Lesbók Morgunblaðsins - 13.01.1974, Síða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 13.01.1974, Síða 5
flotans. Bandaríski sendiherr- ann á íslandi, Lincoln MacVeagh, varð þess áskynja, að flotinn hafði þannig gengið á svig viðósk forsætisráðherra. Sendiherrann taldi það auð- vitað ! sínum verkahring að gera utanríkisráðuneytinu í Washington viðvart um málið. í skeyti sínu til utanríkisráðu- neytisins minnti MacVeagh á þá ósk, sem fram hefði komið „áður en gengið var frá grund- vallarsamningi okkar við ísland', um, að „engi n negrum yrði hleypt inn á eyj- una". Ríkisstjórn íslands3 hefði enn ekki hreyft neinni athuga- semd við veru blökkumann- anna í landinu. Yfirforingi flot- ans á íslandi hefði tjáð sér, að slegið hefði í brýnu milli blökkumánnanna og hvítra sjóliða. „tYfirforinginnj hefur sýnt mér skeyti, þar sem hann tilkynnir flotamálaráðuneyt- inu, að hinir fyrrnefndu „skapi alvarlegan vanda og að þá þurfi að leysa af hólmi". Auk þess hefur hann skrifað nánari greinargerð, þar sem fram kemur, að negrarnir hafi stofnað til kynna við íslenzkar stúlkur. Þar sem dvöl þessara manna er í blóra við fram- komnar óskir ríkisstjórnar fslands, og hegðun þeirra er slík, að hún getur hvenær sem er valdið vandræðum í skiptum okkar við íbúana, er það eindregin ósk min, að flotamálaráðuneytið verði tafarlaust við beiðni yfirfor- ingjans um afturköllun þeirra."4 Cordell Hull utanríkisráð- herra kom boðskap MacVeagh á framfæri við Frank Knox flotamálaráðherra. Flotamála- ráðuneytið brást fljótt og vel við málaleitan hans. Eftir- farandi skilaboðum var komið til sendiherrans: „Flotamálaráðuneytið til- kynnir, að fyrirmæli hafi ver- ið gefin um, að aðstoðar- menn í mötuneytum skuli fluttir frá íslandi við fyrsxu hentugleika."5:. Ekki getur um fleiri atburði af þessu tagi ! þeim skjölum bandaríska utanrikisráðuneytis- ins og hersins, sem höfundur hafði aðgang að. Bandarikja- menn virðast upp frá þessu hafa gætt þess ! hvivetna, að farið yrði að vilja íslendinga og þeim forðað frá samneyti við blökkumenn. Nærri tveim áratugum eftir að Kuniholm bar upp ósk forsætisráðherra, var hún enn feimnismál i Bandaríkjunum. Beiðnin hefur verið numin brott úr skeyti Kuniholms, sem prentað er að öðru leyti í skjala- útgáfu bandariska utanríkis- ráðuneytisins. Enga vísbend- ingu er þar að finna um, að úrfelling hafi átt sér stað. (Sjá Foreign Relations of the United States, Diplomatic Papers 1 941 Vol. II, Washington D.C.: U.S. Government Printing Off- ice, 1959, bls. 790). Hér er Marshall hershöfðingi í heimsókn í Hvalfirði og talar við nokkra liðsmenn af „góðum ættstofni . íslendingar fóru fram á, að hingað yrðu ekki sendar „litaðar hersveitir". Blökkumannahersveit á leið austur yfir Atlantshaf tekur lagið. Varnarliðið og mannréttindalög í stríðslok hvarf bandaríski herinn smámsaman frá íslandi, en sex árum síðar kom hann hingað á nýjan leik. Við gerð varnarsamningsins 1951 voru sömu kynþáttasjónarmið greinilega ríkjandi i rikisstjórn íslands; eftir nærveru blökku- hermanna varekki óskað. Haustið 1971 kom það til umræðu innan bandaríska þingsins, að íslendingar hefðu til skamms tíma meinað blökkuhermönnum íslands- dvöl. Varð þetta að blaðamáli i Bandaríkjunum. Blökkuping- menn töldu sig komast yfir heimildir þess efnis, að Banda- ríkin hefðu árið 1951 fallizt i þá ósk íslendinga, að engir blökkumenn yrðu i varnarlið- inu. Var þetta vandræðalaust af hálfu Bandarikjamanna allt fram til ársins 1964, þeg- ar mannréttindafrumvarpið, kennt við John F. Kennedy, náði fram að ganga á þingi. Upp frá þvi varð þaðæ erfiðara fyrir Bandarikjamenn að láta að vilja íslendinga. Hert var á reglum um kynþáttajafnrétti innan bandaríska hersins, og réttindamál blökkumanna voru í brennidepli á þessu tímabili.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.