Lesbók Morgunblaðsins - 24.03.1968, Blaðsíða 14
A
erlendum
bókamarkaði
Age by Age. Landmarks of British Archa-
ecology. Ronald Jessup. Illustrated by Alan
Sorrell. Michael Joseph 1967. 30.—
Þetta er sýnisbók brezkrar fornleifafræði.
Höfundirinn er þekktur fornleifafræðingur
og teiknarinn hefur meðal annars starfað
hjá „The Illustrated London News“. í bók-
inn er sögð saga fornleifarannsókan í Bret-
landi. Bókin skiptist I tvo höfuð þætti. Fyrri
þátturinn fjallar um fyrstu söguskímuna á
þessum eyjum og nær fram á víkingaöld
og hinn þátturinn er um afstöðu manna
til fornleifafræði. Bókin er alls 96 blað-
síður og er helmingur myndir varðandi
lesmálið. Þetta er snotur myndabók, sem
bæði ungir og gamlir geta haft ánægju af.
The Sea. Robert C Miller. Nelson 1966. 84.—
Þessi bók ætti að gera mönnum skiljan-
legt, að það er meiri þörf á því að rann-
saka hafið og auðlindir þess, en að fikta
við að senda mannaumingja í hólkum út
í geiminn. Hólkmenn þessir eða geimkett
ir hafa hingað til ekki haldið til
jafns við einn leiðangur fiskileitarskips,
hvað gagn áhrærir. Hafið býr yfir ótæmandi
auðlindum og fegurð þess og hrikaleiki
er endalaus „Enginn myndi dýfa hendi í
sjó, ef hann vissi hvað í honum byggi" er
haft eftir Guðbrandi biskupi þar er margt
ófétið og einnig litaauðgi og fegurð sem
eiga óvíða sinn líka. Bók þessi lýsir of-
viðrum, sem geisa á yfirborði sjávar.
flóði og fjöru, djúpum hafdölum og fjall-
görðum neðansjávar, neðansjávar eldgos-
um og hinu fjölskrúðuga lífi, sem hrærist
í sjó. Lífið er talið eiga uppruna sinn á
mörkum lands og sjávar, í fjöruborðinu og
af hafi berst mikill hluti þeirrar næringar
og efna, sem viðhalda lífi manna á jörð-
inni. Þetta er mjög fróðleg og falleg bók,
aífræðibók um hafið. Myndirnar eru frá-
bærar, bæði svart-hvítar og litmyndir.
Dovc of Ishthar. The Story of Semiramis.
Desmond Varaday. Geofferey Bles 1967
25.—
Höfundurinn er Ungverji og hefur flækzt
víða. Þetta er skáldsaga, sem byggir á sögu
persónunni Semiramis, assiriskri prinsessu,
sem rikti í Babýlon í fjörutíu og tvö ár.
Af þessari konu gengu furðusögur. Hún
hét Sammu-Ramat, sem þýðir „sú sem dúf-
urnar elska," henni var ruglað saman við
gyðjuna Isthar og sagt var að hún hefði
reist hof þessari gyðju til dýrðar í Hiera-
polis. Höfundir hefur tínt saman ýmsan
fróðleik um þessa konu og skrifar um hana
skáldsögu, sem ekki hefði sakað, að væri
óskrifuð.
May we Borrow Your Husband? And Other
Comedies of the Sexual Life. Graham
Greene. The Bodley Head 1967. 21.-
Hére ru tólf sögur af fólki ýmiss þjóðernis,
sögurnar gerast á ýmsum stöðum og aðal-
persónurnar eru beggja kynja. Undirtitill-
inn villir aðeins á sér heimildir. Þessar
sögur eru allar vel sagðar, Greene er hinn
fullkomni sögumaður og kann tæknina, að
segja skemmtilega frá, hann er aldrei leið-
inlegur. Þetta er ein þeirra bóka hans, sem
hann segist skrifa til þess að skemmta
fólki, sem dægradvöl. Bezta sagan er sú
fyrsta, en sumar þær styttri verða ekki síður
eftirminnilegar þeim lengri, samúð hans
með „fórnarlömbum" sínum er óbrigðul og
humorinn einnig.
Die Erde. Entstehung und Entwicklung der
Kontinente und Ozeane. Kösel Verlag 1966
Bók þessi kemur út í bókaflokki út-
gáfunnar, sem heitir „Wissen un Verstehen"
nr. 1. James Usher biskup hélt því fram
á 17. öld að jörðin hefði verið sköpuð 26.
október árið 4004 fyrir Krist klukkan 9 að
morgni. Náttúruvísindin hafa ekki viljað
samþykkja þessa skoðun, né aðrar keim-
líkar samkvæmt sköpunarsögunum. í þess-
ari bók er sögð mótunarsaga jarðarinnar
og þróun hennar samkvæmt skoðunum höf-
undar um fljótandi meginlönd og einnig
segir hann sögu hafanna og mótun þeirra.
