Lesbók Morgunblaðsins - 03.06.1973, Page 2
Mozart hefur e.t.v. funaio til ;þess, að hann var að
kvefast, kvöldið sem hann stjórnaði ikantötunni sinni.
Bæði sem barn og eins á unglingsárunum hafði hann
átt það tH að verða skyndilega veiikur. Og 20. nóvemb-
er var hann orðinn rúmfastur. i( fyrstunni virtist þetta
kvefkast vera óvenjulega alvarlegt og líklega hefur
það verið þá, sem 'kallað var á lækni til hans að
nóttu til.
Fljótlega 'kom í Ijós, að þetta reyndist vera meira en
venjulegt kvef, því liðamót hans bólgnuðu. Hann fé'kk
háan hita, gigtarhita, sem hann hafði þjáðst mjög al-
varlega af sem drengur í Hagh. En dr. Barisani frá
Vínarborg haföi læknað hann 1 það sikiptið.
Hinn nýi læknir Mozarts hét dr. Closset og var að-
eins tveim árum eldri en Mozart. Hann var vinsæll og
afar tekjuhár læknir og fékk 'þúsund guílpeninga fyr-
ir það starf eitt að vera einkalæknir Kaunitz.
Hann hafði skrifað vísindagrein um taugaveiki fyrir
nokkrum árum og hann var fljótur að sjá, að það
sem þjáði Mozart var mjög alvarlegt, e.t.v. ólæknandi.
Hann var ekki búinn að vera laöknir Mozarts lengi,
þegar hann sá, að Mozart yfirvann smá ííkamlega las-
leika með ótrúlegum krafti, sem taugaspennan ein gaf
honum. Closset hafði hjúkrað honum sumarið 1789, þeg
ar sköpunargáfa Mozarts hafði alveg orðið að láta í
minni pokann fyrir likamlegum sjúkdómum.
Árið 1791 voru líkamlegir kraftar Mozarts það litlir
að hann var í meiri hættu vegna þess 'heldur en
andlegs ástands síns. Hann ihrúgaði 1 sig lyfjum og
reikningarnir hjá lyfsalanum hrúguðust upp. Samt
batnaði honum ekki.
22. nóvember, dagur heilagrar Sesselíu, var fæðing-
ardagur frú Weber. Mozart var of veikur til að fara
og óska henni til hamingju, en þegar Soffía litla Web-
er kom til hans næsta laugardag á eftir ilét hann
hana skila því til frú Wéber, að hann myndi treysta
sér ti’l að semja oktövu til heiðurs 'henni og flytja
hana á hátiðisdegi ihennar, þriðjudaginn 29. nóvemb-
er.
En Soffía hefur sjálfsagt efazt um sannleiksgildi
þessarar ákvörðunar, þegar hún sá, hversu grannur
og innfallinn Mozart var orðinn. Og e.t.v. hefur hann
gefið þetta loforð, þegar sótthitinn var lægri. Það var
orðið afar sársaukafullt fyrir hann að ihreyfa sig í
rúminu og með sjálfum sér var hann líklegast farinn
að efast um, að hann færi nokkru sinni á fætur aftur.
Það hefur sjálfsagt verið í þessari heimsókn, sem
Soffía færði Mozart náttslopp, sem hún og frú Weber
gáfu honum í von um bata; sloppurinn var ekki á
listanum yfir eignarmuni Mozarts fjórum dögum eftir
andlát hans, þvi af þeim tveim sloppnum, hinu
hvíta hálstaui, nátthúfu og 18 vasaklútum var þessi
sloppur það eina, sem aldrei hafði verið notað.
Áður en oktövunni á heilögum degi Sesselíu var
lokið kallaði dr. Closset ungan fækni og vin sinn á
sinn fund, dr. Mattías von Sallaba. Hann var á tvítugs-
aldri og var frá Prag, eins og Mozart. Sallaba hafði
gefið út bókina Historia Naturalis Morborum og helgað
hana dr. Closset.
