Lesbók Morgunblaðsins - 03.09.1967, Page 7

Lesbók Morgunblaðsins - 03.09.1967, Page 7
LÍFIÐ ER Á FLEYGIFERÐ á hurðir og húna, eins og veiðimanni þegar hann nær fiski á færi. Annar kvaðst ekki þekkja meiri yndisauka en slíka iðju. Allar þessar sögur voru a'ð mestu tilbúningur þeirra, sem pyntuðu hina ákærðu og þegar píslamar voru orðnar óbcerilegar játuðu menn öllu, sem kval- arár þeirra kröfðust. Súmsstaðar var því trúað, að pestinni myndi linna, ef höfuð galdrakindanna, sem þegar lágu dysjuð utangarðs, væru sniðin frá bol. í ‘ þýzkum borgum urðu gráfararnir oft illa fyrir barðinu á sjúk- legu ímyndunarafli íbúanna. Sögur eru um, að þeim hafi stundum verið smal- að saman og sfðan brenndir lifandi, eftir að hafa verið píndir til að játa á sig hin óheyrilegustu glæpaverk. Á erfiðum tímum hyllist fólk oft tií jþéss að finna einhverja allsherjar ástæðú fyrir erfiðleikunum, oft er þessi ástæðá bundin ákveðnum hóp, eða hóp- um. Fyfir nokkrum áratugum var erfitt fjárhagsástand í Þýzkalandi kennt Gyð- ingum og margvíslegt fleira, sem aflaga fór. Fyrir þessar Sakir upphófust þar miklar ofsóknir gegn Gyðingum og náðu þær hámarki laust fyrir miðja tuttug- ustú öld, með nútíma tækni og skipu- lagníngu. Gasklefarnir eru verðugir minnisvdr'ðar þeirra hugvitssömu manna, Sem sáu þar um framkvæmdir. Á miðöldum var fólk sama sinnis og á tuttugustu öld, en skipulagsleysi og skortur tækni hamlaði jafnmiklum af- köstum í morðum. Gýðingamorðin á miðöldum eru sér- stáklega óhugnanleg fyrir þá sök, að vaidastéttirnar ásamt klerkdómnum vissu, að ásakanir almennings um að Gyðingar ættu sök á plágunni, voru algjörlega tilhæfulausar. Óttinn við skrílinn og einnig gróðavonin átti þátt í því, að þessar stéttir þvoðu hendur sínar og gengu jafnvel sjálfar fram fýr- ir skjöldu í ofsóknunum á hendúr sak- lausú fólki. að er ekki hægt að benda á þann, sem fyrstur bar fram þá tilgátu, að Gýðingar ættu sök á pestinni. Þessi skoðun hefur sjálfsagt komið fram á ýmsum stöðum á sama tíma. Gyðingar skáru sig úr og vöktu með því tor- tryggni, auk þess virtust mönnum þeir hagsýnni öðrum í fjármálum og stund- uðu víða peningaverzlun, sem var held- ur ílla séð á 14. öld. Sú saga kom upp, að Gyðingum hefði verið skipað að eitra vatnsból og brunna, eitrið átti að hafa komi’ð frá Toledo, en þar bjuggu margir Gyðingar, sumir sögðu að Gyðingar byggju sjálfir til eitrið úr uglum, köpgulóm, eðlum og fjeiri kvikindum, sem álitin voru eitr- uð. Sögur voru einnig á kreiki um að Gyðingar göldruðu pláguna í fólk. Sagt var að þeir fölsuðu myntina og ætluðu sér að útrýma öllu kristnu fólki með eitri. Sagan um eitrun vatnsbóla kom fyrst upp í Súður-Frakklandi, fyrst í stað var ýmsum kenndur verknaðurinn. Aðallinn hylltist til að kenna almúg- anum um hermdarverkið og almúginn kenndi það aðli og auðugri stéttum. Sumir kenndu Gyðingum um, aðrir holdsveikum. Ofsóknir holdsveikra voru ekki nýtt fyrirbæri. Árið 1313 hafði Frakklandskonungur skipað að brenna lifandi alla holdsveikissjúklinga á Frakklandi, ástæðuna vita menn ekki. Að lokum varð sú sko'ðun ríkjandi að Gyðíngar hefðu eitrað brunnana og þá hófst stormurinn. Snemma í maímánuði 1348 drap skríll- inn