Bókin er skýr og gera myndirnar sitt til
þess, þær eru prýðilegar.
Everyday Life en the Viking Age .Jackue-
line Simpson. B.T.Batsford 1967. 25.—
Every-day Life bækur Batsford útgáfunn
ar eru nú orðnar um tíu talsins. Þeim er
ætlað að draga upp sem sannasta mynd
af lífernismáta fyrri kynslóða á ýmsum tím
um og í ýmsum löndum og tekst þetta mis-
jafnlega, en flestar gefa þær þó einhverja
hugmynd um líf fyrri kynslóða., minnsta
kosti hugmynd um hugmyndir höfunda um
þetta efni. Höfundurinn styður sig bæði við
ritaðar heimildir og fornleifarannsóknir.
Rituðu heimildirnar eru að mestu íslenzk-
ar. Tímabilið sem hún fjallar um nær frá
því á áttundu öld og fram um miðja elleftu
Erlendar heimildir um víkinga eru flestar
á einn veg, að þar hafi farið siðlaus
ræningjalýður, rænandi og ruplandi, aðrar
lýsa þeim sem merkum löggjöfum og skipu
leggjendum. Höfundur skiptir ritinu í níu
kafla, segir frá ferðum víkinga, lífi þeirra
heima fyrir, skipum þeirra og siglinga-
tækni, kaupmennsku þeirra, vopnum og
hernaðartækni, íþróttum, listum og kveð-
skap og loks trúarbrögðum og útíararsið-
um. Höfundur hefur með þessu riti sett
saman stutta þjóð-menningarsögu víkinga-
aldar. í bókarlok er skrá yfir nokkrar
bækur til frekari lestrar. Um hundrað
myndir eru í bókinni bæði teikningar og
ljósmyndir af fornum minjum.
My Autobiobraphy. Charles Chaplin. Peng
uin Books 1966. 10.6.
Þetta er löng ævisaga, tæplega fimm
hundruð blaðsíður auk mynda. Höfundur-
inn segir liðlega frá viðburðarríkri ævi,
skoðunum sínum og fjölda fólks. sem hann
kynntist. Bókin kom fyrst út 1964 og er
nú endurprentuð í Penguin. Höfundurinn
reynist annar í ævisögunni heldur en á
kvikmyndatjaldinu og hugmyndir manna
um hann hljóta því að breytast við lestur
ævisögunnar, því að þar gætir nokkurrar
fordildar og snobbisma.
Jewish Cookery. Florence Greenberg.
Penguin Books 1967. 7.6.
Gyðingar eiga marga merkilega þjóðar-
rétti, þeir stóðu lengi mörgum þjóðum fram
ar í matgerðarlist, fyrr á öldum var þrifn-
aður meiri með Gyðingum víða í Evrópu
en öðrum þjóðum og smekkur þeirra á mat
þróaðri, einkum vegna góðs efnahags. í
þessari bók, sem kom í fyrstu út 1947, er
að finna marga lostæta rétti, matreiðsla
þeirra á sauðaketi og lamba mætti verða til
þess að auka fjölbreytni í matreiðslu þess
hráefnis hérlendis. Kjöt af óhreinum skepn
um er vitaskuld ekki að finna í þessari bók
Þessi bók er vel nothæf hérlendis nú,
þar eð kaupmenn kaupa nú í landið fleiri
kryddtegundir en salt og pipar.
Murder Seholastic. Janet Caird. Geffrey
Bles 1967. 18,—
Höfundurinn segist alltaf hafa verið skrif
andi, frá því hún man eftir sér, hún er
fædd í Nyasalandi, dóttir trúboða, stundaði
nám í Edinborg og síðar í París og Gren-
oble. Hún er af skozkum ættum og býr í
skozku hálöndunum. og stundar fornleifa-
fræði milli þess sem hún skrifar reyfara,
morðsögur. Þetta er vel skrifuð morðsaga
og hefst með því að kennslukona nokkur
finnur átarfsbróður sinn stunginn í gegn
með töflusirkli, og fleiri fylgja á eftir.
Þetta er spennandi reyfari, hröð atburða-
rás og spenna sem helzt út bókina. Höf-
undur hefur sett saman tvær aðrar slfkar.
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
24. marz 1908