styrjöldinni; safnið taldi um 850 þús- und bindi, en af því eyðilögðust um 710 þúsund bindi. í Leipzig telur há- skölasafnið um 1 milljón og 600 þús- und bindi; þar í borg var „Deutsche Bucherei" stofnað, og var ætlunin að safna þar saman öllum þýzkum bókum fyrr og síðar, einnig voru þar gefnar út bókaskrár. Þetta safn taldi um 2 millj- ónir binda fyrir styrjöld; í styrjöldinni eyðilagðist trm % milljón binda. Fyrir komulag þýzkra safna er mjög til fyr- irmyndar og náið samstarf með þeim. Mikið magn bóka gjöreyðilagðist í síð- ari styrjöldinni, en mikið hefur áunn- izt að bæta tjónið. HAGALAÐAR | Tíminn og mikilmennin. Fátt er þó, sem erfiðara er að átta sig á en mikilmennin. Gorki þekkti Tolstoj vel, og er auk þess einhver mesti mannþekkjari og ritsnillingur. En ómögulegt taldi hann að lýsa Tolstoj að svo komnu. Það væri 1 aðeins hægt að lýsa einstökum hlið- ■ um hans. Túninn yrði að dæma hann. | En hvernig dæmir Túninn? Er ekki } myndin, sem dregin er úr fjarska. 1 aðeins þeim mun skýrari, sem hún k er ónákvæmari. Söguleg vissa er á j því reist, að svo margt er gleymt. J Mörg vissan myndi riða, ef þeir I dauðu risu upp og fengi málið. 1 (Magnús Jónsson). f 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Þjóðbókasafnið í Miinchen —-----------— . 15. janúar 1966.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.