Lesbók Morgunblaðsins - 10.08.1975, Blaðsíða 15
BÍLAR
ÁriS 1973 varð metár í banda-
riskum bílaiðnaði, en siðan hafa
þrengingar þessa iðnaðar verið á
almennu vitorði og þess hefur verið
getið ( 'fréttum. að verksmiðjurnar
ættu breiður sem tækju yfir marga
hektara af óseldum bflum. Jafnframt
hefur þess verið getið, að sölutregðu
hafi litið sem ekkert gætt á dýrustu
gerðunum: Lincoln og Cadillac til
dæmis. Sömu sögu er að segja af
stöðutáknum eins og Rolls Royce og
Mercedes 450.
Ástæðan er vitaskuld sú, að
upplag þessara flaggskipa er tak-
markað og þrátt fyrir samdrátt I
efnahagslifi, er fjöldi auðmanna
nægur i heiminum til þess að halda
framleiðslunni gangandi. Þess ber
einnig að gæta, að það eru ekki
einvörðungu auðmenn, sem kaupa
bila af þessu tagi; stór hluti fer til
efnaðra fyrirtækja, embættismanna,
ríkisstjórna og þjóðhöfðingja, jafnvel
i vanþróuðu löndunum.
Tvær bilgerðir, sem teljast ásamt
með Mercedes Benz hinar virðu-
legustu i heiminum, komu fram með
nýjar gerðir ( vor. Cadillac kynnti
útgáfu, sem aldrei þessu vant er
mun minni en tíðkast hefur og nefnd
Cadillac Seville. Og Rolls Royce,
sem kannski má telja stöðutákn
númer eitt meðal bila, kom fram I
dagsljósið með nýtt flaggskip og
trúlega dýrasta bil, sem nú um
stundir er fáanlegur: Rolls Royce
Camargue. Á Bandarikjamarkaði er
hann verðlagður á 70 þúsund dali og
til samanburðar má geta þess, að
hinn nýi Cadillac Seville verður
seldur á 12 þúsund dali og er með
dýrustu bilum, sem framleiddir eru
fyrir vestan.
CADIL.LAC
SEVILLE
Þessi nýja smækkaða Cadillac-
útgáfa er búin að vera lengi á leið-
inni, eða siðan 1970. Jafnframt hafa
hugmyndirnar tekið verulegum
breytingum. Fyrst hét hann „La
Salle" og við þá gerð var lokið vetur-
inn 1972—73. Að ytra útliti var sú
gerð mjög óskyld þeirri, sem siðan
varð ofan á. Þá hafði runnið upp fyrir
ráðamönnum hjá General Motors, að
beztu og eftirsóttustu lúxusbilar
heimsins voru ekki endilega stórir og
efnaðir kaupendur sneru sér sifellt
meir að Rolls, Jagúar, Mercedes eða
jafnvel Opel Diplomat.
NÝ
FLAGGSKIP
Það kom í Ijós, að þessir bílar voru
mjög viðllka stórir og sú ákvörðun
var tekin, að gefa Cadillac-
kaupendum kost á sambærilega stór-
um bil, búnum öllum hugsanlegum
lúxus og umfram allt virðulegum i
útliti.
í La Salle-útgáfunni virðist italska
linan hafa verið allsráðandi; linurnar
mjúkar og billinn rennilegur með
hlemm fyrir hálfu afturhjólinu og
mjög grönnum gluggapóstum. En
þessi gerð var söltuð og málið hugs-
að á nýjan leik. Það virðist hafa haft
sín áhrif, að um þetta leyti var
Mercedes Benz 450 eftirsóttasti
lúxusbill heimsins og allsráðandi við-
miðun. Svo rækilega virðist hann
hafa verið tekinn til fyrirmyndar, að
hinn nýi Cadillac Seville gæti eins
heitið Cadillac Benz. Þó er ein
undantekning: Þaklínan og aftur
afturpóstarnir eru ættaðir frá Rolls.
Bæði ytri og innri mál eru svo að
segja hin sömu og á Benz og Rolls;
línurnar eru kantaðar og stífar upp á
þýzkan máta, hringskorið fyrir hjöl-
um eins og á Benz og i rauninni
vantar aðeins hið klassiska Benzgrill
til þess að fullkomna verkið.
f upphafi var i ráði að nota
Wankel-vél og framhjóladrif, en
horfið var frá því til hefðbundinnar
tækni. Aftur á móti var i fyrsta sinn
notuð sérstök tölvutækni við rann-
sóknir á hljóðburði og titringi, og
aksturseiginleikar eiga að vera mjög
góðir. Ráðamenn hjá GM hafa sagt,
að þessi bill sé sniðinn fyrir fremur
ihaldssaman smekk; ætlaður þeim
sem ekki kaupir sér alltaf ný föt i
hvert skipti sem hneppingin breytist.
Og það er heldur ekki ætlunin að
gera á honum árlega andlitslyftingu,
eða „face-lift" eins og tiðkast hefur.
Sérfræðingar, sem prófað hafa
Cadillac Seville, telja hann ef til vill
hijóðasta bil, sem enn hafi verið
búinn til; i hægagangi heyrist alls
ekki i vélinni. Hann er framúrskar-
andi i beygjum, en tekið er fram, að
kappakstursmaður á braut mundi
finna, að hann stenzt ekki alveg
samanburð við Mercedes Benz 450
SE. Við venjulegan akstur finnst
hinsvegar enginn munur. Þótt útlitið
minni bæði á Rolls og Benz, er
mælaborð algerlega unnið sam-
kvæmt amertskum smekk og
Cadillac-hefð. Það ætti með öðrum
orðum skilið að vera skárra og verð-
ur að teljast ærið hvunndagslegt og
að þvi leyti gamaldags, að hraða-
mælirinn er láréttur.
