Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.1976, Page 11

Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.1976, Page 11
hefur lokið hrygningu. Minna hlutfallslega á vertíð. En þess vegna m.a. eyddi ég svo miklu máli I að skýra frá mergð hrogna, sem komu I sjó — ef allur fiskurinn hrygndi, að allar llkur benda til að fæðuskortur einn, eða aðallega, valdi dauða seiðanna. Ef veiðin dreifist á lengri tima, og það, sem sleppur af hrognafiski er þá nógu dreift, sýnist mér minnkuð hætta á að seiðin éti strax allt sem til er af þeirri afar sérgreindu fæðu sem hentar þeim, og drepist svo öll. Hinn minnkaði floti dregur úr líkum fyrir ofveiði hrygningarfisks. Veru- legur hluti hans — hrygningarfisksins — sleppur, en veiðarnar halda áfram eftir vertlðina — því fiskurinn fer ekki frá landinu. Hann aðeins færir sig á meira dýpi. Verkefni vinnslustöðva verða jafnari yfir allt árið, og þess vegna geta vinnslustöðvarnar verið nokkru minni en ella, einnig fiskihafnir. Ég er andvigur þeirri stefnu að friða til dæmis fyrir netaveiði eins og nú er gert viss „hrygningarsvæði". Nei, það á að stilla veiðum þannig i hóf um allt svæðið, að alstaðar komi nokkurt magn hrogna I sjó — þvi hvert eitt lítið svæði, sem byði upp á réttu skilyrðin hina örlagariku daga kviðpokaseiðisins, gæti orðið til þess að stór árgangur fengist. Hér er sem sé um að ræða niðurstöðu af þvi, sem ég áður vék að I sambandi við friðun á hrygningarfiski. Einmitt nú vill svo til, að stór árgangur er I upp- vexti, sá frá 1973, Nú þyrfti að bregða skjótt við og hætta öllum dragnótaveiðum og trollveiðum fyrir norður- og austurlandi, og hefjast strax handa við uppbyggingu iðnaðarstöðvanna. Nóg eru verkefnin. Kotrassabúskapur á sjónum — samkvæmt nú-stefnu Nú væri eðlilegt að gera grein fyrir þeirri stað- hæfingu miniíi að nú-stefna sé fátæktarstefna. Þetta skýrist þannig, að ef ekkert er aðgert, þá veiða norðlendingar og austfirðingar uppeldisfiskinn þann- ig að aldrei kemur framar vertið (svo heitið geti) við Suður- og Vesturland. Og norðlendingar og austfirð- ingar verða sjálfir fisklausir að kalla innan ekki langs tíma. Sífelldur halli verður á útgerðinni. Hún verður ,jaðargrein“, jaðaratvinnuvegur, eins og verstu kot- rassar í útjöðrum byggilegra svæða. Útgerðin mun krefjast styrkja af almannafé og hún mun fá þá sbr. að tapið á togaraútgerð Reykjavíkur, sem nú er hluti af útsvörum okkar — og sbr. greiðslur úr Ríkisábyrgðasjóði vegna togara, sem áreiðanlega fellur á skattþegnana og verður greitt beint eða öbeint i sköttum eða lækkuðu kaupi — þ.e. með almennri kjaraskerðingu. Ekkert fé verður handbært til að koma upp nýjum smáiðnaði, sem mun leiða til atvinnuleysis og land- flótta. Lánamöguleikar þjóðarinnar hljóta að þverra smátt og smátt. En hvers vegna fara þá ekki deilitekjurnar niður fyrir 85 milljarða, kann einhver að spyrja, þegar tap er á sjálfum aðalatvinnuveginum. Nei, þær fara varla mikið neðar, vegna vissra hag- fræðilegra lögmála um svonefndar jaðar-tekjur I rekstri. Stöku skip mundu alltaf bera sig og landbúnaður og iðnaður gefur áfram sitt i þjóóarbúið — og stóriðjan gefur svolítið — og fleira kemur til. En fólkinu fjölgar og heildardeilitekjur skiptast milli fleiri og fleiri — og þegar ekkert er aflögu til uppbyggingar, þá helst fátæktin. Fátæktarstefnan ræður og þróast. Keðjan „Hagkeðjan“ heldur ekki átaki nema allir hlekkirnir séu með. ^ Nú gæti vel verið að ýmsir segðu sem svo: Sumt af þessu er rétt. Eftir því skal farið, en öðru ekki. Þetta er misskilningur. Hér er um orsakakeðju að ræða. Samverkan, milli-verkan. Einn hlekkurinn má ekki bresta, því þá heldur keðjan ekki átaki. Það er t.d. ekki hægt að krefjast þess af norð- lendingum að þeir hætti að drepa smáfisk, nema þeir fái eitthvað I staðinn. Einn hlekkur keðju sem bilar, gerir hina gagnslausa. Ég er þeirrar trúar, að alveg ný og betri viðhorf mundu skapast I þjóðlifinu við breyt- inguna. Viðhorf, sem gerðu þjóðinni fært að líta með bjartsýni til framtíðarinnar. Fólkið