Bókin er um, eins og stendur í 'henni sjálfri á
'atínu: ,,imflammatio rheumatica" og er um eitt tilfelli,
þegar Sallaba hafði kallað dr. Olosset á sinn fund,
ti'l að þeir gætu í sameiningu sjúkdómsgreint sjúkling,
sem var á vegum dr. Saílaba. Þeir urðu ekki sam-
mála, en dr. Closset reyndist hafa haft rétt fyrir sér,
sérstaklega hvað viðvék endalokum sjúkdómsins: há1f-
um mánuði eftir viðræður þeirra dó sjúklingurinn.
Um sjúkdómseinkenni Mozarts voru víst engin áhöld
mánudaginn 28. nóvember, þegar þessir tveir frægu,
en algjörlega hjá'lpariausu sérfræðingar hittust. Moz-
art hélt meðvitundinni allan tímann og fundur þess-
ara manna hefur einungis fært honum heim sanninn
uni, að hann ætti skammt eftir ólifað. En einu verki
var ólokið — Requim — og e.t.v. var þetta verk
meira virði fyrir hann en nokkurt annað verk, sem
hann hafði samið.
Það hafði oft komið fyrir, þegar Mozart var að skapa
tónverk sín, að hann gat ekki fullunnið þau; það
var eins og siðustu stefin vildu ek'ki koma, en oftast
eða alltaf hafði honum tekizt að koma snillibragði
sínu á endalokin. Hann ihafði aldrei fokið við verk-
ið, sem konungurinn í PrúsSlandi hafði beðið hann að
gera, en það var tæpast hægt að segja um nokkurt
annað tónverk, sem ’hann hafði hafizt handa um, að
Requiem undanskilinni. Þau fullunnu verk, sem eftir
Mozart lágu, voru 600 talsins, og var þá talið frá
verk'öu: „Opus nr. 1", eins og Leopold kallaði það
upp með sér. Það var gefið út 1 París af ,,J. G. Wolf-
gang de Salzburg, Agé en Sept Ans" árið 1764. Leo-
pold lét feri'l Mozarts sem tónsmiðs hefjast tveim árum
fyrr, sem sagt 30 ára lífsferill sem slíkur, ef Mozart
hefði 'lifað aðeins lengur og lifað það að verða 36 ára
27. jan. 1792.
í raun og veru átti hann aðeins eina viku eftir af
V
lífi sínu. Aðeins þrjár eða fjóra, manneskjur voru við
staddar, er hann gaf upp öndina og af þeim lét ein-
ungis Soffía Weber hafa eitthvað eftir sér um það.
Hún skrifaði um það mörgum árum síðar; hún hrip-
aði niður nokkra ómerkilega atburði og án efa sagði
hún oft frá atburðinum áður en ’hún reit það niður
fyrir seinni mann Konstönzu I ævisögu fyrra manns
hennar.
En hvað sem því leið, Soffía Weber hafði verið við
stödd og angistin og 'kvölin sem 'hún 'leið þann dag
og næstu nótt á eftir, þegar Mozart dó, er auð-
finnanleg af frásögn hennar, jafnvel þótt máti ’hennar
að lýsa atburðinum sé sakleysislega barnaleigur. Það
voru engin dramatísk orð viðhöfð né var s'káldlegur
blær yfir dauðastríði Mozafts, annað veifið færð-
ist eins og doði yfir hann, en skyndilega virtist
hann fullur af lífi, hann virtist sætta sig við dauða
sirvn jafnframt því, sem hann var fullur umhugsunar
um' Konstönzu. Orð Soffíu eru eina leiðarljós okkar
inn i herbergið þar sem Mozart mælti síðustu orð
lífs síns.
Mozart hélt áfram meðvitund en kraftar hans voru
á þrotum. Hann hafði verið viðkvæmur frá því ’hann
var barn; hann gat farið að hágráta, ef honum var
sagt að engum þætti vænt um hann. Þetta er haft
eftir Schachtner, sem spilaði á trommur I hirðhljóm-
sveitinni i Sálzburg. Á fuHorðinsárum gat Mozart oft
ekki tára bundizt, þegar hann kvaddi eða heilsaði vin-
um. En það að hittast og ’kveðjast eru einmitt ein-
kenni dauðans.
