Lesbók Morgunblaðsins - 04.06.1978, Qupperneq 3
opinbera; þeir eru nú orönir u.þ.b. 27%
opinberra starfsmanna og lætur þaö
nærrri hlutfalli þeirra í þjóðinni. Þá var
þaö og leitt í reglur fyrir nokkrum árum,
aö allir opinberir starfsmenn sambands-
stjórnarinnar skyldu vera mæltir á
frönsku. Einnig, aö áletranir á umbúöum
neyzluvarnings skyldu vera á málunum
báöum, ensku og frönsku, og fleira mætti
nefna, þótt í litlu sé, sem Trudeau hefur
efnt til í því skyni aö efla samkennd meö
þjóöinni.
Hann viöurkennir þaö, aö Kanadamenn
af frönskum ættum, einkum Quebecbúar,
hafi veriö beittir ýmislegum órétti fram aö
þessu og kröfur þeirra um aöskilnaö séu
skiljanlegar. Hins vegar ætlar hann sér aö
halda þjóöinni saman hvaö sem í skerst.
Hann heldur því fram, aö vandinn veröi
ekki leystur meö viðunandi hætti nema í
sameiningu, og yrði þaö ekki til góös að
Quebecbúar fengju heimastjórn. Hann
gerir greinarmun á “góöri þjóðernis-
hyggju" og “slæmri þjóöernishyggju”: í
hinni fyrrnefndu felst þaö, aö franskætt-
aöir og enskættaðir viöurkenni menning-
armun sinn en komi sér saman um eina
landstjórn. Hins vegar er þaö slæm
þjóöernishyggja aö vilja skipta ríkinu í
tvennt. Ýmsir hafa bent á þaö, aö svo
virtist sem Trudeau þekkti illa vilja sinna
manna, Quebecbúa. Þeir vilji nefnilega
ekki aöskilnað, flestir hverjir a.m.k. En
þeir sætti sig ekki heldur viö ríkjandi
ástand. Og þeir séu mótfallnir hugmynd-
um forsætisráöherrans um breytingar. En
hann viröist ekki hafa áttaö sig á þessu.
Mest hefur Trudeau þó veriö gagnrýnd-
ur fyrir efnahagsráöstafanir sínar. Þekktur
hagfræöingur kanadískur lét svo ummælt,
aö „Trudeau virðist veitast ákaflega erfitt
aö skilja hagmál. Honum þykir t.d. meö
ólíkindum aö hiö stórfellda atvinnuleysi í
landinu geti veriö aö kenna stefnu
stjórnarinnar; og er það einlæg trú hans
aö atvinnuleysi sé jafnan aö kenna leti og
ómennsku verkamanna. Hann heldur því
líka statt og stööugt fram, aö þeirri milljón
manna, sem nú er atvinnulaus, standi
næg vinna til boða. Þó eru sannanlega
ekki nema 80 þúsund störf laus í landinu.
Manni sýnist gild ástæöa til þess, aö
forsætisráðherrann fari aö rifja upp
stæröfræöina sína“.
Trudeau hefur auövitaö ýmis svör á
takteinum viö gagnrýninni. Hann ber fyrir
sig „ástandiö í heiminum" í efnahagsmál-
um, en kennir þjóðernisflokki franskætt-
aöra í Quebec, og Levesque, foringja
hans, um deilurnar í þjóöernismálinu.
Hann er reyndar sjálfur franskur í aöra ætt
eins og nafniö bendir til: Pierre jelliott
Trudeau, og fæddur og uppalinní Que-
bec.Faöir hans var vellríkur kaupsýslu-
maöur, haföi auögazt á rekstri bensín-
stööva. Ættin er gömul oröin í Kanada,
hefur búið þar allt frá 1659 að Trudeau
nokkur snikkari fluttist úr Frakklandi
vestur. En móöir Trudeaus var af
skozkum ættum. Hann gekk í skóla hjá
Jesúítum, College Jean de Brébeuf, en
síöar í Harvard og Sorbonne. Eftir aö
hann kom aftur heim frá námi lagði hann
fyrir sig lögfræðistörf, hann stofnaöi,
ásamt öörum, tímarit sem Cite Libre hét
og var vinstrisinnaö (Trudeau taldi sig
sósíalista í þann tíð); síðar varö hann
prófessor í lögun viö Montrealháskóla.
Það var ekki fyrr en 1965, aö hann skarst
í stjórnmálabaráttuna — en þrem árum
síöar var hann oröinn forsætisráöherra.
