Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1971, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1971, Page 1
Eins og sverð yfir höfði hvers manns Dr. Lawrence Lamb | 3. tbl. 17. janíiar 1971, 46. á.rg. r- Þ>ú hefur ef til vill nú þegar tekið þann sjúkdóm, sem orsak ar hjartaáfall og slag. Flest full orðið fólk meðal iðnþróaðra þjóða hefur atherosclerosis — æðaþrengsli af völdum fitu- myndunar innan á æðaveggjun um. Þessi sjúkdómur er, ásamt fylgikvillum sínum aðaldánaror sök manna í Evrópu og Norð- ur-Ameríku — í Bandaríkj- unum er hann dauðaorsök helmings allra karlmanna. Með öðrum orðum, fleiri karl- menn deyja úr atlierosclerosis en öllum öðrum orsökum sam- anlögðnm — krabbameini, bif- reiðaslysum eða af völdum Vietnam-stríðsins, svo dæmi séu nefnd. Gagnstætt því, sem almennt er ranglega álitið, er athero- sclerosis ekki ellisjúkdómur. Þau ár, sem ég gerði athugan- ir á bandarískum flugáhöfnum, geimflugmönnum og tunglför- um, sá ég við krufningar marga unga menn undir þritugs aldri með hjörtu alsett örum af völdum atherosclerosis. Einn þeirra var tvítugur flugliði, að því er virtist fullhraustur. Af þeim sem féllu í bardögum í Vietnam-striðinu höfðu 77% fitumyndanir í slagæðunum til hjartans. Þetta voru ungir menn, meðalaldur þeirra um 22 ár ■— margir voru innan við tvítugt. Allmikið er vitað um hin ýmsu stig þrengslamyndunar við atherosclerosis, en við vit- um minna um orsakir hennar. Fitulögin samanstanda úr lipo- proteinum, sem innihalda kole- sterol, fitusýrum og eggja- hvítuefnum, er venjulega koma fyrir i blóðinu. Kolesterol er rauninni ekki fita. Tæknilega séð er það alkohol, en sameind þess er stór eins og í fitu. Likamanum er það eðlilegt — heilinn getur ekki starfað án þess og nýrnahetturnar nota það til að framleiða adi'enalin. Kransæðastífla. Seginn í æðinni hér á myndinni er það sverð, sem hver maður í hinum þróuðu londum á yfir höfði sér. Hjarta- sjúkdómar drepa fleiri en umferðarslys, styrjaldir og krabbamein.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.