Lesbók Morgunblaðsins - 18.06.1978, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 18.06.1978, Síða 7
I Af þeim mörgu styrkjum, sem von- andi hafa allir oröiö til gagns og hafa án efa skilað sér meö vöxtum og vel þaö til þjóðarinnar aftur — eru mér þrír kannske af ýmsum ástæöum minnis- , stæðastir og kærastir. Af þeim vil ég fyrst nefna framlag eöa styrk, sem enginn einn fékk. Þar á ég viö bókavagn, sem félagið gaf Land- spítalanum, en þá var þar kominn fyrsti smávísir aö sjúklingabókasafni, sem nú þykja sjálfsögð á hverju sjúkrahúsi. Þessi gjöf finnst mér lýsa vel skilningi kvenstúdenta á gildi bókarinnar, alls- staöar, einnig hvaö varöar meöferö sjúklinga. Annar styrkur er sá, sem afhentur var Alþjóðasambandi háskóla- kvenna handa erlendri menntakonu til vísindarannsókna á fornbókmenntum okkar. Sá styrkur tengdi okkur nánar Alþjóðasambandi háskólakvenna. Og loks er þaö þriðji styrkurinn, sem fór til styrkþega, sem kynnti sér meöferö og viögerö handrita, því aö hann stuölaöi aö því, aö viö vorum betur undir þaö búin aö taka viö handritunum okkar, sem viö höfðum öll þráö aö mega fá aftur úr dönskum söfnum. — Margt hefur verið rifjað hér upp, í sumum tilvikum þaö samá, þó er þaö svo, aö engir tveir eiga alveg sömu minningar jafnvel um sama atburöinn, svo er fyrir aö þakka fjölbreytninni í sköpunarverkinu, aö engir tveir ein- staklingar eru eins og meta þar af leiðandi aldrei atburðina nákvæmlega á sama hátt. — Á merkum tímamótum mega þó ekki minningar um liöna tíö vera allsráðandi, þó góöar séu, því aö enda þótt nauösynlegt sé aö líta um öxl og huga aö því, sem áunnist hefur, er þó enn meiri þörf á aö horfa áfram til þess ókomna. — Þaö kann ef til vill aö hvarfla aö ýmsum hvort þörf sé á féiagi eins og okkar nú þegar bókstafur laganna tryggir okkur öllum landsins börnum, konum jafnt sem körlum, sömu möguleika til menntunar og starfa. Ýmsum finnast kvenfélög líka oröin úrelt, og sumir veigra sér jafnvel viö aö nefna konur á nafn sem slíkar. Kvenstúdentafélagiö hefur aö vísu aldrei veriö kvenréttindafélag a.m.k. þó ekki nema óbeint, en tilvist þess hefur samt verið menntakonum viss styrkur, og félagiö hefur jafnan veriö tilbúiö til samvinnu viö önnur kvenfélög um réttindamál, þegar þörf hefur veriö á. Trúlega verður enn sem'fyrr þörf á aö styrkja efnilegar menntakonur til náms og vísindastarfa og sannindi Háva-mála aö maður er manns gaman, fellur varla úr gildi aö sinni. Grundvöllur, sem byggir á þessu er því enn til staðar. Mikilveröust ástæöa fyrir áframhald- andi tilvist og nauösyn á vexti félags okkar kann þó aö vera aöild okkar aö Alþjóöasambandi háskólakvenna, sem hefur þaö aö megin markmiöi að auka fræðslu, þar sem menntun er bágborin, en þaö er því miöur allt of víöa í veröldinni. Þaö eru ennþá forréttindi í veröld okkar daga að fá aö handleika bók og veröa læs og skrifandi. Á Alþjóöaþingi háskólakvenna, sem hald- iö var í Sterling í Skotlandi sj. sumar, sem formaöur félags okkar og ég sátum, fékk maöur enn ótal vitnisburöi víöa aö, hvaö menntunarskortur háir mörgum í baráttunni til bættra lífskjara. Alþjóöafélag háskólakvenna er einn þeirra mörgu