Lesbók Morgunblaðsins - 11.06.1978, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 11.06.1978, Síða 4
EFTIR BJARTMAR GUÐMUNDSSON FRÁ SANDI Nýlega fundu máríuerlur sér hreiöurstaö og tóku undir ufs á húsi mínu norðan jökla. Þar í sveit heita þær reyndar márjátlur og þá einnig hér á þessum blööum. En til þess nú aö menn meö skilning á skynlausri skeþnunni skilji mig éinnig, vil ég byrja á aö segja agnarögn af öörum fuglum sömu tegundar hinumegin á landinu. Svo margt er líkt meö skyldum aö oft ganga þeir með sama örlagablómiö í brjóstinu, þó ekki sé þaö æfinlega. Þær márjátlur áttu hreiður í kirkjuturni, sem illa var kominn af tannanagi tímans, klæddur timbri og þaö fariö aö trosna. Sóknarnefndin ákvaö því, presturinn og söfnuöurinn einróma aö láta gera viö turninn og þaö þegar í staö og rækilega. Fenginn var til verksins smiður af næsta bæ eða næst næsta. Þaö var góöur smiður. En þegar hann kom til og ætlaði aö byrja á verki sínu fann hann márjátlu- hreiöur, sem enginn mennskur maður haföi hugmynd um, innan viö smugu eina litla á klæðningu turnsins. Hún taldist til skemmda á mannvirkinu en nauðsynlegra nota fyrir márjátlurnar, sem kölluöu hana dyr á sínu máli. Þarna stóð nú trésmiðurinn frammi fyrir eyöingaraflinu annarsvegar og framvindu lífsins í smáfuglshreiöri hinsvegar. Síöan gekk hann heim á staöinn aö hitta prestinn og konu hans. í hreiörinu voru 6 egg. Öllum kom þeim saman um aö fresta viögerðinni fram yfir eggtíma og þann, sem márjátlur þurfa til aö ala upp unga sína. Þar meö fór viðgerðarmaður heim og kom ekki aftur fyrr en allir márjátlu- ungar voru orönir fleygir og færir. í turninum var skjólið og öryggið ofar öllum hættum á jöröu niðri, líklega besti hreiðurstaður márjátlum á öllu Snæfells- nesi, ef ékki öllu landinu. Voriö á eftir viðgeröarsumri kirkjunnar var prestur staöarins aö heiman nokkuð lengi og kona hans. Á meðan klufu flestir farfuglar loftin blá handan yfir höf frá öörum heimshornum. Heim komu þau þó litlu síöar en márjátlur eru vanar að koma frá útlandinu. Af hugboöi vita þær aö eigi hafa þær skjólföt á borö viö staöfuglana, snjótittlinginn og rjúpuna og farfugla þá, er fyrstir koma, sem í venjulegum vorhretum geta mætt kuldanum eins og ekkert sé. Strax og prestshjónin voru heimkomin tóku menn eftir því að tvær márjátlur voru aö flögra kringum bifreiö þeirra á hlaöi úti. Á þaö horföi fólk út um glugga. Hafi þaö velkst í einhverjum vafa um hvernig á því stæði, gufuðu allar efasemdir um þaö fljótlega upp, er prestur og kona hans komu út skömmu seinna. Þá flögruðu fuglarnir á móti þeim masandi sín á miili og höguöu sér eins og þeir kæmust yfir aö vera svo aö segja allsstaöar fyrir fótum þeirra eöa sveimandi hiö næsta þeim og segðu: Guði sé lof aö þið eruð komin! Viö erum komin fyrir mörgum dögum og að húsinu okkar lokuðu. Ekki getum viö opnað þaö. En þið opnið eöa látið gera þaö. Eða er það ekki? Enginn er svo fullnuma í fuglamáli aö staðhæft geti aö útlegging þessi á orðum smáfugla só laukrétt. En á þennan veg skildu hjónin á staðnum fugla sína. Og andartaki seinna hringdu þau upp smiöinn og báöu hann aö koma sem fyrst og skemma umbætur sínar á kirkjuturninum meö þeim hætti aö búa til nýja smugu. Þaö geröi hann fijótt og vel, svo segjandi aö því búnu: Gerið svo vel, elskurnar mínar, að halda til kirkjunnar. Dyrnar ykkar standa opnar. Fáeinum dögum seinna var þar komin karfa og því næst egg. Vippum okkur svo norður yfir hálendiö að því, sem frá var horfiö á herragarði mínum. Það hafði veriö fátt um manninn allt til maíloka og enginn köttur. Þegar ég kom var brúnleitur fugl búinn aö festa hreiður sitt í barrtré úti fyrir þeim glugga hússins, sem best vissi móti sól. Márjátlur höföu lagt undir sig húsnæöi viö sitt hæfi undir ufs miili þaks og klæðningar neöan á sperrum upp af glugganum og fundið þar inngöngudyr, sem raunar var slysagat, óviögert af því húsráöandi var trassi. Þar var gott aö búa í skjóli móti hádegissól ofan viö allar hættur af völdum ferfætl- inga. Rólyndur hrossagaukur hélt sig niöri í garöi og boraöi nefi sínu eins og þaö var langt til í jörö niður og af svo miklu viti að engu líktist ööru en því aö sagnaranda bæri hann í nefinu, því alltaf kom hann upp með eitthvað gott úr moldinni. Öðru hvoru var á hann kallað sur.nan úr Nöf, þar sem kona hans lá á eggjum þeirra. Og á hæsta hóli túnskikans við Draugadys og rétt viö húsvegginn, svo aö segja, vappaöi heiölóa og fór hvergi þó á hana væri kallað einhversstaðar úr vestrinu. Þaö spyrst