Og nú var ti'lfinningaástand hans upptendrað af æs
ingi og honum var um megn að hiusta á litla fuglinn
I búrinu syngja, sem hafði komið 'í staðinn fyrir litla
starrann, sem dó. Það varð að flytja fuglinn, svo hann
heyrði ek'ki I honum. Starrinn 'hans var næstum því
búinn að ná því að flauta stefið úr rondóinu úr nýj-
asta píanókonsertinum hans (K. 453). Ef til vil'l var
honum ofraun að heyra starrann sinn flauta lög úr
„Töfraflautunni" eða úr söng Papagenos úr byrjun-
inni á „Fuglaveiðari er ég víst". 'Sex árum seinna hélt
Konstanza 'konsert í Prag og kynnti þá í fyrsta skipti
Franz Xaver Wolfgang Mozaft. Þá söng hún einmitt
lag.
Töfraflautan og Requien virtust hvila þungt á Moz-
art síðustu dægrin, sem hann lifði: tónaflóði þessara
hljómkviða var honum nú einung'iis fært að fylgja í
9köpun sinni I ímynduninni einni, því hann myndi
aldrei geta hlustað á þær. Önnur vika 'leið og hita-
sóttin hélt áfram, það mátti téljast kraftaverk að Moz-
art lifði ennþá.
Nýr mánuður hóf göngu sína. Það var laugardagur
3. desember og nú 'hafði Mozart brátt verið rúmfast-
ur í hálfan mánuð. Sótthitinn fór upp úr öllu valdi
það kvöld og Konstanza var sannfærð um, að Moz-
art myndi ekki lifa nóttina af. Hann 'lifði samt nóttina
af, en á sunnudeginum var ötlum Ijóst, að dauðinn
var á næsta leiti.
Næsta morgun, þegar Soffía Weber 'kom í heim-
sókn til að grennslast fyrir um líðan Mozarts sagði
Konstanza frá þessari hræðilegu nótt og bað hana að
vera hjá sér. Konstanza var orðin svo örþreytt, að
hún megnaði varla að fara inn í herbergi sjúklingsins.
Hún lét Soffíu fara inn til Mozarts, ti1 að vita hvernig
honum liði. Hann var með fuflri rænu og vel vakandi.
Hann bað Soffíu líka að vera hjá þeim yfir nótt-
ina og sagði:^ „Þér verðið að sjá mig deyja.” Hún
reyndi að ’hughreysta hann, en hann þrá'bað hana að
vera kvrr og gera Konstönzu lífið léttara. Hvað hon-
um sjálfum viðvék 'þá sagði hann Soffíu, að hann
fyndi bragð dauðans í vitum sér.
Soffía lét undan að vera kyrr, en fyrst varð hún
að fara heim og láta frú Weber vita, hvernig málin
stæðu. Konstanza fyligdi henni til dyra og bað hana
að koma við í einni af nærliggjandi kirkjum,
Sankti Péturs kirkju og reyna að fá prest til að vitja
Mozarts. Kirkja heilags Péturs (Sankti Péturs kirkja)
hefur sjálfsagt orðið fyrir valinu vegna þess að hún
hafði verið 'kirkja frú Weber og dætra hennar þegar
þær fluttust fyrst til Vínarborgar og þar höfðu tvö
börn Mozarts verið skírð.
Soffía hófst þegar handa og hefur líkiegast fariðy
fyrst á fund prestins. Henni gekk erfiðlega að sann-
færa prestinn, líklegast vegna þess að Mozart var frí
múrari, eða e.t.v. vegna þess að Mozart þjó fyrir utan
kinkjusóknina. Síðan þurfti Soffía að fara út úr mið-
borginni, tii Wieden-hverfisins, rétt hjá Schikaneders
leikhúsinu, þar sem hún og mamma hennar bjuiggu.
Þetta tók allt lengri tíma en Ihún gerði sér grein fyrir.
Frú Weber var mjög slegin yfir fréttunum af Mozart
og ákvað að dvelja ekki ein um nóttina en hélt til
dóttur sinnar Josefu Hofer, „Drottningar næturinnar".
