Lesbók Morgunblaðsins - 19.01.1969, Síða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 19.01.1969, Síða 5
Jónas Guðmundsson, stýrimaður DÁIÐ á miðvikudögum SMÁSAGA Það dóu tveir í kvöld sagði vökukonan dapurlega, er hún gekk framlijá á hvítskúruðum ganginum, og þegar líkmennirnir birtust með þessi undarlegu kvik- tré, úr grófum smíðaviði og segli, flýtti ég mér inn á stofuna aftur. Þetta var undarlegt hús. Undarlegt hús, þar sem menn deyja á miðvikiidögnm. H-erbergið mitt er stofa, eða að minnsta kosti nefnt stofa og þar græt ég mig í svefn livert kvöld, líka hér falla víxlar hverja nótt. Ég er dauður maður. Ég er lifandi maður og blóð mitt ólgar og þytur fer um sálina eins og hraðbyr yfir haf. Ég gat ekki sofnað þetta kvöld. 1 rauninni hafði dauði hinna tveggja ekki minnstu áhrif í þeim skilningi. Ég hefði heldur ekki sofnað þótt tvö börn hefðu fæðzt þetta kvöld, svo ég fór fram og þar sat hann þá .enn gamli pósturinn og reyndi að ná andanum. Andlit hans var undarlega kalt og harðneskjulegt, einsog venjulega. Gróft svartgrátt hárið stóð fastri rót í þykku brúnu skinninu. Af hverju var hann svona brúnn? Hann sem þoldi ekki sólskin? Og þegar hann gekk másandi undir nöktum trjánum eftir gangstígnum virti hann þrestina, sem skutust gTein af grein ekki viðlits, fremur aðra vistmenn, sem eigruðu um túnið, einsog kviðfullt sauðfé. Herbergið mitt er stofa. Undarleg stofa og þú liggur einn og hugsar um heita sólina og kve kveljandi þessi bjarta haustnótt leggst yfir hjarta þítt. Frammi á ganginum dynur fótatak mannanna sem bera líkin eftir göngum hússins og þú heyrir hvernig þsir gefa hverjir öðrum stuttar skipanir á beygjunum, og hvíslið leggur að vitum þínum af kyrrlátri ógn. Hinar heitu tilfinningar morg- unsins, þegar þú ýmist varst vitstola af harmi, eða gleði hafa fjarlægzt með öllu og í rauninni veiztu það eitt að þú dóst ekki þetta kvöld, heldur einhver annar. Klukkan var farin að ganga þrjú um nóttina og þá fór ég fram til að reykja. Ekkert hljóð h-eyrðist, einsog húsið hefði verið yfirgefið í áratug. Björt ganga- ljósin stungu undarlega í stúf við þessa miklu kyrrð. Gamli pósturinn sat enn á stól í skolinu, keðjureykti og barðist við að ná andanum. Brjóstið liafði sigið saman og þreklegar herðarnar krepptust að hálsinum. Einnig í nótt virti hann mig ekki viðlits og tortryggin augun störðu í gólfið. í fyrstunni þögðum við hvor við annan lengi, og sogin í brjósti hans urðu dýpri og hroðalegri og þögn okkar varð óbærileg. Myrkrið grúfði sig upp aö húsinu og hjúfraði sig umliverfis okkur, og ég áræddi að segja eins guðrækilega og sorglega og hægt var: Þá hafa þeir fengið hvíldina. Hann Ieit snöggt upp, hvessti á mig augun og sagði kogandi: — Hvað veizt þú um hvíldina? Hvað veizt þú um þjáninguna? og ég skainm- aðist mín fyrir að vera svona heilbrigður í þessu voðalega húsi, — og liann taldi sig liafa sagt nóg. Ekki ætlaði ég að særa þig, bætti ég við. Gamli pósturinn leit upp á ný og sama grimmdin og fyrirlitningin skein úr svört- um augunum. — Hvað v-eizt þú um þjáninguna, sagði liann aftur og sogaði loftið. T*að getur vel verið að þú sért veiKur. Ekki hef ég spurt að því. Það getur verið, að það sem að þér gengur sé ekki betra en asminn, en þú getur aldrei þagað. Þú hleypur æpandi um gangana, með'an þeir bera út likin. Hann var allt í einu orðínn mælskur. — Við, sem höfðum barizt árum saman til þess eins að ná andanum, vitum að þetta er sjúkrahús. Fimm sprautur á dag, i holdið. Það sefar fáeinar mínútur og síðan hefst þjáningin á ný. Þér finnst ég kannske þögull, en ég er liér til að ná andanum, en ekki til að tala við heilbrigt fólk eða vitleysingja. — Xrúirðu á guö spurði ég? — Guð. Ekki veit ég um það. Að minnstakosti veit ég þó eins mikið um hitt lífið og prestamlr. Það sem ég lief séð. Hann sogaöi andann djúpt í morkin lungun, gerir allar kirkjur og alla presta að hismi. m. Og svo fór hann aö segja mér frá móður sinni og köldu augun urðu undarlega djúp og mild. Hún dó — hér í bænum. Ég hafði lofað henni að láta grafa hana austur í Vík, við liliöina á föður mínum, en nú var ég orðinn of sjúkur til að