alla Gyðinga sem hann náði í bæ einum í Suður-Frakklandi. Ofsóknirn- ar mögnuðust og talið er að í Búrgund hafi fimmtíu þúsund Gyðingar verið teknir af lífi. Páfinn bannaði stranglega þessar af- tökur i opnum bréfum, sem hann sendi y Framhald á bls. 13 L ífið í Ásbyrgi gekk sinn vana- gang, en þó nokkuð hraðar. Þa'ð var furðulegt hvað við gátum náð í mik- ið af vörum, sem seldust strax með góðum hagnaði. Bjarni græddi vel, en hækkaði ekki kaupið við mig. En hann var mér innilega góður og eins kona hans. Dóttir hans, sem þá var ung, kom oft í búðina og tók vel eftir. „Þú mátt ekki segja honum pabba það, mikið vo'ðalega snuðar hann, hann selur 5 aura stokkana á 6 aura og sex aura stokkana á fimm aura“, trúði Veiga mér einu sinni fyrir. Bjarni drakk nefnilega mikið, og þá urðu mistök. Sveitamenn keyptu þá mikið og verzlunin færðist suður. Stórverzlan- irnar á Eyrarbakka og Stokkseyri voru þá að líða undir lok, en smá- kaúpmenn ekki búnir að koma fótum undir sig í staðinn. Engin Verzlun var þá á Selfossi, né annarsstaðar í sveitunum. Stokkseyringar keyptu talsvert hjá okkur, enda þekktu þeir Bjarna. Engir vörubílar voru þá, en hestvagnalestirnar lögðu á stað inn Hverfisgötuna á kvöldin. Skeiðamenn voru eitt kvöldið á fer’ð og komið myi’kur. Séra Brynjólfur var með þeim og svo fullur, að þeir treystu honum ekki til að sitja á hestinum, en bjuggu um hann á einni kerrunni. „Stígðu nú í stólinn, séra Brynjólf- ur,“ sagði einn þegar undirbúningi var lokið. „Þið eruð allir asnar og svín í lífi og dauða, amen“, var ræða prestsins. Það var sama hvað fuflur Bjarni var, þó ég og aðrir skömmuðum hann, þá var hann alltaf sama hóg- væra prúðmennið, svara'ði aldrei illu. Og aldrei viðurkenndi hann að hafa bragðað vín, þó hann væri stjörnu blindur. Ég var einu sinni úti í kjall- ara að taka til, og rakst þá á kex- tunnu fulla af flöskum, sem vínlykt angaði úr. „Kannski þú viljir þræta fyrir að þú hafir drukkið úr flösk- unurn", sagði ég öskuvondur. En Bjarni skildi ekkert í því, hvernig flöskurnar hefðu komizt í tunnuna, aldrei bragðaði hann vín. En væri ég fullur, þá var Bjarna óhætt. Og aldrei fann hann að við mig, þó ég hagaði mér ósæmilega. Og sjaldan fannst vínlykt af Bjarna, hann blanda'ði nefnilega brennivínið í mjólk og drakk það þannig. Einn vinur minn, máttar- stólpi föðurlandsins og tryggur við- skiptavinur Áfengisverzlunar ríkis- ins sagði mér snjalla sögu af sér. Hann betlaði á götunum og átti eftir fyrir mjólkurflösku, er hann hafði keypt brennivíníð. En þetta var for- sjáll maður og hugsaði einnig fyrir næturgistingu. Þegar hann var bú- inn með helminginn af brennivíninu keypti hann mjólkurflöskuna, drakk nokkuð af mjólkinni og fyllti svo flöskuna af brennivíni. Svo lagði hann á stað niður í kjallarann með mjólkurflöskuna, sem hann sagðist ætla a’ð hressa sig á, og bað auð- mjúkur um næturgistingu, sem fús- lega var veitt. En löggan skildi ekk- ert í því, að alla nóttina söng og trallaði vinur minn, og var jafn full- ur að morgni. Mér var farið að leiðast i búðinni og líkaði ekki kaupið. Árni Óla fékk 180 krónur þegar hann byrjaði á Mogganum. Ég ætlaði til Englands, og fór í tima hjá Stebba túlk. Það