aöila, sem vinnur aö því aö minnka fáfræöina og fátæktina, sem venjulega fylgjast aö og félagsskapur- inn styöur eölilega sérstaklega konur til mennta minnugur þess, að þegar kona er menntuö er jafnframt verið aö mennta heila fjölskyldu. Aöild okkar aö þessum alþjóölega félagsskap er því bæöi athyglisverö og Kramhald á bls. 15 Ingrid Bergman: Gott að vera komin heim og tala sænsku á nýjan leik. Ingrid Bergman hefur ver- ið frægust sænskra leik- kvenna í 40 ár, og Ingmar Bergman frægastur sænskra leikstjóra um langt árabil. En þau höfðu aldrei unnið saman að kvikmynd fyrr en nú ný- lega, að Ingrid lék aðal- hlutverkið í nýjustu mynd Ingmars, „Haustsónötu“. Ir lék þar konsertpíanista; Liv mann lék dóttur hennar. Þegar kvikmyndatökunni lauk hélt Ingrid til London að æfa Þar hlutverk sitt í leikrití Norman Hunters, „Waters of the Moon“. Blaðamaður Newsweek, John Herbert, náði tali af henni stuttu fyrir brottförina, og fékk hana til að segja undan og ofan af „Haustsónötu“, og lífi sínu og starfi. Hér er smá útdráttur úr þessu viðtali. „Herbert: „Hvernig vék því við, aö þiö Ingmar Bergman fóruö aö vinna saman eftir öll þessi ár?“ Bergman: „Þaö bar nú ýmislegt til þess. En m.a. fannst mér skemmtilegt aö enda feril minn meö þessari mynd. í fyrstu myndinni sem ég lék í og sýnd var utan Svíþjóöar lék ég píanista eins og núna. Eftir þaö var ég langdvölum erlendis, tíu ár í Bandaríkjunum, ein átta á Ítalíu og tuttugu ár í Frakklandi. En nú kom ég heim aftur og talaöi sænsku í kvikmynd í fyrsta sinn í öll þessi ár. Mér fannst þaö skemmtilegt tilhugsunar aö Ijúka leikferli mínum þannig. Ég þori ekki aö fullyröa aö honum sé lokið ... en mér fyndist þessi endir vel viö hæfi ..." Herbert: „Hvernig stóö á því, að þér bauðst hlutverk í Haustsónötu?" Bergman: „Ég fékk því framgengt með ýtninni. Ingmar haföi einu sinni, fyrir langalöngu, skrifað mér bréf þess efnis að SAMTAL VIÐ INGRID BERGMAN EIKARAR FÖRUl TAUGARNAR A ROSSELLINI viö skyldum efna í kvikmynd. Ég geymdi bréfiö í tíu ár. Svo vildi þannig til, aö ég var kjörin í dómnefnd á kvikmyndahátíð- inni í Cannes þegar Ingmar sýndi þar „Hvísl og hróp“. Þegar viö hittumst stakk ég afriti af bréfinu í vasa hans og sagði honum aö lesa þaö< þegar hann kæmi heim. Hann geröi þaö og sendi mér orð um hæl svolátandi: Það er ekki eftir neinu aö bíöa; við skulum koma okkur að verki. Ég þurfti svo ekki aö bíöa nema tvö ár enn; þá var hann búinn aö semja handritiö og viö komum okkur að verki ..." Herbert: „Um hvaö fjallar þessi rnynd?" Bergman: „Hún fjallar um móður og dóttur, um samskipti þeirra. Þau eru heldur brösótt. Þær hata hvor aðra í rauninni. Móðirin er langdvölum að heiman, kemur bara í heimsókn endrura og eins, og eitt sinn er hana ber að garöi milli tónleikaferða skerst í odda með mæðgunum. Þaö slær í grimmilega brýnu, og þær veita hatri sínu útrás. Ég þekkti þetta hlutverk aö nokkru leyti af eign raun. Konan lifir mestan part í list sinni, hún tekur starfiö um fram annað. Henni er Ijóst, aö hún er gædd hæfileikum og henni finnst sér bera skylda til aö leyfa öðrum að njóta þeirra. Þessi kennd er svo sterk, að í hvert sinn sem starfiö krefst þess hlýtur hún aö yfirgefa fjölskyldu sína og halda út í heim“. Herbert: „Þú segist hafa kannazt við þig í hlutverkinu. Er reynsla þín og barna þinna svipuö því?