I landinu getur ráðið því, hvort hér ríkir fátækt og erfiðleikar og bráðabirgðalausna-brask, eða traust velmegun. Þessu getur þjóðin ráðið með ákveðinni kröfugerð til þingmanna sinna og ríkisstjórnar sinnar. Með kröfu um skynsamlega og röggsama stjórnun — sam- kvæmt nýrri stefnumörkun. VIBast um lönd dró mjög úr sölu á eyðslu- frekum bllum þegar olluverSið hækkaði, — nema ð fslandi. Þar kom mikill fjörkipp- ur I sölu ð ýmiskonar lúxusjeppum, sem eyða milli 20 og 30 lltrum á 100 km. BÍLAR Olíukreppan og bTlaiönaðurinn Á dögum olfukreppunnar var mikil svartsýni rfkjandi og þvf var mjög á loft haldið að senn væru olíubirgðir heims- ins á þrotum. Þegar frá leið reyndist olfukreppan verð- sprenging, sem fyrst og fremst hefur valdið gffurlegri kostnaðaraukningu og verð- bólgu f flestum hinum vest- rænu löndum. Á hinn bóginn er þvf nú haldið fram, að nóg sé til að olfu í næstu framtfð, enda til komin ný olfusvæði með stórkostlegu magni, svo sem við Noreg og jafnvel f Norður-fshafinu. Olfukreppan hafði samt mikil áhrif á bflafram- leiðsluna. Dregið var úr hinni fáránlegu eyðslu bandarfskra Nýr 12 strokka Jagúar E-módelið af Jagúar hefur verið framleitt óbreytt nokkuð lengi og hefur sá bfll alltaf vakið mikla athygli og þótt sér- stæður í flokki alvöru sport- bfla. Það sem einkenndi Jagúar E-móel öðru fremur var hin geysilanga vélarhlff og húsið alveg aftast. Sú gerð var framleidd bæði með 8 strokka og 12 strokka vélum og hámarkshraðinn var allt uppf 280 km á klst. Sýnist sá hraði nokkuð út f hött, þegar f fjöl- mörgum löndum er búið að steja ströng hraðaákvæði. Á dögum olfukreppunnar voru þessi ákvæði sett til þess að bfla eftir að verulega dró úr sölu á þeim og þó kemur bensfnverð Iftið við buddu hins bandaríska biTeiganda samanborið við það sem tfðkast hér. Bensfnlftrinn f Bandarfkjunum kostar um það bil þriðjung af þvf sem hann kostar hér. En Bandarfkja- menn eru þó f fyrsta sinn farnir að framleiða fremur litia bfla, þótt ekki séu þeir eins\litlir og sparneytnir og smæstu Evrópubflarnir. Þvf var slegið föstu f fyrra og hitteðfyrra. að dagar stóru drekanna væru nú taldir að fullu og öllu. En nú er helzt að heyra að sala á þeim hafi mjög glæðzt að nýju enda fjöldi manns þar vestra sem alls ekki vill aka á smábflum. spara eldsneyti og sfðan hefur þeim ekki verið breytt. Þótt Jagúarinn væri f rauninni orðinn klassfskur bfll, þótti tfmabært að endur- nýja hann og nú er fáanleg ný Olfukreppan virðist hins- vegar lftil áhrif hafa haft á hina evrópsku bflafram- leiðslu, enda lftið um eyðslu- fanta f þeim flokki Efnahags- kúrfan f hinum vestrænu löndum bendir nú til bata og eftir eitt framúrskarandi mag- urt ár, eru bflaframleiðendur bjartsýnir á betri tfð. Áð öllum Ifkindum er verð á miðlungs- bfl hvergi f heiminum eins fáránlega hátt og hér á tslandi. Eftir mikinn bflainnflutning árið 1973 hefur verð á mörgum gerðum þrefaldazt og má segja að slfkt verð samsvari inn- flutningsbanni. Eins og sakir standa eru þó sáralitlar eða engar lfkur til þess að breyting verði þar á. gerð, Jagúar \J-S sem búinn er 12 strokka vél. Talsverð breyting hefur átt sér stað á útliti cn engu að sfður hefur hönnuðunum tekizt að halda f þann gæðingssvip, sem löng- um hefur einkennt Jagúar. Engar likur eru i þvi. aS nýi Jagúarinn eigi eftir aS sjást & íslandi. Þrátt fyrir erf iðleika, hefur Jagúar jafnan tekizt aS halda sæti slnu I gæSingaflokki. Ný afturbyggö gerð af Citroen Cx Á bflasýningunni i Parfs, sem haldin var seint á sfðasta ári, vakti mikla athygli aftur- bvggð gerð eða „station" gerð af hinum nýja Citroen CX, sem kynntur var á sfðásta ári og hefur verið fluttur hingað til lands f einhverjum mæli. Af hinum gamla Citroén DS var til afturbyggð gerð, sem alltaf var mjög ólánleg. Aftur á móti virðist að nú hafi tekizt að hanna bráðfallegan bfl, sem ætti að hafa mikið innra rými. Hinn nýi afturbyggSi Citroen CX er miklu betur teiknaSur en „station" útgáfan var af gamla bllnum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.