Lesbók Morgunblaðsins - 19.01.1969, Side 4

Lesbók Morgunblaðsins - 19.01.1969, Side 4
. merkt dauða og eyðingu, Surrealistar reyndu að tjá sig í einhverskonar dáleiðslu- ástandi og reyndu á þann hátt að sigrast á hömlunum milli dulvitundar og meðvitundar, á milli innri og ytri heims. Raun- veruleikann var að íinna í sam- runa beggja heima, milli vöku og draums. Áhrif surrealismans gsetti áður en Breton birtir stefnuskrána, surrealisma var a’ð finna í „Les Chants de Mala- dor“ eftir de Lautréamont og stefnan er frekari útfærzla á kröfu rómantíkurinnar um frjálsa tjáningu sjálfsins. Áhrif Bretons urðu mikil, þótt flestir fylgismenn hans hyrfu frá þeim surrealisma, sem hann prédikaði, þá gætti og gætir mjög áhrifanna víðast um heim. Dulvitundin hefur alltaf verið eintoenni skáldlegrar sköp unar, hvort sem menn hafa gert sér það jafn Ijóst og dregið af því jafn ákveðnar ályktanir og Breton, eða hafa nefnt hana öðrum nöfnum. Freud gaf lausn arorðið og Breton taldi sig geta lokið upp innsta kjarnan- xun. Surrealisminn var að nokkru angi af expressionisman um, eem hefst á Þýzkalandi nokkru fyrir fyrri heimsstyrj- öldina til andstöðu við ipress- ionisma, nýrómantík og natúr- alisma. Expressionistar töldu þessar bókmenntastefnur aðeins tjá raunveruleika, sem væri ó- sannur vegna þess að tíðar- andinn væri siðferðilega spillt- ur og bótomenntirnar væru tján ing hans, yfirborðslegar og falskar. Fyrstu expressionistarn ir settu saman leikrit, þar sem þeir tjáðu andúð sína á and- legri stöðnun og spillingu, þeir réðust á „vélamenninguna“ og forheimskun fjöldans. Freud, Dostojevsky og Bergson ásamt Husserl og Strindberg áttu meira og minna þátt í mótun þessarar stefnu með verkum sínum og nýstárlegum kenning um. Expressionistarnir töldu ríkjandi verðmætamat óheilt og skildu að sannleiki feðranna var ekki sannur lengur. Þekk- ingin og vísindin höfðu kippt grundvellinum undan heims- mynd fortíðarinnar, þótt enn væri reynt að lappa upp á hana þá hlutu allar slíkar tilraunir að misheppnast því að hinn gamli heimur var að hruni kom inn. Þessi stefna var rómantískt tilbrigði, sem reyndi að skynja umheiminn dýpri skilningi ot tjá tilfinningar og kenndir á sannari og kraftmeiri hátt og með ýktum myndum og áherzl- um til meiri árangurs. Þetta var nýtt form sjálfstjáningar. Skáld in leituðu undir yfirborð hlut- anna og skynjuðu þá og af- stöðu sína til þeirra í samræmi við dulviitundar kenningar og draumkennt innsæi. Svartsýni einkennir fyrstu skáld þessarar Stefnu, Trakl og Heym, önnur vonast eftir heimsbyltingunni, sem muni færa allt til betri vegar. Stíll Trakls og Heyms er knappur þeir yrkja um eig- in heima og óttinn við yfirvof- andi ósköp ríkir í ljóðum þeirra. Skáld þessarar stefnu binda sig ekki við tjáningu raunveru leikans, þau nota hann öllu frem ur til þess að styrkja tjáningu innri og persónulegri heima. Samfara expressionismanum á Þýzkalandi er futúrisminn á Ítalíu og imagistahreyfingin á Englandi og í Bandaríkjunum. arymaður hafa meiri merkingu fyrir mig en Notre Dame kirkjan og Parthenon hofið.