“ Bergman: „Mér fannst merkilegt hversu það fór stundum saman. Sumar setningarnar í handritinu fannst mér ég hafa sagt oft áður. Reynsla mín og minnar fjölskyldu er þó ekki söm og frá segir í myndinni. Mín börn eru löngu orðin vön því, að ég er langdvölum að heiman, og þau láta sér það lynda. Þau vita líka, aö þau geta hringt í mig hvenær sem er. Auk þess sendi ég þeim oft farmiða og þau koma. Þau geta náð í mig hvenær sem þau vilja. Og viö erum miklu meira samvistum en flestir halda". Herbert: „Hvernig þótti þér aö vinna meö lngmar?“ Bergman: „Það var ákaflega skemmtilegt. Áöur en kvikmyndatakan hófst æfðum viö okkur í hálfan mánuð í Stokkhólmi, rétt eins og tíðkast í leikhúsum, en síöan héldum við til Noregs og lukum myndinni þar á hálfum öðrum mánuöi. Vegna þess að við vorum búin aö æfa okkur fyrir fram gátum viö gengið hiklaust til verks; æfingarnar flýttu mjög fyrir. Viö vorum búin að átta okkur á því hvernig bezt væri að fara aö. Enda gekk kvikmyndatakan rösklegar en ég á að venjast. i Banda- ríkjunum fara menn allt öðru vísi að. Þar er liöinu hóað saman undirbúningslitiu, og síðan upphefjast tímafrekar bollalegging- ar um þaö hvernig skuli aö verkinu staöiö. Það var líka margt annað frábrugöið því sem ég er vön. Til dæmis vorum við ekki nema 15 viö töku Haustsónötu. í Bandaríkjunum eru sjaldan færri en 50 — 60 manns við kvikmyndatöku. Ég haföi líka gaman af því þegar Ingmar settist í leikstjórastólinn og kallaði: „Þögn.“ -en það var allt þagnað þegar áöur en hann settist. Hann gæti áldrei starfað í Bandaríkjunum. Allir sem með mér unnu þarna voru frábærir í sinni grein. Ingmar velur samstarfsmenn sína af mikilli kostgæfni. Þetta voru konur mestan part. Ingmar þykir þær betri starfsmenn en karlar.Hann segir að þær séu dug legri og hafi betri stjórn á tilfinningum sinum." Herbert: „Hvernig samdi ykkur, þér og Ingmar?" Bergman: „Betur en ég bjóst við. Þaö orö fer af Ingmar, að hann sé harður húsbóndi, jafnvel tillitslaus og ausi leikara sína skömmum fyrir litlar sakir. En þetta er alveg tilhæfulaust. Hann er alúðiegasti og skilningsríkasti leikstjóri sem ég hef nokkurn tíma starfaö meö. Hann hjálpar manni á alla lund. Viö skildum hvort annaö prýðilega. Ég mat þaö mest, að hann hafði greinilegan áhuga á hverjum einstökum sem við söguna kom, honum var verulega annt um okkur. Hann minnti mig á Rossellini að sumu leyti“. Herbert: „Finnst þér þeir þá líkir?" Bergman: „Nei, þaö finnst mér ekki. Þeir eru t.d. ólíkir í því aö Ingmar er annt um leikara sína, honum fellur vel viö þá, en Fiossellini var meinilla við leikara. Rossellini þótti leikarar hégómlegir, heimskir og leiðinlegir. Honum féll aöeins viö „raunverulegt" fólk, óbrotiö ..." Herbert: „Hvernig þótti þér stjórn Ingmars í samanburði við annarra stjórn?“ Bergman: „Ég hef átt því láni að fagna að starfa meö mörgum frábærum leikstjór- um, og mundi æra óstööugan aö telja þá Kramhald á bla. 15 <

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.