það væri hægt. Hvar átti ég að fá peninga fyrir bílnum til að halda jarðarför austur í Vík? Ég gat ekki einusinni verið viðstaddur útförina, því ég var liér til aö ná andanum og fá sprautur í holdið. Ég hefi heyrt um konu sem aðeins gat náð andanum austur á Kiím. Ég hef líka heyrt um íslenzkan auðmann sem gat náð andanum í vissri hæð í Klettaf jollum. Ég lief ekki ráö á aö vera í vissri liæð í KlettafjöIIunum. Ég verð aö vera héi og fá fimm sprautur í holdið hvurn dag og taka andköf þess á milli. — En móðir þín hvar var liún þá jörðuð'? Hann leit hvasst á mig og svo færðist birta yfir þetta svarta þjáningarfulla andlit. Hann þagði örskamma stund, og hélt svo áfram. — Þar sem ég hafði engin ráð á útför í Vík, var ekki um annað að gera en grafa hana hér. Þá kemur allt í einu í heimsókn til mín kona, sem ég þekkti lítillega og hún spyr mig, hvort ég liafi ekki lofað móður minni að Iáta grafa hana fyrir austan? Ég sagði henni einsog var, að ég hefði ekki peninga fyrir bílnum og um það væri því ekki að tala, að grafa í Vík. Þetta var rík kona og þá spurði hún hvort hún mætti ekki sjá um útförina og láta hana fara fram fyrir austan. Þetta var rík kona, svo ég samþykkti það og mamma var grafin fyrir austan við hlið föður míns. Hann þagði lengi og lyfti lokuðum augunum til himins. — Var ég viðstaddur útförina? Hann horfðl hvasst á mig. Já ég var við- staddur útförina, þó ég færi ekki beinlínis austur. Ég sat héma uppi í rúminu mínu og þá sá ég þessa sýn. Yfir allt færðist heilög birta. Ég gekk með föður mínum látnum eftir kistunni að kirkjunni, en hann tók í höndina á mér, og ég skildi að okkur var ekki ætlað að fara inn. Athöfnin fór þó ekki framhjá okkur, við heyrðum sönginn og ræðu prestsins. Síðan gengum við hlið við hlið eftir kistunni, en er komið var að kirkjugarðshliðinu, stöðvaði hann mig á ný og mér skildist að ég mætti ekki fara í garðinn. Hann þagði djúpt um stund og tók andköf. — Ég fékk að sjá lítinn hluta af eilífðinni, en fann, að ég mátti ekki sjá allt. Ég hefi aldrei átt undursamlegri stund. — Ertu kannske spíritisti, spurði ég? — Spíritistí. Hann gat naumast Leynt fyrirlitningunni. Síðan sagði hann: — Allar kirkjur veraldar og allir prestar veraldar eru gjálfur. Um guð veit ég ekki. Ég veit ekki hver leyfði mér að sjá þessa sýn. Ég veit líka að ég mátti ekki sjá allt. Þeir grófu móður mína við hlið föður míns í litla kirkjugarðinum og meira veit ég ekki. Ilann þagði á ný. Hann var að bíða eftir að klukkan yrði sjö um morguninn. Þá myndi hjúkrunarkonan koma og stinga nálinni á kaf í blátt lioldið. Þangað til myndi hann þurfa að þjást. Berjast við að ná andanum. Ekki í Krím, eða vissri hæð í Klettafjöllum, heldur hér myndi hann berjast áfram við að ná andanum í morkin lungu. IV. Með óskiljanlegum hætti boðaði nýr dagur komu sýn. Þrestirnir hófu sönginn. Gangastúlkur helltu úr koppum. Þvoðu brúna þvagleggi af viðkvæmni, einsog kynfæri. Sumar voru að klæða þá veikustu, sem síðan myndi vera ekið um gang- ana í hjólastólum, hægt, einsog i konunglegri jarðarför. Þeir, sem fóru inní bæ til vinnu voru farnii að raka sig — voru ýmist þöglir eða óeðlilega háværir. Einn til viðbótar hafði kvatt heiminn án þess ég vissi og skelfing næturinnar fjaraði út smám saman. Já smám saman myndi skelfingin fara úr þessum margbrotnu andlitum. Gamli pósturinn var horfinn úr sæti sínu. Hafði fengið nálina í svart holdið og naut þess að draga andann. Hálfviti valhoppaði eftir ganginum og lasburða liópurinn þokaðist einsog sauðfé að dyrum borðstofunnar, og beið þess að liurðinni yrði hrundið upp. 1 grautinn. Fregnin um dauðsföllin þr'ú dreifðist einsog fjallaþoka yfir klettótta strönd. Hverjir eru dauðir og hverjir eru lifandi, skiptir kannske ekki mestu máli. Hér deyja menn á miðvikudöeum. Nýir og nýir úrvinda menn munu koma í þetta voðalega hús, sem hefur svo stára sál og stórt hjarta. Það mun verða borið á höndum hjúkrunarliðs og lækna, sem reynir að sefa sorgir þess og sársauka. Ýmist með nál í holdi, lyfjum, eða hug- hreystingarorðum. Svo kemur miðvikudagur. 19. jan. 1969 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.