Lesbók Morgunblaðsins - 22.02.1976, Síða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 22.02.1976, Síða 5
•vrv-vs-'"• ! ■1 J j;;j U Þessi mynd er tekin eftir endilangri sjávar- götunni á Litlu-Háeyri. Öll býli á Eyrarbakka höfSu slna ákveSnu leið til sjávar, á timum árabátanna, bæði til fiskifanga, sölvatekju og þangskurðar. Sá, sem myndina tók, hefir staðið þvl sem mest I sjógarðshUðinni. Litlu-Háeyrarhúsið, með kvistinum, var byggt 1932, af þáverandi ábúendum Guðjóni Jónssyni og Jóhönnu Jónsdóttur. Heima á hlaðinu fyrir miðri mynd, eru skemman og heyhlaðan. Næsta hús til vinstri heitir Frambæjarhús, það var byggt fyrir slð- ustu aldamót, af Jóni föður Sveinbjarnar Jónssonar hæstaréttarlögmanni I Reykjavik. Húsið þar næst sömu megin heitir Eyri byggt um 1910 af Sigurði Glslasyni, sem seldi það svo Guðfinni Þórarinssyni, sem bjó þar slðan ásamt konu sinni Rannveigu Jónsdóttur. Næst er Suðurgata, sem Sigurður byggði llka og bjó I um tima, siðan hafa ýmsir átt það og búið þar. Hinum megin við götuna er svo eitt Ibúðarhús, það er byggt 1907, af Þorbirni Hjartarsyni, sem bjó þar ásamt Ellnu Páls- dóttur konu sinni, meðan þeim entist aldur, nú býr þar dóttir þeirra Geirlaug. Hús þetta stendur fast við götuna og heitir Akbraut. Nafn þetta er táknrænt að þvi leyti að á þessum árum var gatan að breytast frá þvl að vera klyfjalestagata I akbraut. með tilkomu hestvagnanna, sem þóttu mikil samgöngubót. Næstu hús báðum megin eru svo fjárhús frá Litlu-Háeyri og ýmsum nágrönnum. Á neðri myndinni sjást sömu hús frá aðeins öðru sjónarhomi. þegar sú kynslóð er gengin, sem nú gerir sér þau að góðu. Kannski eru þau of lftil og kannski eru þau ekki nægilega vel einangruð og á einhvern annan hátt lakari mannabústaðir en nútfma hús eru. Ég veit það varfa; þð er ég sjálfur uppalinn f sveit f einu af þessum bárujárnsklæddu timbur- húsum, sem byggð voru á kreppu- árunum og held að það hafi hvorki verið kaldara né að öðru leyti lakara en gengur og gerist um hús. Aftur á móti búa hús af þessu tagi yfir sérstökum töfrum, sem vart verða fundnir f steinhús- um. Það brakar kannski cilftið meira f þeim og brestur f stór- viðrum, en bárujárnið hefur þann kost, að þessi hús halda vatni. Þar eru yfirleitt ekki hafðir balar á stofugólfunum. Þegar leið mfn hefur legið um þorpin á ströndinni, Eyrarbakka og Stokkseyri, á undanförnum árum, þá hef ég tekið eftir þvf, að ég lít þau nú f allt öðru ljósi en ég gerði um tvítugsaldur á Selfossi. Lfklega hefði mér þá þótt sjálf- sagt að jafna þetta allt við jörðu og byggja almennilega stein- kassa. Nú finn ég hinsvegar, það sem ég skildi ekki þá, að þessir bæir hafasál. Það er meira en hægt er að segja um flest af þvf, sem byggt er á vorum dögum f krafti marg- falt betri efnahags. Ég fann þetta vel f sumar eftir að hafa glaðzt yfir þvf umhverfi, sem auganu mætti á Eyrarbakka. Að vfsu var aðalgatan holótt og frekar fáir á ferli, en það var hressandi að kenna seltuna frá fjörunni; sjá alla kartöflugarðana með hlöðn- um grjótveggjum f kring, sum- staðar rænfang ellegar gras og nóg af rabarbara, sem allsstaðar virðist vera hægt að rækta. Allt virðist þetta sem betur fer hafa verið byggt áður en reglu- stikan var upp fundin. Göturnar gætu upphaflcga hafa verið göngustfgir eða slóðar, sem sveigðust eftir þvf sem landslagið bauð, — og það megineinkenni hafa götur á Eyrarbakka ennþá. A eftir lá leiðin upp að Selfossi, sem hvorki er ver né betur byggð- ur bær en gengur og gerist f sam- tfmanum. Megnið af bæjar- stæðinu er að vfsu marflatt og kannski verður þá enn auð- veldara að byggja samkvæmt Iög- málum reglustikunnar. Þarna eru þráðbeinar götur og nýbyggð hús. Samt skortir með öllu þá töfra, sem ég fann í svo rfkum mæli á Eyrarbakka. Þá vaknar sú spurn- ing, hvort vélaöldin og tæknin hafi komið í veg fyrir að hægt sé að byggja samsvarandi mann- eskjulega og gert var af vanefn- um fyrr á öldinni, — eða hvort vera kvnni, að útlitið skánaði eitt- hvað með árunum. Atakanlegt dæmi um þetta er að finna f Hafnarfirði. Kannski er hvergi til á landinu öllu fallegri byggð gamalla húsa en f hrauninu við Hafnarfjörð. Hraunið myndar sjálfkrafa svo fagra tilbreytingu f byggingarstæðin, að unun er á að horfa. En hvað gerist svo á tækni- öld? Jarðýtan kemur til sögunnar og öllu þvf fegursta sem náttúran lagði til málanna er skóflað út — gert að grárri jafnsléttu undir rnalbik. Gfsli Sigurðsson. ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.