Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 06.07.1969, Qupperneq 14

Lesbók Morgunblaðsins - 06.07.1969, Qupperneq 14
/ DAG verður sett hér í Reykja- vík alþjóðaráðstefna í norrœnum og almennum málvísindum, sem boðað hefur veríð til og haldin er á vegum Háskóla íslands. í frétt- um, sem birzt hafa um þessa ráð- stefnu, segir, að hana muni sitja um áttatíu háskólamenn frá Norð- urlöndum öllum, Bretlandi, Þýzka- landi, Póllandi, Ráðstjórnarríkjun- um og Bandarikjunum, og í hópi þessara fulltrúa séu margir heims- kunnir vísindamenn. Auk þess muni sitja ráðstefnu þessa nokkrir erlendir stúdeniar og aðrir háskóla- menn og nokkur hópur íslenzkra stúdenta. Markmið þessarar alþjóðaráð- stefnu er tvíþætt að sögn þeirra, sem að henni standa. Annars veg- ar er með henni stefnt að aukinni samvinnu norrænna málvísinda- manna á Norðurlöndum sín á milli svo og við þá, er fást við norræn málvísindi í öðium löndum. Hins vegar er henni œtlað að styrkja tengsl norrænna málvísinda við þá öru þróun í almennum málvísind- um, sem orðið hefur einkum á tveimur síðustu áratugum eða svo. I frétt um ráðstefnu þessa, sem birtist í Morgunblaðinu fyrir skömmu kom fram, að þetta er fyrsta ráðstefna sinnar tegundar, sem kölluð er saman. Markar hún því tímamót í alþjóðlegum málvís- indufn og er fynr þá sök hin merk- asta. En hitt er einnig merkilegt fyrir okkur tslendinga, að ráðstefn- unni skyldi valinn staður hér. Bend ir sú staðreynd fram á leið til þró- unar, sem við gœtum haft mikinn hag af, ef ísland yrði viðurkennt ráðstefnuland fyrir alþjóðaráðstefn- ur og hér gœtu hitzt fulltrúar aust- an og vestan um haf. Forsenda þess, að unnt reynist að koma ráðstefnu sem þessari á hér á landi, er sú, að málvísindamenn við Háskóla Islands eru í fremstu röð málvísindamanna samtímans. Að öllum öðrum ólöstuðum á þetta þó einkum við um aðalhvatamann þess arar ráðstefnu og framkvœmda- stjóra hennar, prófessor Hrein Benediktsson. Þessa staðreynd er mönnum hollt að hafa í huga þeg- ar málefni Háskólans eru ofarlega á baugi og sérstaklega rœtt um nauðsynlega eflingu hans. Einstak- ir vísindamenn við Háskóla íslands valda því, að á sumum sviðum er honum skipað í fremstu röð hlið- stœðra vísindastofnana. í ýmsum greinum veltur það á starfi eins manns eða tveggja hvort þetta er gert eða ekki og getur þvi starf þeirra manna, er svo miklu valda, verið miklu árangursríkara fyrir þjóðarheildina en allur almenning- ur gerir sér grem fyrir að jafnaði. En það œtti að vera íslenzkri þjóð sérstakt stolt að styrkja og efla á alla lund háskóla, sem við kröpp kjör heldur til jafns við ýmsar auð- ugustu og virtustu menntastofnanir heimsins. Alþjóðaráðstefna málvísinda- manna getur, ef allt verður með felldu, orðið upphaf annars og meira ráðstefnuhalds hér á landi. 1 ýmsum frœðigreinum við Háskóla íslands ha.fa tslendingar fyrir löngu skipað sér í fremstu röð. A það einkum við um rannsóknir í forn- norrœnum fræðum, en einnig á síð- ari árum um eldfjallarannsóknir. I þessum greinum báðum eru ís- lendingar þegar kjörnir til forustu og landið er vel til ráðstefnuhalds fallið, svo miðlægt í Atlantshafi. Jón Hnefill Aðalsteinsson. mmmm mmwmmi Lausn á síðustu krossgátu Sagmlhafi verður alltaf í upphafi að gera sér grein fyrir hvernig hanm ætlar að haga útspilimi og þá um leið hvaða afleiðinigar sú leið, sem hann veliur, hef- ur í för með sér. Eftirfarandi spil er gott da>mi um þetta. Sagrair gengu þairunig: BMDGE Norður — - Austur — Suður — Vestur 1 Tíguill Pass 2 Lauf 2 Spaðar Vestur lét út spaða kóng, sagnhafi 3 Lauf Pass 3 Hjörtu Pass draip, án umhugsumar, í borði með ási. 3 Lauf Pass 3 Hjörtu Pass Sagnhafi lét næst út tígul ás, og síðan 5 Lauf Paiss Pass Pass aninan tígirl og Austur fékik slaginm. Vestur A K-D-G-9 7-5 V Á-D-8-3 4 D-G 4 8 Norður 4 Á 8 V 7-6 4 Á-8-7-4-3-2 4 K-G-10 Austur 4 10-4-3-2 4 G-10-9 4 K-10-9 4 5-4-2 Suður A 6 V K-5-4-2 4 0-5 4 Á-D-9-7-6-3 Austur lét nú út hjarta og A.—V. fengu 3 slagi og sprlið tapaðist. Geri saginlhafi sér strax grein fyrir, að hann þarf að gera tígulimn í borði góðain, þá á hanm að koma auga á þessa hættu þ. e. að Austur komist inm og láti út hjarta. SagnhaÆi á þesis vegma að gefa spaða kóng í byrjum, síðar getur hanm tekið spaða ás og kastað tígli í a@ heiman. Nú hefur hanm trygg't, að hvoruigur andstæðingamina kemist iinm ■maðan hanm gerir tígulinm góðan og hamm gefur aldrei nernia 2 slaigi, þ.e. eimm á spaða og einn á hjarta. Hamin losnar víð 3 hjörtu heima í 3 tígla í borði. 14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 6. júlí 1969

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.