Trudeau þykir heldur ráöríkur, ósam-
vinnuþýöur, og tillitslaus jafnvel. í kanad-
ísku dagblaði, sem birti fyrir nokkru kafla
úr ævisögu hans var haft eftir honum, aö
„rhargt er erfitt í starfi forsætisráðherra,
en erfiðust eru þó samskiptin sem maður
þarf aö hafa viö aðra. Mér lætur ekki vel
að umgangast fólk. Þaö er einn minn
helzti galli“. Fréttaritari einn, sem fylgzt
haföi lengi meö honum, lét svo um mælt,
aö hann „veit ekki hve mörg börn helztu
samstarfsmenn hans eiga; honum verður
ekki einu sinni aö vegi aö spyrja um líöan
eiginkvenna þeirra þegar þær eru veikar“.
Kona kunnug honum sagöi einhverju
sinni, aö tilfinningar hans væru „álíka
djúpar og matardiskur", og bætti því viö
aö hann heföi „eiginlega aldrei sýnt þess
nein merki aö hann væri mennskur" —
nema þegar konan fór frá honum. Þá
virtist honum brugöiö.
Trudeau kvæntist seint, ekki fyrr en
1971 og haföi þá einn um fimmtugt. Kona
hans, Margaret, var einum þrjátíu árum
yngri. Hún hét Sinclair aö ættarnafni,
dóttir stjórnmálamanns frá Brezku
Kólumbíu. Þeim fæddist fyrsta barniö
réttu ári eftir aö þau voru gefin saman.
Þaö var drengur. Tveim árum síöar
eignuöust þau annanr og svo þann þriðja.
Hjónaband þeirra og fjölskyldulíf virtist
einstaklega hamingjuríkt; þeim lék allt í
lyndi. En þaö entist því miður ekki lengi.
Margaret var ákaflega ólík manni
sínum. Hún þoldi illa streituna, sem fylgdi
starfi hans; áriö 1974 varö hún aö leggjast
inn í sjúkrahús — vegna streitu aö því er
hún sagöi blaðamönnum. Hún var líka
opinskárri en hæfa þótti: skömmu eftir að
hún kom úr sjúkrahúsinu lýsti hún því t.d.
yfir í sjónvarpi, aö hún vildi helzt aö
eiginmaður sinn hætti alveg afskiptum af
stjórnmálum. Þess voru þá farin aö sjást
ýmis merki, aö ekki væri allt meö felldu
í hjónabandinu. Trudeau var orðinn
uppnæmur yfir því er fréttamenn spurðu
hann um konu hans. Eitt sinn bar svo viö
að hann misskildi spurningu þingmanns
nokkurs í neðri deild, hélt þingmanninn
hafa ýjaö aö því aö forsætisráðherrahjón-
in kynnu aö skilja. Trudeau missti þá
stjórn á skapi sínu, kallaði þingmanninn
„tíkarson" og skálmaöi út úr þingsalnum.
Nokkru seinna var komið greinilegt los á
hjónabandið. Margaret var farin aö
ferðast um einsömul og sjást opinberlega
í fylgd meö mönnum sem þóttu „vafasam-
ir“ aö ekki væri meira sagt, — t.d. Mick
Jagger og Keith Richard úr Rolling
Stones. Þessu lauk svo, aö þau hjón
skildu aö boröi og sæng. Margaret býr nú
í New York og hefur lagt fyrir sig
Ijósmyndun, en Pierre situr eftir í
forsætisráöherrabústaönum í Ottawa, og
hélt hann eftir sonum þeirra þremur.
Þaö er greinilegt um Trudeau aö hann
nýtur mjög valda sinna. Og flest bendir til
þess aö hann veröi viö völd enn um
nokkra hríö. Honum hefur oröiö ýmislegt
mótdrægt eins og fyrr var sagt, en hann
þykir líka hafa unniö sér margt til ágætis,
og þorri almennings er yfirleitt á hans
bandi. Þaö er aö vísu talið aö sigur hans
í næstu kosningum veröi naumari en áöur
hefur veriö, en fáir efa það í alvöru aö
hann muni sigra.
Trudeau þykir hafa oröið einna mest
ágengt í utanríkismálum, enda er því mjög
á loft haldiö. Honum hefur lánazt aö bæta
mjög samskiþti Kanada og Bandaríkj-
anna, og eru þeir miklir vinir hann og
Carter Bandaríkjaforseti. Hann kom því til
leiðar, aö Kanadastjórn viöurkenndi
Kínverska alþýöulýöveldiö snemma á
árum og hefur átt vinsamleg skipti viö
Kúbu, en aftur á móti dregið úr
fjárfestingu Kanadamanna í Suöurafríku,
og fleira mætti telja.
