Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.1976, Blaðsíða 15
ALDREI fór svo að við forfrömuSum'st ekki
dálitið og fengjum flugvélarræningja í heim-
sókn. Slík mál er vitaniega fráleitt að hafa í
flimtingum og þarf ekki annað en hugsa til þess
að ræningjarnir bera ábyrgð á að maður lét lífið
og aðrir slösuðust. í véinni sjálfri mun engan
hafa sakað en ekki þarf mikið hugmyndaflug til
að geta sér til um, hvernig líðan þessa blessaða
fólks hefur verið meðan flugvélin flengdist til
og frá og farþegar vissu ekki annað en ræningj-
arnir væru með sprengjur í fórum sínum og þvi
gæti allt sprungið i tætlur ef eitthvað færi
úrskeiðis. Flug vélanna yfir London og Paris i
minni hæð en litlum vélum mun leyfilegt að
fljúga yfir Reykjavík er glæfralegra en tali
tekur.
En svo tók þetta allt saman enda sem betur
fór og í Ijós kom að ekkert var óeðlilegt við að
fólkið skyldi komast óáreitt um borð í vél sina i
New York, þar sem sprengjurnar allar reyndust
vera úr leir og hættulausar með öllu. Auðvitað
var sjálfsagt að viðhafa alla gát. En ekki get ég
neitað því að ofurlítið ankannalega hljómar það
fyrir eyrum nú um helgina i fréttum af móttöku
vélarinnar á Keflavikurflugvelli að þar hafi verið
unnið samkvæmt áætlun sem gerð hafi verið
fyrir nokkrum árum. Áætlun þessi var gerð
þegar til tals hafði komið að ræningjavél lenti
hér en úr varð ekki. Áætlunin reyndist eins og
bezt verður á kosið, segja semjendur hennar og
þeir sem stjórnuðu framkvæmd hennar. Og svo
reynir maður að fá að vita i hverju þessi flókna
flugránsáætiun er fólgin, sem gafst svona
Aðgegna
og vera
fljöturaðþví
prýðilega. Hún fólst meðal annars i þvi að hafa
ránsvélina sem lengst i burtu, sagði einhver
hinna visu stjórnenda. Og leikmanni er spurn:
þurfti að semja flókna áætlun til að komast að
þeirri greindarlegu niðurstöðu. Og i öðru lagi
var ekki ræningjunum sjálfum akkur í að vera
sem lengst úti á braut, svo að þeir hefðu yfirsýn
yfir næsta nágrenni og gætu sjálfir stjórnað
umferð i grennd við vélina? Að öðru leyti varð
ég að minnsta kosti litlu nær um þessa áætlun,
en flugránsnefndin ákvað að koma sérstaklega
saman til að ræða niðurstöður og árangur
hennar, svo að þetta virðist vera meiri háttar
áætlun. í fljótu bragði virðist áætlunin snúazt
um það að gera allt ósköp samvizkusamlega
eins og flugræningjarnir lögðu fyrir, færa þeim
eldsneyti og sigarettur, samlokur og kók og
stússa í þvi fyrir þá að koma áróðurs-
bæklingunum þeirra rétta boðleið. Um hundrað
manns tóku þátt i framfylgd áætlunarinnar og
höfðu yfrið nóg að gera að því er manni skilst.
En hvað stóð i áætluninni um það ef eitthvað
hefði borið út af. Ef ræningjarnir hefðu verið
með alvöruskotvopn. Ef þeir hefðu byrjað skot-
hrið að mönnunum sem komu að vélinni af þvi
að ræningjunum hefði virzt þeir eitthvað tor-
tryggilegir. Ef við hefðum ekki gegnt þeim
þegar beðið var um að færa töskurnar með
plöggunum þeirra á milii véla? Að ekki sé nú á
það minnzt hvað stóð í áætluninni um það ef
einhverjir ræningjanna hefu ákveðið að gefast
upp og biðja um hæli sem pólitískir flótta-
menn?
Sem sagt, það sem almenningur hefur
hingað til fengið að vita um ,'aætlunina" er að
gegna og vera fljótur að því. Frakkar voru með
tregðu og leyfðu sér að hóta öllu illu. Þeirra
áætlun hefur verið eitthvað snúnari en okkar.
Flugrán eru alvörumál F hæsta máta. Og þá
væri IFka ráð að flugránsnefndin væna sýndi
viðlFka alvöru ef þetta á eftir að endurtaka sig.
Fullyrðingar um áætlun sem virðist ósköp
mikið innantómt snakk vekja ekki með mér
neina virðingu og þökk fyrir frábær störf, nema
siðursé.
Jóhanna Kristjónsdóttir.
Krossgáta
Lesbókar
Morgunblaðsins
Lausn
á síðustu krossgátu
kj.: ( V (>. / ■ v'io - KitrP- $1CÓ- S>ý'F?fl- KVen- NÞiFM Rg* upu- IWfiVup v'ATN HCB- ucí’t.
s 5 s ca: m lÖNdL «1 C 1 0 1 L 1- A| /
’ ua A K u R e y * i Hfllíp xrf. <• 0 L A
rirót v'l! 5 o z) álCFAH i\ J F t ’A N :t L
kiry Æ T A a wr> i U L L A T R i ö 1
í( L A C A R P L J 'o T • u R ð é N
M i í > A i L A R hlj. 'o W:í * & b T A N A
l n • i t &- iinO <k A S 1 'A 5 r A R Ö 9 U R
f L 'y'!-’.’' H H H H A N Ke í' i f' K 1 R N A N
M NC- \j mv s K a H A IW R A K M N < A K u £
f? AAHC,- Uft 0 3> R 'o HLUÍfl z eif' N N ffiUL A ú N
|M A.M | Af. i L L A R Tu T s g 1 <k £ L N A
I 1 | vW- R A U L ( R 3.'TA!r- K L r A S T A F
0 l* Ð A R K T ‘o L t N N ■
‘A Q Cl £> a b. A U A H A£