Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1968, Blaðsíða 1
Andleg hreyfing frá
Indlandi ryður sér til
rúms í hinum vestrœnc
heimi og magnast um
allan helming þegar
Bítlarnir og fleiri
stjörnur ganga henni
CYRIL DUNN: á hönd
Einn af lærisveinum Maharishans í
hugleiðslustöðu
Nýr andlegur leiðtogi er kominn fram
á sjónarsviðið í hinum vestræna heimi.
Hann er frá Austurlöndum — Hindúa-
munkur frá einsetuhellum Himalaya-
fjalla. Hann nefnist Maharishi Mah-
esh Yogi og að áliti einlægs, brezks
fylgismanns lítur hann út eins og „lít-
ill, indverskur Jesús Kristur“.
Vitað er að hann kom fyrst til Bret-
lands fyrir sjö árum, í upphafi margra
ferða sinna um heiminn. í janúar 1962
stofnaði hann í London brezka deild
hinnar Andlegu Endursköpunarhreyf-
ingar sinnar. En þótt hann drægi þá
þegar að sér þó nokkurn fjölda fylgis-
manna, vakti hann enga almenna at-
hygli um margra ára bil. Tilboð hans
um frelsun var auglýst á smámiðum í
neðanjarðar brautarstöðvum í London.
Hjá flestum munu þessir miðar ekki
hafa vakið annað en snögga hugmynd
um einhvern nöturlegan samkomusal og
fyrirlestur um dulspeki haldinn yfir
dreifðum áheyrendahópi, aðallega gam-
alærum kerlingum, sem mættar væru til
að bera fram spurningar um Opinber-
unina.
En þá lyftist Maharishinn allt í einu
upp á frægðarhimininn svo um munaði.
Bítlarnir lýstu hann ,,guru“ eða and-
legan leiðbeinanda sinn og létu taka af
sér myndir með honum í Bangor, við
lótusfætur Guðs. Maharishinn vakti
samstundis alheimsathygli, yfirleitt
fjandsamlega.
Mikilhæfir gamanleikarar gerðu gys
að honum í brezka sjónvarpinu. Mr.
Quintin Hogg kallaði hann í háði
„fliss—fakírinn" og fordæmdi það sem
hann áleit ranglega vera kenningar Mah
arishans, sem „draugadýrkun", og hélt
uppi hetjulegri vörn í dálkum Sunday
Express fyrir fagnaðarboðskap Jesú og
vestrænni snilli gegn andlegri vesöld
Hindúa—dulspekinnar. Malcolm Mugg-
eridge, sem átti hálftíma ruglingslegt
sjónvarpsviðtal við Guru-inn sjálfan,
virtist einnig hneigjast til að grafa und-
an áli'ti hans.
En þrátt fyrir allt vakti þessi múr
háðs og vantrúar fólk til vitundar um
tilveru Maharishans og trúar hans og
það tók að streyma til hans hvaðan-
æva úr hinum vestræna heimi. Því jafn-
vel þau dagblöð sem verstar bifur
l;öfðu á honum gátu ekki skorazt und-
an að birta boðskap hans í hinum ein-
földustu megindráttum. Og í stað þess
að vekja almennan aðhlátur leiddi hann
í ljós þúsundir manna, sem óðfúsir voru
til samstarfs nærri eins og þeir hefðu
beðið eftir þessu.