var kennari eins og þeir eiga að vera, hann kunni ensku betur en Englend- ingar. Kristján Bárður gat utvegað mér vinnu við verzlun í Middles- borough, en þá grét mamma, hún var viss inn að ég mundi farast í stríðinu. Sama var, þegar ég ætlaði til Hannesar frænda mins í Kanada. Svo ég fór hvergi, guði sé lof. Kristján Bárður var einn af Filis- teunum. Hann var stórvitur og skap- aður fjármálamaður, en af því urðu engin not, hvorki honum né öðrum, vegna galla. í honum var mikið af grjóti, en líka ósvikið gull. Það þekkti ég vel. Hann var mér góður og réði mér heilt, þó ég hefði ekki vit á að notfæra mér það. Um tíma átti Kristján um 30 gufuskip, öll á kafi í sandi á Suðurströndinni. Hann var stórvinur Einars Ben; var með hon- um í sölunni á Dettifossi og C. B. Eyjólfsson. Þeir fengu í reiðufé 50 þúsund. Þá var stórveizla í Kaupin- hafn. Og svo varð sonur Kristjáns helvízkur kommúnisti, hann sem var svo fallegt og saklaust guðsbarn þeg- ar hann var lítill. Árið 1916 sagði ég upp hjá Bjama og fór á kútter Sæborg síðari hluta vetrarins, Ég var alveg ónýtur, fisk- aði ekkert, og þoldi ekki sjómennsku. En þó var ég víst talinn meðal stofn- enda Hásetafélagsins og borgaði þar í tvö ár árgjald, tvær krónur. Við vorum úti í páskaveðrinu, en þá urðu hrakningar og slys á bátum og skipum. Á skírdag vorum við úti á banka í norðaustan stormi og hauga- sjó, svo einnig á föstudaginn langa, en á laugardag vorum við undan Krísuvíkurbjargi og þá rauk veðrið upp í útsuður og svo í norður með hörkufrosti, svo allt var klakað og svellað dekkið. Við héldum okkur við undan Höfnunum af þvi Skip- stjórinn treysti sér ekki fyrir Reykja- nes. Það var stórhættulegt að hag- ræða seglunum, þegar lagt var yfir. Margir kútterar lágu fyrir akkerum inn á Hafnarleiru, færeyskir og ís- lenzkir. Aðfaranótt páskadags dreymdi mig Hannes föðurbróður minn, sem ég heiti eftir, en sá aldrei. Hann sagði mér hver hann var, og ég mundi, að hann hafði fyrirfarið sér. Ég spurði hvernig honum liði, — Vel, sagði hann, en mér er alltaf illt í höfðinu. Eftir því, sem mamma lýsti veik- indum hans, hefir hann haft heila- æxli, og ekki þolað þjáningarnar. Eg lýsti draummanninum fyrir mömmu, og þekkti hún hann vel. Hannes sagð- ist ætla a'ð vera með mér, og getur verið að svo hafi verið og sé enn. Ég vaknaði við það, að nissinn, eða skipsdraugurinn, réðist á mig, tók fyrir kverkamar á mér svo ég ætlaði að kafna. Þetta var strákur, ég sá hann vel og heyrði í körlunum, sem voru að spila í lúkarnum. Ég barð- ist um, nissinn hvarf, en ég rak hausinn upp í dekkið. Við vorum kojufélagar og honum hefir þótt ég liggja of lengi. A annan í páskum komum við inn, þá var blfðskaparveður. Ég fór út aftur stuttan túr, en hætti um lok- in. Ég réri um vorið nokkra róðra á Sviðið, en þar var litill fiskur, enda enginn friður fyrir trollurum. Einu sinni elti okkur hvalur vestan af Sviði og alveg að fjörunni í Akur- ey. Við gátum varla róið, hann synti svo nærri. Seinasta róðurinn var austan strekkingur og nógur fiskur, tveir urðu að vera í andófi en við Framhald á bls. 10 3. september 1967 LESBOK MORGUNBLAÐSHSlS 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.