Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1971, Side 1
Eins og
sverð
yfir höfði
hvers manns
Dr. Lawrence Lamb
| 3. tbl. 17. janíiar 1971, 46. á.rg.
r-
Þ>ú hefur ef til vill nú þegar
tekið þann sjúkdóm, sem orsak
ar hjartaáfall og slag. Flest full
orðið fólk meðal iðnþróaðra
þjóða hefur atherosclerosis —
æðaþrengsli af völdum fitu-
myndunar innan á æðaveggjun
um. Þessi sjúkdómur er, ásamt
fylgikvillum sínum aðaldánaror
sök manna í Evrópu og Norð-
ur-Ameríku — í Bandaríkj-
unum er hann dauðaorsök
helmings allra karlmanna.
Með öðrum orðum, fleiri karl-
menn deyja úr atlierosclerosis
en öllum öðrum orsökum sam-
anlögðnm — krabbameini, bif-
reiðaslysum eða af völdum
Vietnam-stríðsins, svo dæmi
séu nefnd.
Gagnstætt því, sem almennt
er ranglega álitið, er athero-
sclerosis ekki ellisjúkdómur.
Þau ár, sem ég gerði athugan-
ir á bandarískum flugáhöfnum,
geimflugmönnum og tunglför-
um, sá ég við krufningar
marga unga menn undir þritugs
aldri með hjörtu alsett örum af
völdum atherosclerosis. Einn
þeirra var tvítugur flugliði, að
því er virtist fullhraustur. Af
þeim sem féllu í bardögum í
Vietnam-striðinu höfðu 77%
fitumyndanir í slagæðunum til
hjartans. Þetta voru ungir
menn, meðalaldur þeirra um
22 ár ■— margir voru innan við
tvítugt.
Allmikið er vitað um hin
ýmsu stig þrengslamyndunar
við atherosclerosis, en við vit-
um minna um orsakir hennar.
Fitulögin samanstanda úr lipo-
proteinum, sem innihalda kole-
sterol, fitusýrum og eggja-
hvítuefnum, er venjulega koma
fyrir i blóðinu. Kolesterol er
rauninni ekki fita. Tæknilega
séð er það alkohol, en sameind
þess er stór eins og í fitu.
Likamanum er það eðlilegt —
heilinn getur ekki starfað án
þess og nýrnahetturnar nota
það til að framleiða adi'enalin.
Kransæðastífla.
Seginn í æðinni
hér á myndinni er
það sverð, sem hver
maður í hinum
þróuðu londum á
yfir höfði sér. Hjarta-
sjúkdómar drepa
fleiri en umferðarslys,
styrjaldir og
krabbamein.