Lesbók Morgunblaðsins - 19.01.1969, Qupperneq 11
Kalevakirkjan er upplyst með ljoskosturum.
Kalevakirkjan að innan.
Seint á árinu 1965 var vígð í Brumundal í Noregi kirkja sú sem
hér sést á myndurn. Þrír arkitektar teiknuðu hana í samvinnu:
Molle og l’er Cappelen og Sven Eric Lundby. Efniviðurinn er
fyrst og fremst tinibur. Allir burðarásar eru úr viði, þakklæðning
sömuleiðis og klæðningar að innan. Kirkjan er há og gnæfir yfir
stórt svæði en múrsteinsbygging fyrir safnaðarstarfsemi er lág
og tengd aðeins með súlnagöngum. Á gólfinu eru norskar stein-
skífur, en sælin úr tré; reglulegir kirkjubekkir í grófri útfærslu.
Dag-sljós berst inn í kirkjuna um lágréttar ljósrifur, neðarlega á
þakinu.
Brumundalkirkjan að innan.
Eitt af frægustu bygging-
arverkum Finna frá síðusíu
árum er Kalevakirkjan í
Tammerfors. Hún stendur
efst á óbyggðri hæð, þar
sem skiptast á klappir og
grasfletir. Það mætti segja,
að þessi kirkja sé í ætt við
minnismerki; hún er
„monúmentai" og nýtur
sín vel á þessum stað. Hún
er líka þannig gerð, að sam
spil ljóss og skugga er sí-
breytilegt. Arið 1959 var
efnt til samkeppni um
teikningu og tveir finnar
urðu hlutskarpastir: Reima
Pietilá og Raili Paatelain-
en. Veggir eru úr stein-
steypu, en flísalagðir ytra.
Á gólfinu eru brúnar stein-
hellur og sæti fyrir 1050
manns. Vndir kirkjugólfi
er kjallari og þar eru sam-
komusalir og aðrar vistar-
verur, sem heyra til safnað
arstarfi. Ljóskastarar lýsa
upp veggi kirkjunnar bæði
að utan og innan.
Gísli SigurSsson tók saman.
P
C?
Klukkuturn
kirkjunnar í Buclis.
Dr. Justus Dahinden, arkitekt í Zúrich,
er höfundur þessarar kirkju, sem nýlega
hefur verið lokið við í Buchs. í fljótu
bragði minnir hún eilítið á virki líkt og
íslenzk íbúðarhús komu vestur-íslenzka
byggingameis aranum fyrir sjónir í fyrra-
sumar. Líkt og byggingameistarinn sagði
um íslenzku einbýlishúsin, mætti halda,
að þessi kirkja væri skotheld. Hún sýnist
heldur gluggalítil og er það raunar, en
ljósið berst inn um mjóar rifur, sem verð-
ur til þess, að beint sólskin á sér ekki
stað í kirkjunni. tJtlitið ber dálítið keim
af stefnu Bauhaus í Þýzkalandi á fjórða
áraíugnum og getur Grophius gamli verið
ánægður yfir því, livað kenningar hans
hafa reynzt haldgóðar í nútímanum. Þó
virðist turninn ekki af Gróphiusarættum;
hami stendur utan við kirkjuna, tengdur
henni með súlnagöngum. Kirkjan er úr
steinsteypu og áferðin úr mótunum látin
lialda sér. Turninn er einnig steyptur og
að nokkru lcyíi klæddur með kopar.
FunkisstiLIinn enn á dagskrá: Kirkjan í Buchs.
19. jam. 1969
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS H