Lesbók Morgunblaðsins - 07.03.1976, Qupperneq 10
TRÉ-
RISTUR
EftirElfasB. Halldörsson
listmölara á Sauöárkröki,
sem munvera einisköla-
lœröi mölarinn f myndlist,
sem búsetturerutan höfuö-
borgarsvœðisins og hélt ný-
lega sýningu á verkum sfnum
fNorrœnahúsinu
Svo að segja allir myndlistar-
menn þjóðarinnar, sem eitthvað
láta að s(*r kveða, hafa kosið sér
búsetu I Revkjavík eða á höfuð-
borgarsvæðinu. Þeir hafa fundið
að það hefur sína kosti; auðveld-
ara er að fvlgjast með sýningum,
hægara að ná í efni svo eitthvað
sé nefnt. Af þeim myndlistar-
mönnum sem segja má að ástundi
alveg skóluð vinnubrögð, býr að-
eins einn og starfar úti á landi svo
ég viti. Það er Elfas B. lfalldórs-
son á Sauðárkróki, sem nýverið
sýndi verk sfn f Norræna húsinu.
Elfas er fæddur 1930 á Borgar-
firði evstra, nam mvndlist hér og
við akademíuna f Stuttgart. Af
atvinnuástæðum barst hann
norður til Sauðárkróks fyrir 12
árum, þar sem hann hélt áfram að
fást við myndlist eftir þvf sem
tfminn leyfði. Honum fannsl
hann komast að raun um, að það
var ekkert verra að starfa sem
málari norður f landi, þegar frá
er talið, að maður getur ekki
hlaupið út f búð eftir lérefti eða
blindrömmum, þegar á þarf að
halda — og hann hefur að sjálf-
sögðu færri sýningar en hann
hefði kosið ella.
Með tfmanum hafa aðstæð
urnar breyzt f þá veru, að nú
hefur Elfas miklu rýmri tfma til
að helga sig mvndlistarstörfum
og vinnur jöfnum höndum að
oifumálverki, tréristum og pastel-
mvndum, sem gjarnan verða til
úti f náttúrunni. Að öðru levti er
mvndefni Elfasar aðeins óbeint
úr umhverfinu. Sauðárkróki
bregður þar ekki fyrir, en lands-
lagsmálverkin eru mjög stíl-
færðar útgáfur af ströndum ög
fjöllum Skagafjarðar. Kostirnir
við að búa og starfa norður þar,
segir Elfas að sé næðið, sem hann
hefur þar og auk þess sé mikill og
lofsverður mvndlistaráhugi á
Sauðárkróki. Elfas hefur haldið
þar fimm einkasýningar, en áður
en hann sýndi f Norræna húsinu f
febrúar, hafði hann haldið tvær
einkasýningar f Reykjavfk, 1960
og 1967, f bæði skiptin f Bogasaln-
um.
Þrátt fvrir sérstætt umhverfi og
nálægð stórbrotinnar náttúru, sér
þess ekki beinlfnis stað f mvnd-
um Elfasar. Honum er abstrakt
útfærsla mjög hugleikin og stór
hluti af olfumálverki hans gefur
helzt hugmynd um samspil alls-
kyns staura, sem Iiggja á tvist og
bast og sjálfur kallar hann þetta
ramböld. Þetta er mvndefni af
því tagi, sem maður gæti fundið
hvar sem væri, jafnvel upphugsað
á vinnustofu. Eftir 12 ára dvöl
fyrir norðan átti ég von á að sjá
augljósari dæmi um, hvar málar-
inn hafði alið manninn, en þau
sáust ekki beinlfnis þarna. Lands-
lagsmvndirnar voru tæpast stað-
bundnar, heldur stflfærðar svo,
að þær gátu nánast verið málaðar
hvar sem var. Hinsvegar ber að
undirstrika, að hjá Elfasi cr
enginn viðvaningsbragur sjáan-