Alþýðublaðið - 10.02.1922, Qupperneq 2
a
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Leikfétaq Weykjavíkui*.
Kinnarhvolssystur
verða leiknar i Iðnó föstudag og laugardag klukkan 8..
— Aðgöngumiðar verða seldir i Iðnó klukkan 10—12 og 2—7.
greinina ? Þessi aðferð var reynd
i Englandi við vcrur sem komu
frá Rússlandi, sem sovjetstjórnin
þar bafði gert upptækar án endur
gjaids. En það kom fyrir ekki.
Þeir sem komu málinu af stað
töpuðu.
En hér er alls ekki að ræða
um neitt svipaði Það er enginn
að tala um það hér, að þjóðin
eignist togarana án þess að borga
þá. Og hér er ekki um neina
byltinguað ræða; þetta getur farið
mjög íriðsamlega fram og gerir
það vafalaust, og það er svo sem
ekki komin verkamannastjórn hér
eða sovjet lýðveldi, þó þetta sjálf
sagða skref sé stigið. En svo gerir
það ekki svo mikið, þo auðvaldið
sepi upp um biltingu, Menn eru
orðnir svo vanir þeim skrækjum,
að þeir eru hættir að hræðast
þá. Og þeir verða ekki á neinn
hátt til þess að hindra það að
fleiri og fleiri skilji, að velferð fs-
lenzku þjóðarinnar krefst þess, að
togararnir séu gerðir að þjóðar-
eign.
Ólafur Friðriksssm.
jKorneinkasalan
og bæjarstjórn Isafjarnar.
Bæjarstjórn ísafjarðar heflr sam-
þykt svohljóðandi tillögu:
„Bæjarstjórnin er meðmæit frv.
til laga um heimild fyrir rfkis-
stjórnina til að taka einkasölu á
kornvöru, sem lagt var fyrir al-
þingi 1921, eða öðru frv. er
stefndi í sömu átt og einkanlega
styrkti iandsverzlunina.
Þó telur bæjarstjórnin 3. ástæðu
stjórnarinnar f greinargerðinni fyrir
frumvarpinu fremur aukaatriði."
Tiilagan var samþykt með 6
atkv. gegn 3.
Skemtun Sjámannafél. f Bár-
unni f kvöld verður mjög fjöi-
breytt. Söngflokkuriun „Freyja*
og söngfl. .Bragi* syngja, 2 menn
syngja einsöng, og annar þeirrá
heflr aldrei komið opinberlega
fram áður. Gamlar vísur verða
þar sungnar og leiknar af ágæt-
um kýmnileikara. S.
Jón Þorláksson og
Yatnsyeita Akureyrar.
Herra Þ. Þorkelsson hinn pund
vfsi f Reykjavfk hefír með grein
f Alþyðubiaðinu seint f októher
sfðastliðnum tekið að sér að vetja
skyssur Jóns Þorlákssonar við
byggingu vatnsveitunnar á Akur
eyri. Má það furðu gegna að
maðnr, sem falið er það vanda
sama og ábyrgðarmikla starf að
löggilda vigtlr og mælistikur kaup
sýsiumanna þessa lands, skuii leggja
út f það gersamlega ótera verk,
að ætia að réttlæta óhöpp J Þ
við nefndan starfa. Afleiðingin af
slfku er vitanlega hin sama og ef
sagt væri um skakka vigt að hún
væri rétt og rangan kvarða að
hann væri réttur. Maður, sem
kunnugri er vatnsveitu Akureyrar
en Þ. Þorkelsson, og þekkir til
verka J Þ. mælti við undirritað
an þegar hann hafði lesið grein-
ina í Verkamanninum um störf
J. Þ. við vatnsveituna hér: „Hún
er góð greinia yðar. Svona ætti
að rita um öli verk Jóns Þorláks
soaar." Þannig leit hann á þessi
mál, og hér norðurfrá, þar sem
rnenn eru kunnugir málavöxtum,
hefír enginn reynt til að andmæla
þeim ummæium, sem eg hefí haft
um mistök J. Þ. við byggingu
vatnsveitunnar.
Eg hefí enga tilhneygingu til
þess að segja annað um starf J
Þ. en það sem eg veit að er
sannast og réttast, en þótt eg sé
ekki skipaður af því opinbera með
þreföldum launum, eins og mælt
er að forstjóri löggildingarstofunn-
ar f Reykjavík sé, þá hvflir á mér
ifk skylda gagnvart verkfræðingn
um f Jóni Þorlákssyni eins og hvflir
á Þ. Þorkelssyni gagnvart gallaðri
pakkhúsvigt, fyrst eg hefl orðið
svo óheppinn að kynnast verk-
fræðingnum, en þó það sé að ein
hverju leyti óþægilegt fyrir verk
fræðingasamábyrgðina reykvfksku
að verka þeirra sé getið opinber-
Iega, verða þeir herrar að þola.
það bótalaust.
Steinpfpurnar rið llndlrnar.
Skopieg er hún sú vörn Þ. Þor-
kelssonar, að Jón Þorláksson hafÉ
ekki haldið þvf fram að steinplp-
urnar, sem notaðar voru við upp~
sprettulindir vatnsveitunnar þyrftu
endilega að vera frá einu sérstöku
félagi, þar sem hann (Þ. Þ.) veit
þó og viðurkennir að nokkru leyti
að ekki var nema eitt félag á
landinu, sem steypti steinpfpur, og:
þetta félag, sem J. Þ. var með-
eigandi f, var búið að steypa ptp-
urnar hér á Akureyri 1 eða 2 ár-
um áður en vatnsveitan var bygð,.
en fyrst hr. Þ. Þ. bendir á það*
að utnræddar steinpfpur hafí verið
búoar til hér á Akureyri á þeim
tfma sem gekk til undirbúnings á
byggingu vatnsveitunnar, og á
þann hátt kannast við þá fyrir-
hyggju J Þ. að hafa steinpípurnar
til á staðnum þegar byrjað yrðl
á vatnsveitunni, skal hreinskilni
Þorkels fúslega viðurkend Að
samskonar pípur hafi verið notað-
ar af ýmsum hér á Akureyri og
ekkert verið undan gæðum þeirra
kvartað, er ekkert annað en biekk-
ingar hjá Þ. Þ. Steinpípurnar hafa
hvergi hér verið notaðar sem vatns-
pfpur nema á umræddum staðc,
þar sem J. Þ. lagði á ráðin.
Þ. Þ. telur það afsakanlegt að
steinpfpurnar eru orðnar ónýtar
eftir 2 ár, af þvf að um geti ver-
ið að kenna efnasamsetningu vatns-
ins eða sýrum f jarðveginum þar
sem pfpurnar lágu, sem h&fi leyst
upp kalkið f pípunum En til hvers
eru hálærðir verkfræðingar, ef þeir
eiga ekki sð gera sér grein fyrir
þeim utanaðkomandi áhrifum, sem
verkinu getur staðið hætta af.
Hér var engin ástæða til að nota
steinpfpur fremur en járnpfpur
önnur en sú, að steinpípurnar
fiafa sennilega verið lítið eitt ó-
dýrari, og að gott var fyrir stein-
pípufélagið hans J. Þ. að selja
birgðir, sem það átti á Akurcyri.