“ Eitthvað af þessari and-mennta legu afstöðu varð eftir hjá Pollock. En ekki átthagafjötrarnir, ekki óttinn við utanaðkomandi áhrif. Pollock vildi að amer- ískum málara yrði mögulegt að starfa heima og verða jafn framt alþjóðlegur meistari og arftaki evrópskrar hefðar. Hann varð mikill listamaður vegna þess að hann gaf ekki sætt sig við neitt minna, og var reiðubúinn að gera sjálfan sig að athlægi fyrir vikið. Og trú hans á eigin getu var nógu máttug til að vekja sj álfstraust hjá öðrum amerískum lista- mönnum. Þegar hann byrjaði að mála var amerísk list lít- ilvæg og yfirborðskennd. Um það leyti sem hann dó var hún máttug og sterk. Það varð hún fyrir hæfileika og áræðni tíu eða tólf listamanna sem fædd- ust á árunum 1903 til 1915 og var Pollock ef til vill ekki þeirra stórbrotnastur. En eins og einn hinna komst að orði: „Jackson braut ísinn“. Imagistarnir stefndu að ná- kvæmni og trúrri tjáningu myndanna, orðin skyldu hæfa yrkisefninu og forðast bæri orðabruðl, fegurð mætti finna í hversdagslegustu hlutum og myndum. Helzti frumkvöðull þessarar hreyfingar var T.E. Hulme ásamt Ezra Pound og Amy Lowell. Þeir ömuðust mjög við fútúrisma og róman- tík og áttu mikinn þátt í því að forða ónákvæmni og notk- un óljósra hugmynda, en aftur á móti var kenning þeirra um notkun orða og inntak skáld- skapar fremur gagnrýni skáld- skapar heldur en frjóvgandi og aflvekjandi. Þeir sniðuljóð inu of þröngan stakk, sem mynd eða skissu. Flest ljóð imagista verka sem uppkast að Ijóði. Stefna þessi er úr sög- unni fyrir lok fyrri heimsstyrj- aldar, sem bókmenntastefna, en nákvæmniskrafan hafði heilla- drjúg áhrif á síðari tíma skáld- skap. Expressionisminn rennur sitt skeið og ummyndast eftir styrjöldina. Andúðin á styrj- öldinni þjóðernisstefnu og þeim öflum, sem fylgismenn hans töldu þjá mannkynið mótaði pólitíska afstöðu þeirra og þeir taka að berjast fyrir friði og bræðralagi allra manna undir merkjum kommúnisma og sósial isma. Pólitísk átök magnast stórum eftir styrjöldina og rússnesku byltinguna, kapítalismi og kommúnismi, nasismi og fasismi marba tímabilið. Á Þýzkalandi gætti mest áhrifa expression- ismans fram um 1925 og þar náði þessi stefna hæst. Andúð- in á styrjöldinni og afleiðing- um hennar varð eðlilega á- kveðnust í sigruðu landi, þar sem þjóðfélagslegt og efnahags- legt öryggi var í upplausn og óttinn réð ríkjum. Expression- istamir skiptust í tvær fylking- ar á Þýzkalandi, önnur lagði megin áherzluna á persónu- lega tjáningu tilfinninga og undirvitundar og taldi list- ina óbundna þjóðfélagi og um- hverfi, hinn hópurinn hneigð- ist til róttækra stjórnmálaskoð- ana og barðist fyrir réttlátari heimi bjartari framtíð í verk- um eínum. Þjóðfélagið verður mörgu skáldi tilefni til ljóða, þetta var ekki ný saga, drauma- heimur skáldanna frá fyrri hluta 19. aldar hafði nú breytzt í drauminn um réttláta þjóðfélagsskipun, jöfnuð og bræðralag. Áróður og auglýs- ingatækni eflist stórum og póli- tísk öfl gera sér þetta ljósara heldur en fyrrum. Keppzt er um að draga skáld og rithöf- unda í dilka, ef þeir urðu þá ekki fyrri til þess að skipa sér sjálfum í slíka. Um 1925 var svo komið að trúin á mannkær- leikann og bræðralagið var tekin að ganga sér nokkuð til húðar, enda hæpin kenning séu hafðar í huga þeirra tíma og nútíma skoðanir í sálarfræði. Upplausn verðmætanna og varnarleysi mannsins gagnvart fjandsamleigum heimi tjást í verkum Kafka, Joyoe og Eliots. Pólitískar skoðanir verða mörg- um ígildi trúar, skáldin leita sér öryggis ýmist í kommún- isina, fasisma eða kristinn ortó- doxíu. Skortur heillegrar og jákvæð ar heimsmyndar birtist í þörf fyrir nýrri skólaspeki, aga og Framíh. á bls. 14 Jackson Pollock hrautryðjandi í bandarískri myndlist Jackson Pollock