Hugleiðsluiðkun Maharishans hefur
náð geysilegum vinsældum í Vestur-
Evrópu. Uppá síðkastið hefur hún átt
vaxandi gengi að fagna á Kaliforníu-
ströndinni, en hún náði fyrst verulegum
ítökum í gamla heiminum, einkanlega í
Vestur-Þýzkalandi, þar sem nú hefur
verið stofnuð um hana akademía í hafn-
arborginni Bremen og meira en 200
stöðvar um gervallt landið. í Svíþjóð
eru 2000 manns í Stokkhólmi og Gauta-
borg eingöngu — þar af rúmlega helm-
ingurinn ungmenni — sem stunda
hugleiðslu. I Noregi, þar sem heildar
íbúatalan er þrjár og hálf miljón, eru
flokksmenn Maharishans 7000 að tölu,
flest ráðsett fólk. Hjá Dönum eru eitt
þúsund hugleiðsluiðkendur. f Bret-
landi hafa átta eða níu þúsund manns
verið vígðir. Og enda þótt hreyfing
Maharishans sé nú langmest áberandi
á hinum alþjóðlega vettvangi og sé
starfandi í 35 löndum, eru fleiri „skól-
ar“ víðsvegar um England og telur
einn þeirra meðlimafjölda sinn ekki
færri en 5000.
Maharishinn á marga virðulega áhang
endur. Eru þeir svo margvíslegir að
mestu furðu gegnir. Flestum mun ef til
vill finnast eðlilegt að bítlarnir hug-
leiði. En hver skyldi búast við að finna
forstjóra eins stærsta olíufélags okk-
ar á meðal trúbræðra þeirra? Eða efna-
fræðing? Og jafnvel bankastjóra?
Sumir þessara framámanna eru feimn-
ir við að láta bendla nafn sitt við hug-
leiðsluiðkanir eða vinnuveitendur
þeirra krefjast þess að þeir fari leynt
með þær. En aðrir lýsa fúslega yfir
fylgi sínu. Leikkonan Anna Massey hef-
ur iðkað hugleiðslu árum saman. Sama
er að segja um J. M. Cohen, gagnrýn-
andann og þýðandann og Elizabeth Jane
Harris, rithöfund, sem skrifað hefur m.a.
bókina „The Beautiful Visit“ og er gift
rithöfundinum Kingsley Amis.
Kvikmyndaframleiðandinn Brian Tay-
lor og kona hans, sem áður var prima-
ballerina hjá Rambert ballettinum, iðka
bæði hugleiðslu. Sömuleiðis Norbert
Brainin, stjórnandi Amadeus strengja
kvartettsins. Og — ef leita á inn í
tízkuheim Lundúna — má telja eig-
endur hinnar vinsælu veitingastofu
Nick’s Diner og hárgreiðslumeistarann
fræga, Vidal Sassoon. Megnið af hug-
leiðslusöfnuðinum er greinilega milli-
stéttarfólk. En þó er þar að finna að
minnsta kosti einn ræstingamann, einn
bréfbera og burðarmann á Covent Gard
en — þótt þeir séu ekki í hinum eigin-
lega flokki Maharishans.
Hans heilagleiki Maharishinn á sér
enga fortíð. Aðspurður um fyrri daga
í hinu venjulega lífi, svaraði hann:
,,Sem munki ber mér ekki að hugsa
eða tala um sjálfan mig eða líf mitt.“
Af ýmsum rómantízkum útgáfum, sem
miðað hafa að því að fylla í þessa
eyðu, má fá fram örfáar staðreyndir.
Svo virðist sem hann sé 56 ára gamall
og fæddur í Jubbulpore, borg í Mið-
Indlandi. Á unga aldri starfaði hann
annaðhvort sem skrifstofumaður í verk-
smiðju einni í borginni eða stundaði
nám við Allahabad háskólann, þar sem
hann náði BSc. gráðu. En það er að
íninnsta kosti ljóst að hann hefur
snemma fengið trúarlega köllun og
vitnisburður um andlega starfsemi hans
er óaðfinnanlegur.
í þrettán ár var hann eftirlætis læri-
sveinn Shankaracharya Brahmanand í
Jyotimath í Himalayafjöllunum, eins af
fjórum æðstu prestum indverskra Hind-
úa og verndara Kedarnath musterisins
sem er einn af helgustu stöðum þeirra.
Maharishi Mahesh, yogi, hinn andlegi „Guru“ Bítlanna og fleiri frægra manna.