Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 11.06.1978, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 11.06.1978, Qupperneq 2
Ár liðu, áöur en Farah var krýnd af manni sínum. Hún er fyrsta keisara- drottningin, sem krýnd hefur verið í íran öldum saman. Farah hefur alið manni sínum tvo syni. Hún er vitur kona og hefur áhuga á Þjóöfélagsumbótum. „ATJiT VALT Á ÞVÍ AÐ ÉG EIGNAÐ- IST SON” Farah Diba, keisara- drottning í Iran segir frá fyrsta ára- tugnum við hirðina í Teheran Farah: Auðvitað nýt ég forréttinda, en ég hef líka lært margt. Mér var eitt Ijóst: Ég var aðeins kvödd heim til að vera keisaradrottning. Eigin- kona aöeins til reynslu. Hvort ég yrði það til frambúðar eða ég yrði send í burtu, var undir því komiö, hvort ég gæfi landinu ríkiserfingja eða ekki. Fyrstu mánuöina eftir að ég kom heim yfirgaf sú tilfinning mig aldrei, að allir, sem urðu á vegi- mínum, gláptu aðeins á magann á mér. Og að lokum gerði ég líka ekkert annaö. Þegar ég, mánuði eftir brúökaupið, var enn ekki ófrísk, sótti að mér hryggð. Ég held meira að segja, að ég hafi grátiö. Mágkona mín, Ashraf prinsessa, hvatti mig til þess aö leita læknis. „Hann er afburða fær,“ sagöi hún. „Hann getur allt og komið því til leiðar, að þú getir eignazt son.“ Tveimur mánuðum eftir brúðkaup mitt kom prófessorinn og rannsakaöi mig. Rannsóknin stóð stutt yfir. Er henni var lokið, rétti hann úr sér og sagöi: „Þá get ég því miöur ekkert framar gert. Ég staröi á hann skelfingu lostin. Hann brosti. „Af því aö þér eruð þegar ófrísk. Til hamingju, yöar tign.“ Ég varö mjög hamingjusöm, og mikill innileiki ríkti milli mín og mannsins míns. Hann vildi láta kalla til fræga kvenlækna © víös vegar að úr heiminum, en ég var á móti því. Ég sagöi: „Að ala barn er eitt af því einfaldasta í heiminum, og í okkar landi er fjöldi góöra lækna. Ég kýs, aö einn af löndum mínum leiði erfðaprinsinn inn í heiminn.” Ef lagt hefði verið að mér, heföi ég meira aö segja, eins og tíðkast hjá okkur, hjálpaö til viö barnsburöinn. En allir ráölögöu mér aö fara varlega, þar sem um fyrsta barnsburö væri að ræða. Maðurinn minn lagði öllum öörum fremur að mér, að ég færi í sjúkrahús. En ég vildi ekki vera í neinu meiri háttar sjúkrahúsi. Því valdi ég fæöingarstofnun fyrir sunnan Teheran, þar sem fátækt fólk fær að dveljast sér aö kostnaöarlausu. Mér fannst, sem þaö væri eini möguleik- inn til aö sýna þjóð minni ást mína í verki. í fyllingu tímans ók keisarinn með mig snemma morguns í bifreiö sinni til fæðingarstofnunarinnar. Ég þarfnaöist friðar, en það var líka þaö eina, sem mig skorti. Þaö var eins og allur heimurinn hefði safnazt hér saman: tengdamóðir mín, keisaraekkjan, móðir mín, mágkonur mínar, ráðherrarnir. Og allir biðu í ofvæni. Viðstaddar konur vildu fá að sjá, hvernig barn kemur í heiminn. Allir gerðu sér vonir um piltbarn. Og þeir litu á þaö sem æösta heiður aö geta sagt frá því einhverntíma seinna, að þeir hefðu verið viðstaddir fæöingu ríkiserfingjans. Viö þessar að- stæöur fæddist elzti sonur okkar, Reza Cyrus, 31. október 1960. Fögnuðinum verður ekki meö oröum lýst: Framtíö keisaraættarinnar var tryggð. Ég leymdist í allri fagnaöarvímunni, en móðir mín sagöi aðeins: „Hvernig líður dóttur minni?" Mér hafði verið gefið inn of mikiö af deyfilyfjum, og læknirinn beið, að því er mér var seinna sagt, í taugaspennu eftir því, að ég kæmist til sjálfrar mín. Smátt og smátt fór ég að finna, þegar sjúkrasystirin klappaði á vanga minn og hrópaði: „Hátign! Hátign...!“ Ég vaknaði hægt. Þegar ég að lokum áttaði mig, sat maðurinn minn við hvílu mína og hélt í höndina á mér. „Veiztu, hvort þaö er?“ „Já,“ stamaði ég. „Það er drengur.“ Ég fór að snökta. Guö minn góður, hugsaöi ég, en ef það nú hefði verið stúlka! Það hefði verið hræðilegt! Ég hefði valdið öllum vonbrigðum: þjóðinni, erlendu blaðamönnum, sem vikum saman höfðu haldið sig í grennd við fæðingar- stofnunina, konum víðs vegar að úr heiminum, sem höfðu sent mér vöggur, sem piltbörn ein höfðu legið í. Mér var fenginn verndargripur, sem hafði duldan mátt að geyma, og firnin öll af litlum, bláum skóm. Keisarinn vildi fara til moskunnar til að flytja þar þakkarbæn, en mannfjöldinn gerðist mjög nærgöngull. Menn höföu jafnvel hafið bifreið hans á loft. Aö viku liðinni hvarf ég frá fæðingar- stofnuninni. Ég sat hjá keisaranum í bifreiðinni og hélt á ungbarninu í fangi mínú. Allur vegurinn var blómum stráöur. Ég komst svo við, aö tár spruttu fram í augum mínum. Tólfta marz 1963 fæddist Farahnaz. Ég haföi óskaö þess aö eignast stúlkubarn í þetta skipti. Fæðingin átti sér staö í keisarahöllinni. Ashraf og Shahnaz æptu ,af hrifningu og svo hátt, að einn af embættismönnum hriðarinnar féll um koll á teppinu af ótta. Á persenesku þýöir „Farah“ gleði og „naz“ ástúö. Þeirri litlu þykir ákaflega vænt um fööur sinn, og ef hann er nálægur, sækist hún eftir að vera í faömi hans. 28. apríl 1966 ól ég Ali Reza. Og til þess aö fullkomna hamingjuna ól ég enn, 27. marz 1970, telpu. Hún hlaut nafnið Leila. Ég heföi viljað eiga fleiri börn, en þar sem ég haföi áður hvatt landa mína að takmarka barneignir, gat ég ekki gefiö fordæmi gegn því, sem ég hafði boöað. Maðurinn minn og ég vildum veita börnum okkar venjulégt uppeldi. Því stofnuðum við lítinn skóla í höllinni, tveggja mála skóla, þar sem kennd var v

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.