fljótlega á fuglaslóöum hvar óhætt sé aö vera. Á sínum tíma komu 6 ungar úr þrastarhreiörinu og 5 márjátluungar undan ufsinni. Hrossagaukskonan kom meö sína unga heim undir garðinn en aldrei inn í hann. En heiölóan hvarf fljótlega eitthvað út í buskann. Alla þessa unga og þeirra foreldri mátti sjá af og til á þessum staö og í grenndinni lengi sumars, nema hrossagaukana og unga þeirra, sem lét gras og kjarr gæta sín í Nöfinni. Þar sem fugl verpir og ungar út í næöi og farnast vel, þar vill hann oftar koma, svo lengi sem hann lifir. Næsta vor komu þrestirnir og hoppuðu hugsandi á garösgrindum og húsþaki og brugðu sér þó annað veifið frá, en stundum uppá talsímaþráð. Síöan hurfu þeir án þess aö hyggja á búskap í trénu. Gaukurinn meö langa nefiö sótti sér saöningu í garöinn en var alltaf eins og á nálum, hvimandi til allra hátta. Enda heyröist kona hans kalla til hans oft og aðvarandi oröum. Lóan heimsótti hólinn sinn af og til en þorði aldrei annaö en skima sífellt kringum sig af ótta viö eitthvaö. Márjátlurnar komu og viöruöu sig uppi á húsmæni og línustaurum. Svo hurfu þær. Þaö leyndi sér svo sem ekki aö þarna var eitthvað aö, meira en lítiö og ööruvísi í augum fugla en áriö áöur. Köttur var kominn í næstu bæjarhús og var aö skjótast aö gamni sínu milli garöa og húsa. Eigi var hann þó alvöruköttur enn sem komið var. Gat samt verið efni í mikinn alvörukött, þótt enn væri hann bara lítið og laglegt kettlingsgrey og ekkert annað en gæöin viö mannabörn og fulloröna. Hann var líka í eftirlæti aö því er snerti atlot og matgjafir. Sjálfsagt hafa márjátlurnar mínar veriö búnar aö velta þessu nýja vandamáli vel og vandlega fyrir sér og reikna út hversu margar kattarlengdir voru af jöröu upp á þakskeggi, og séö aö þar var þeim óhætt að fóstra upp unga meöan þeir halda kyrru fyrir í hreiörinu. Ekki renna kisarnir upp lóörétta steinveggi tveggja hæöa, þó hvassar séu á þeim klærnar. En alvöruefni hefur kisi greyiö þó verið þeim ekki svo lítiö. Því tvíráöar voru þær aö flögra um, fara og koma aftur næstum heila viku. Svo eru þær þó komnar einn morgun- inn, alráönar hvaö gera skuli. Helst held ég aö þær hafi skapaö í sameiningu ágætiskörfu á tveimur sólarhringum. Þaö var meiri dugnaöurinn og svo mikill aö unun var á aö horfa. Eftir því sem sumardögum fjölgaöi varö kisakis fríöari og föngulegri. Og um leið óx og dafnaöi þaö sem allir vita aö kettinum er áskapað í innrætinu. Þeim sem húsum réöu undir ufsinni virtist ekki koma þaö neitt á óvart, þó fallegi kisi sæist oftar og oftar læöast út í garö. Þau voru sífellt í sama sólskins- skapinu, því alltaf var annaö hvort þeirra á veröi og vissi um leið og hann var þangaö kominn. Uppi í hreiöri var enn öllu óhætt meöan ungviðið átti enga vængina til aö fljúga þaöan. Allt þetta sást skemmtilega vel út um gluggann yfir ufsinni. Eitt kvöldið tók ég eftir því aö pabbinn hagaöi sér óvenjulega á einum garös- grindarpilanum, uppmjóum og oddhvöss- um. Þaö var auöséð aö hann var aö vekja athygli á aö þarna væri hann nú, sýnd veiöi en kannske ekki alveg gefin. Allt í einu beraöi kisi sig í heljarstökki upp úr skrautblómabeði og fótaöi sig á grindinni en fuglinn flaug og haföi haft hann aö ginningarfífli að gamni sínu. Veraldarvön- um fugli veröur ekki mikiö fyrir aö leika á viövaninginn í fyrsta skiptið. En hversu veröur þaö lengi? Mamman fylgdist vel meö þessu dirfskufulla tiltæki, því hún var óöara komin út til aö láta í Ijós aödáun sína á karlinum. En kisagrey hentist eins og kólfi væri skotiö heim til sín, alvarlega aumingjalegur aftan á að sjá. Kannske hefur márjátlupabbi annars og þau bæöi verið aö prófa getu kettlingsins en ekki einungis verið að hæöast aö honum. Því nú hlaut senn aö því að líöa aö ungarnir flýgju niður í garö úr hreiörinu. Og hvað þá? Fáeinum dögum seinna er ég svo á fótum óvenjulega tímanlega. Úti er hljótt og kyrrt, og engin márjátla á flugi fyrir gluggann. Hvað var nú á seiði? Ég flýtti mér út í garö, þó ekkert gæti ég þar gert. Af gestum okkar og vinum undir ufsinni sást hvorki tangur eöa tetur. Þegar ég var krakki læröi ég þessar hendingar um lóuunga, og gat ekki tára bundist: Alla étiö haföi þá hrafn fyrir hálfri stundu. Krakkar voru inni í mínum bæ. Hvernig veröur þeim viö aö frétta af hvarfi márjátlanna? Ég leitaði aö verksummerkjum um allan garö, en fann ekkert lengi vel. Loks kom þar þó aö. Ég fann einn márjátluunga dauöan. Hann var nýdauður og volgur Framhald á bls. 12

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.