Cadillac Seville tekur bæði mið af Rolls Royce og Mercedes Benz, Að neðan: Hinn nýi Rolls Royce Camargue.
ROLLS-ROYCE
CAMARGUE
Meðal lúxusbila hefur Rolls Royce
lengi haft þá sérstöðu að hann hefur
verið sér á parti um útlit; ekki áber-
andi likur neinum öðrum og aðrar
lúxusgerðir hafa heldur ekki reynt að
likjast honum nema óverulega,
samanber Cadillac Seville, sem áður
er lýst. Það sem einkennir Rolls
umfram flest annað eru einfaldar.
hreinar linur án skrauts og grillið
fræga, sem Rolls hefur notað frá
upphafi.
Þrátt fyrir merka hefð og mikið
stolt, var þetta nýja flaggskip Rolls
ekki teiknað hjá fyrirtækinu sjálfu.
Hér þótti við hæfi að leita samstarfs
við snjöllustu bilahönnuði heimsins
hjá (talska fyrirtækinu Pininfarina.
Sjálfsagt hafa þeir fengið sín fyrir-
mæli, enda sýnist árangurinn dyggi-
lega í samræmi við hina virðulegu
hefð. Verður að telja, að vel hafi
tekizt; Rollssvipurinn er óumdeilan-
lega á sinum stað og engar tilslakan-
ir á virðuleikanum. Samkvæmt hefð-
inni er harðviður i mælaborði og allir
mælar kringlóttir.
Það hefur lengi verið Rolls-venja,
að nefna hvergi vélarstærð. Aflið er
nóg — segja þeir aðeins. Vélin er 8
strokka, vatnskæld, búin tveimur
blöndungum. Drif er á afturhjólum.
Lengdin er 5,24 m.
Eins og venjulega staðhæfir Rolls
Royce blátt áfram, að þetta sé bezti
btll heimsins. Samkvæmt verðinu
ætti það líka að vera svo. Fram-
ieiðslan er takmörkuð; hver bill er
24 vikur á leiðinni gegnum verk-
smiðjurnar og þær unga aðeins út
einum slikum á viku. Þrátt fyrir
verðið er beðið eftir hverju eintaki.
Flaggskipið var kynnt á Sikiley, en
þar þykja vegir upp og ofan eins og á
fslandi. Sýnir það traust framleið-
andans að velja einmitt slikar að-
stæður til kynningar á bilnum. Þar
fékk þessi fini Rolls óvægilega með-
ferð þeirra, sem reynsluaka bilum og
skrifa um þá í bilablöð og bilaþætti
dagblaða. Niðurstaðan varð sú, að til
væru bilar, sem hefðu snarpara við-
bragð, væru enn hljóðari, með fullt
eins góða aksturseiginleika. En að
vafasamt teljist, að til sé bill, sem
svo vel sameinar hina beztu og eftir-
sóknarverðustu eiginleika.
Bensín og blóð
Framhald af bls. 13
Eftir þetta samtal átti ég erfitt með að taka þátt i
samræðum, átti beinínis erfitt með að vera kurteis, ég
varð smám saman reiður út í sjálfan mig og þessa menn,
sem sátu í kringum mig, mér fundust vera brögð i tafli.
Hver hafði svikið hvern? Hafði ég svikið sjálfan mig? Af
hverju hafði ég ekki þaggað andstöðuna innra með mér
niður og tekið þátt i leiknum? Eða reynt að horfa rólega á
og byggja upp framtíðina eins og vinur minn listaverka-
salinn, sem við vorum gestir hjá? Lifa á ástinni á föður-
landinu í fjarska!
Nei, ég hafði fengið aðrar taugar, ég var ekki þeir, ég
varð að horfast í augu við mín örlög, horfast i augu við
nautið — og til þess þurfti hugrekki.
Juan G.
M... 195...
María,
ég veit nú til hvers ég þarf hugrekki. Ég skrifaði
þér fyrir nokkru, að mér hafi verið ráðlagt að fara að
vinna fyrir aðra framleiðendur. Uppáhaldsbíllinn minn
er víst orðinn slitinn og þreyttur, en hann er nógu góður
til sins brúks.
Ég hef smám saman kynnzt veikleikum hans og lært að
varast þá. A beygjum liggur hann ekki eins vel á braut-
inni og skyldi. Ég finn, að ef ég færi yfir ákveðið
hraðamark, þá steypir hann sér. Ef hraðinn er nógu
mikill áður en ég kem að beygjunni og ég gef stýrið laust
á réttu augnabliki ætti kraftur hans að vera nógu mikill
til að ljúka lifi okkar beggja.
Þegar þú færð þetta bréf verð ég ekki lengur lifs. A
morgun er seinasta keppnin, sem ég tek þátt i.
Eftir nokkra hringi á góðum hraða stanza ég læzt þurfa
að gera við eitthvað, nægjanlega lengi til þess að allir
þeir sem eru næst mér komist fram úr. Ég stanza töluvert
langt frá knappri beygju, sem liggur vel við áformi minu,
þvi þar eru engir áhorfendur, það væri einstök óheppni
ef einhver yrði fyrir þegar vagninn steypist. Þegar þeir
eru komnir framhjá fer ég aftur af stað og kný vagninn
eins og ég get og gef ekki eftir á beygjunni og losa um
leið á stýrinu.
Þeir munu segja á eftir, að hinn mikli fullhugi og harði
keppnismaður hafi ætlað að vinna upp tímatap sitt, en
slæmur vagn og ofdirfska hafi riðið honum að fullu.
Vertu sæl María
og þakka þér fyrir.
Juan G.
©