Lesbók Morgunblaðsins - 08.02.1976, Page 4

Lesbók Morgunblaðsins - 08.02.1976, Page 4
Einar Þorsteinn Ásgeirsson arkitekt Nútíma tœkni og neyzluþjöðfélagið hafa T för með sér gífurlega söun ð hrðefnum og verð- mœtum. Hér segir frö tilraunum i þð öff að nýfa ýmsar umbúðir sem byggingarefni Þaö er engin ný bóla aö byggö séu íveruhús úi úrgangsefnum. Þeir sem ferðast hafa um þriöja heiminn þekkja fbúðarhverfi þeirra milljóna sem reist hafa sér húsaskjól af vanefnum úr sann- kölluöum vanefnum, sem með vestrænum augum séð flokkast undir RUSL. En þaö er vföar en f þriöja heiminum, sem byggt er úr úrgangsefnum: í Japan hefur samanþjöppuöum úrgangsefnum veriö komið fyrir sem undirstöðum undir húsbyggingar. Reistar hafa verið byggingar úr brennisteins-steinsteypu, en hrcnnisteinn er aö verða að úrgangsefni, sem fæst við hreinsun jarðgass og jaröolfu. I Kaliforníu hafa veriö framleidd bvggingarefni úr mykju og glerbrotum, en við sambræðslu þessa við hátt hitastig fæst góður byggingarsleinn, scm hefur hált einangrunargildi. Þá hefur annar kaliforníubúi framleitt byggingarstcin úr samþjöppuðum pappfrsúrgangi og gefist vel. Ifér á landi hcfur m.a. veriö notaður vfnberjalunnukorkur ti einangrunar húsa. Og alla tfö hafa umbúðir utan af stórum tækjum, eins og bílum, sem fluttir hafa verið inn hérlendis, þ.e. trékassar, veriö notaðir til hús- bygginga. hér. Á seinni tfmum eftir að mengunarvandamál komust f hámæli, kom á ný fram sú hugmynd aö nota hvers kyns iðnaðarúrgang, einkum þó umbúðir af öllum gerðum til húsbygginga. Þessi hugmynd var þó ekki tekin alvarlega fyrr en menn gerðu sér Ijóst hversu gífurlegl magn það er, sem safnast fyrir af umbúðaúr- gangi árlega. í Bandaríkjunum var það 1971: 20 milljarðar tonna af pappfrsumbúöum, 30 milljarðar gleríláta, 40 milljarðar dósa af ýmsum gerðum og 5 milljón tonn af plastflátum. Nýjar endurbætur á þessari gömlu hugmynd ná þó langt fram fyrir þá einstaklingsbundnu hugkvæmni að notfæra sér þá © trékassa sem til falla til húsbygginga. En þær felast f þvf að hanna ílátin strax f byrjun fyrir fleiri en eina notkun. Mörg stór fyrirtæki hafa sýnt þessu máli áhuga í scinni tíð. Einkum eru það slfk, sem framleiða dósir og flöskur úr plasti, gleri, áli og járni. Þessi ílát má framleiða sjö til tíu sinnum hraðar en venjulega múrsteina og gnægð þeirra er óendanleg. Kostnaðinn við framleiöslu þeirra borga f öllu falli neytendurnir og þvf eru þeir að réttu eigendur úrgangsins. Eins og nú er kærir sig nær cnginn um að safna að sér slfkum „eignum". Öllu heldur er þeim dreift um allar jarðir umhverfinu til stórlýta og borgaryfirvöld- um og þar með borgurunum sjálfum til mikils kostn- aðarauka í sorphreinsun og sorpgeymslu. Hugmyndin um endurnýtinguna felur því í sér að slá tvær flugur í einu höggi. En að sjálfsögðu er ekki nóg að hlaða slfkum umbúðum saman f jafnvel nokkuð álitlegan haug og bjöða svo mönnum að gera svo vel: Ilér er nýja húsið þitt. Ansi er hætt við að ýmsum þætti slíkir fveru- staðir Ijótir. En það cr sannast mála að enginn vill spara fé til þess húss, sem hann á að búa f, cf það leiðir af sér, að húsið komist nálægt því að verða ljótt f hans augum. Með þvf að hanna umbúðirnar í byrjun með það í buga að eftir tæmingu þeirra verði þær að byggingar- efni, má ná mun heillavænlegri árangri á þessu sviði. Hér er komið gott hönnunarverkefni fyrir okkar ágæt- ustu hiinnuði innanlands og utan. Verkcfni.sem leysir erfið vandamál um allan heim, en ekki aðeins fagur- fræðitækni fyrir fáa útvalda. Út á þessa b' 'it hefur bjórfyrirtækið Heineken farið, en það ). .rtæki er Islcndingum að góðu kunnugt. Alfred Heineken eigandi fyrirtækisins datt niður á þetta eins og fleiri, er hann heimsótti borgina Curacao í Miðameríku. Umhverfið þar var allt útbíað af tómum Ileineken bjórflöskum. Er hann sneri heim á ný fékk hann Habraken, sem nú er nýverið orðinn yfirmaður arkitektadeildar MIT f Bandarfkjunum, til þess aö hanna bjórflöskur, sem nota mætti f staö múrsteina. Verkefnið, sem ncfndist VVOBO var unnið á árunum 1962—65, en í lok þess tímabils var fyrsta húsið reisl af þessari gerð. Þetta hús var hugsað sem íveruhús í þriðja heiminum. Vegna hugsanlegra vandamála, sem markaðsráðgjafar fyrirlækisins sáu fyrir, en að öðru Ieyti er ekki unnt að upplýsa( fór flaskan aldrei út á markaðinn. En vcnjulegar Heineken bjórflöskur hafa hinsvegar verið notaðar til húsagerðar á vegum einstaklinga. WOBO verkefnið er þó það, sem lengst hefur verið komist að hanna umbúðir fyrir tvöfalda notkun. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum er húsið ekki ósnoturt að útliti. Fyrir fslenzk augu mætti jafnvel nota það sem sumarbústað. Sérkenni flöskunnar sjálfrar eru þau, að hún er flöt á tveim hliðum, þar sem siimuleiðis er komið fyrir tökkum til festingar f Heil fjöll af umbúBum. Á þaS allt a8 fara á haugana, eða er unnt að nýta umbúðirnar betur en gert hefur verið.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.