9íðdegis þennan sama dag, meðan Soffía var
í burtu, fóru Hofer og Tamino hópurinn með Benedikt
Schack heim til Mozarts að rúmstokk hans til að æfa
Requiem. Schack söng sópranhlutverkið og Hofer
tenórinn. Bassann söng Sarastro og Mozart söng sjálf-
ur altröddina. Áheyrendur hafa tíklegast verið Kon-
stanza og Sússmayr. Schaok var góður vinur Mozarts,
Konstanza staðfesti það löngu eftir dauða Mozarts,
þegar hún lýsti því yfir, hversu innilegt sambandið
hefði verið á milli þeirra. SchaCk var aðalmaðurinn
í þVÍ sem fram fór á sama tíma og Soffía flýtti sér
fram og til baka í Vínarborg þennan dag í erinda-
gjörðum sínum. Hún var því ekki vitni að þessum at-
burðum.
Æfingin byrjaði. Söngvararnir sungu „Dies irae", en
komust aldrei lengra en að versinu „Lacrymosa dies
illa". Mozart þoldi ekki tilfinningahita þessa vers.
Hann lagði frá sér heftið og grét ákafléga.
Soffía sá heftið, þegar hún sneri til báka úr leið-
angri sínum. Schack og hinir söngvararnir voru farnir.
Mozart hafði náð sér nægilega til þess að geta út-
skýrt fyrir Sússmayr, hvernig fullgera ætti Requiem.
Lí’klegast hefur Sússmayr orðið eftir með hinum deyj-
andi manni og konunum tveimur. Og einhvern tíma
kom presturinn. Mozart neytti ekki heilags sakrament-
is, eins og mamma 'hans haföi gert í síðustu veiikind-
um sínum, en hann var samt aðnjótandi hinnar hinztu
smunningar kaþólskrar trúar.
Jafnvel meðan Soffía flýtti sér við ætlunarvenk sín
var farið að skyggja í Vínarborg. Sunnudagsnóttin
var runnin upp. „Töfraflautan" 'hafði oft verið lei'kin
á sunnudagskvöldum og var það kannski líka í kvöld;
sannarlega voru 'leikhúsin opin. Rauhensteingatan var
að öllum likindum ekki með ys og þys og í íbúðinni á
fyrstu hæðinni, sem sneri út að götunni var örugg-
1ega grafarkyrrð.
Mozart lá í rúmi sínu, sem að öllum li'kindum yrði
fljótlega kallað „hjónarúm", hann var deyjandi, en þó
alltaf með rænu; líkaminn allur bólginn o,g hann þjáðist
alltaf meir og meir, 'því höfuð hans varð alltaf sjóð-
heitara og þjáningar hans svo óbærilegar, að hinar
tvær skelkuðu konur voru komnar á fresta hlunn með
að senda eftir dr. Closset.
Closset var í leikhúsiou og þar yrði 'hann, þar til
sýningunni væri lökið. Það var e.t.v. skylda hans, þar
sem hann var eins konar leikhúsSlæknir; e.t.v. var
ómögulegt að koma ski'laboðum til hans fyrr en leikn-
um var lokið. Hann 'kom til þeirra en gat Mtið annað
ráðlagt en skipta um kalda ’bakstra á enoi ’hins deyj-
andi manns.
Seinna sagðist Soffía hafa dirfzt að efast um gagn
þessa læknisráðs. Samt sem áður héft hún áfram að
vefja köldum, blautum klútum um höfuð Moz-
arts, sem var umvafið fögru, Ijósleitu hári, sem hann
eitt sinn hafði verið svo stoltur af. Við umskiptin
fékk hann áfall og hné í ómegin.
Miðnætti nálgaðist og nýr dagur rann upp, mánq-
dagurinn 5. desember. Mozart 'hafði tekið eftir því,
þegar klukkan sló, þegar hann var að skrifa Kon-
stönzu bréf nokkrum mánuðum fyrr, en nú heyrði
hann ekki neitt, því hann sveif í meðvitundarleysi.
Hann bærði þó varirnar með erfiðismunum, Soffia hélt,
að e.t.v. væri 'hann að anda frá sér síðustu tónunum
úr Requiem.
En síðan hættu jafnveJ varirnar að bærast. Klukk-
una vantaði fimm mínútur í eitt að morgni dags. Moz-
art var látinn.