var 44 ára ári'ð 1956, þegar bifreið hans ók út af veginum og á tré, varð honum sjálfum að bana og ann- arri stúlkunni sem með honum var. Hann var orðinn sagna- persóna löngu fyrir dauða sinn og sögur voru sagðar af ein- arðlegri afstöðu hans og uppá- tækjum. En sköpunargáfa hans var einnig efni í sögusagnir. Það var fyrst og fremst hans verk, að amerísk list öðlaðist það sjálfstraust og þá upphefð sem hún hafði aldrei áður þekkt og gerði New York að miðstöð listalífsins. Fyrir bragðið hefur nafn hans orðið allt að því samnefnari fyrir málara í vit- und amerísku þjóðarinnar. Enda þótt Pollock starfaði lengst af í New York, var hann ættaður ú r vesturríkjunum. Hann fæddist í Wyoming og ólst upp í Arizona og Californíu, faðir hans var bóndi. Og það er ekki ólíklegt að meginuppi- staðan í verkum Pollocks sé afstaða mannsins til hinnar víð áttumiklu og óspilltu náttúru, sem er eitt af hinum rikjandi rómantízku stefum í amerískri list. En list hans fjallar vissu- lega af raunsæi og fegurð um þá skynjun sem legsteinn hans gerir að tilfinningamáli. Máln- ingartaumarnir á léreftinu eru einskonar skrift, sérstæð skraut ritun. En þessi verksumerki eins manns verða að ímynd grósk- unnar, frjóseminnar, hinnar ei- lífu endurfæðingar. Skrift Poll octos er tjáning um bruðlunar- semi náttúrunnar. Hlutverkið sem Pollock lék í lífinu — hann var ekki hafinn yfir það að líta á sjálfan sig sem sagnahetju — var hlutverk hins göfuga villimennis, enda þótt sjálfsvitund ha<ns sem lista manns væri mjög sterk. Hann hugsaði um það sem honum bæri að gera hann var vel kunnugur á söfnunum og sæmilega les- inn. Sennilega hefur atferli hans verið einskonar brynja, í ætt við Tarzanleik. í Ameríku finnst listamanninum hann enn óbæt- anlegar einangraður frá þjóð- félaginu sínu en í Evrópu (í evrópsku samfélagi bann að ríkja tortryggni gagnvart lista- manninum og dyntum hans, en það er reiðubúið að lofa hann í orði og koma fram við hann eins og elskuleg-an sérvitring.) Ein leið hins amerfeka lista- manns til að halda sjálfsvirð- ingu sinni er sú að sýna svart á hvítu að hann sé engin rola, geti verið jafn karlmannlegur og heimskulegur og hver annar. Þessi leið getur einnig verið gagnleg aem vörn hroka mennt aðra evrópumanna þeirrar trú ar að allir Ameríkumenn séu ósiðaðir ruddar. Fyrir málara eins og Pollock gat slíkt verið jafnvel nauð- synlegra en fyrir rithöfund eins og Hemingway, þar sem Hem- ingway hafði langa röð mikil- hæfra rithöfunda að baki sér. En fyrir tíð Pollocks var Am- eríka ekki álitin staður þar sem hægt væri að skapa list sem mark væri takandi á. Fnam- gjarnir amerískir ligtamenn er höfðu að rruestu sótt til Evrópu allt frá átjándu öld, og á tutt- ugustu öldinni vildi þetta skapa minnimáttarkennd hjá lista- möimum sem héldu kyrru fyrir í Ameríku. Þeir tóku upp vam- arstöðu með því að líta á sjálfa sig sem Ameríkumenn fyrst og fremst en listamenn þvínæst. Þeir sóttu fyrirmyndir í nán- asta umhverfi, þeir höfnuðu á- hrifum evrópskra samtíðarmann anna. Þegar kennari Pollocks, Thomas Hart Benton, málaði þjóðlífsmyndir sínar á þjóðleg- an hátt, var það ekki af heil- agri einfeldni. Það voru sjálf- ráð viðbrögð gegn nútímalist Parísar og evrópskri menningu eins og yfirlýsing mannsins: „Vindmylla, ruslahaugur og Rot 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 19. jan. 1969

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.