En afrek hans í utanríkismálum mundu
þó sennilega ekki duga honum ein saman
til sigurs í komandi kosningum. Drýgst
veröur honum aö líkindum sú hugmynd,
sem almenningur hefur um hann, aö hann
sé maður einbeittur, viljasterkur og fylginn
sér. Mönnum er enn í fersku minni hversu
hann brást viö þegar hryðjuverkamenn
óöu uppi í Montreal, áriö 1970, rændu
m.a. verzlunarfulltrúa Breta og myrtu
kanadískan ráðherra. Trudeau sýndi þá
sem oftar, að hann er maður haröur í horn
aö taka. Hann lýsti þegar yfir neyöar-
ástandi í landinu og kallaöi herinn á
vettvang aö kveöa niður óeirðirnar. Þegar
fréttamaöur spuröi hann hversu langt
hann væri reiöubúinn aö ganga til þess aö
vinna bug á hryöjuverkamönnum leit
Trudeau á hann kuldalega mjög og
svaraöi aö bragöi: „Alla leiö“... Hann
hikar aldrei þegar til kastanna kemur. Og
þaö er mannkostur sem kjósendur meta
umfram aðra.
— Úr Observer
Kyrrö fjallanna var algjör og þaö var
eins og andartakiö hefði liöið án þess
aö þaö kæmi mér nokkuð viö, hvílík
dásemd er það ekki að vera einn meö
náttúrunni svona langt frá öilum
siöum og venjum og upplifa dags-
stund meö sjálfum sér losna viö
amstur hins daglega lífs og hverfa á
vit fjallakyrrðarinnar, sötra ískalt og
tandurhreint vatn úr lækjarsprænum
sem liöast í smá skorningum niöur
hiíöarnar, leggja hlustir viö árniönum
og heyra skvampiö þegar lækirnir
hossa sér ofan af háum og lágum
stöllum. Ég nýt þess að vera til og
upplifa þann munað aö samlagast
náttúrunni og ég leggst undir hvítan
fossúöann sem gusast yfir mig,
rennbleytir hár mitt og andlit, ég krýp
niöur og tek ískalt jökulvatniö í lófa
mína og eys því yfir mig án þess aö
hugsa nokkuö um þaö aö fötin
gegnblotna. Hverju skiptir það á
svona góðviörisdegi segi ég viö sjálfan
mig og fleygi þeim af mér, leggst
nakinn í þvælt grasiö og drekk í mig
angan vorkomunnar, læt hlýjan vor-
vindinn þukla mig og nýt unaðarins
fullkomlega í fagnaöarsöng sem
drukknar í niö árinnar er beljar fram
sem í stríðshugleiöingum og lætur
vetur konung lúta sér í auðmýkt. Ég
lifl þá fagnaöarstund er áin í sigurvímu
streymir niður gamlan farveg aldanna
og heilsar fagnandi sérhverjum steini
og þakkar fyrir síöast. ísklakar sem
búiö höföu um sig á bökkum árinnar
búast til brottfarar og dragast út í
strauminn þar sem þeir eiga eftir aö
velkjast, sigraöir greyin, samferöa
ánni óendanlega órannsakaöa leiö. Ég
rís upp og teygi hendurnar í átt til
árinnar í þeirri von aö fá yfir mig
fossúðann sem svífur yfir árbakkann
og skellur um leiö á nöktum kinnum
bergsins þegar áin steypist fram af
hömrunum og flengir sig sjálfa aftur
og aftur. Gróöurlausir hólmarnir
svelgja í sig rakan svalann en sölnuð
strá sem flökta í vorvindinum flosna
upp og fjúka út í röstina sem síðan
fleytir þeim með sér aflvana og
varnarlausum. Eitt augnablik virði ég
fyrir mér kónguló nývaknaöa til lífsins
trítla léttfætta inn í bældan gróðurinn
leitandi aö góðum staö fyrir veiöinet
sitt en kolsvartir hrafnar sveima yfir
hömrunum, ef til vill í vorleik, og þar
sem ég fylgist meö þeim heyrast brak
og brestir í hamraveggjunum. Þiðn-
andi ísinn er aö sprengja í sundur
veggina og rifta milljón ára samveru
klettabjarganna og þeytir þungum
björgum út í ólgandi iöuna. Á meöan
er eins og tíminn standi kyrr og eilíföin
kyssi andartakið hvellun kossi. Þetta
er lífiö segi ég við sjálfan mig, teygi
úr mér letilega og slít um leiö strá upp
úr sverðinum. Hvaö getur þú sagt mér
um lífið litla strá; hvar er best að lifa,
hvar er mesta hagsældin í veröldinni?
Segöu mér þaö litla strá, en ég fæ
ekkert svar. Ég vef stráinu um fingur
mér svona eins og í hefndarskyni fyrir
þaö aö vilja ekki eiga viö mig fáein orð
um lífiö og tilveruna og tilganginn meö
öllu þessi brambolti.