Lesbók Morgunblaðsins - 10.09.1978, Qupperneq 7
I RAUN OG VERU
Þœltir eftir Margaret Haikola
Oft kveður það við í eyrum okkar, að
orð Biblíunnar henti ekki okkar tímum,
þar sem þau séu rituö fyrir menn, sem
liföu á allt annarri öld en við. Við finnum
þó við nánari athugun, að vandamálin
þá voru hin sömu og nú, þó að aðrar
ytri orsakir lægju þeim til grundvallar.
Páll ritaði Efesusmönnum: „Megi Guð
upplýsa sálarsjón yðar, svo að þér
skiljið, hver sú von er, sem hann hefur
kallað yöur til.“ Kristni söfnuðurinn í
Efesus hlaut að reyna mikla erfiöleika,
og Páll var hræddur um, að hann
mundi glata voninni. Páll vildi benda á,
að kristnir menn ættu von, sem gæti
boriö þá yfir bylgjur þeirra.
Einnig nú á dögum verða stööugt á
vegi okkar menn, sem stríöa við margs
konar örðugleika.
Daglega mætir þú einhverjum manni,
Þorir
sér, skaltu minna á, að til er eitthvaö aö
baki yfirstandandi öröugleikum, sem
ber að horfa fram til. Þú skalt líka
benda á, að upp af örðugleikunum
getur einmitt sprottið eitthvað nýtt.
Þú skalt ennfremur vitna um, að
örðugleikarnir geta aukið vöxt manns-
ins, að sjálfsafneitun getur haft vinning
í för með sér og að þjáningin getur fært
mennina nær hver öörum. Frammi fyrir
staðreynd dauöans átt þú að gera
rækilega grein fyrir því, aö von kristins
manns er fólgin í trú, sem á heima
handan takmarka rökrænnar hugsunar.
Áreiðanlega hefur þú reynt, hversu
erfitt það er að telja manni, sem er í
nauðum, trú um, hvernig einmitt hann
getur öðlazt von. Verkefni þitt er ekki
alltaf í því fólgið að láta það í Ijós í
orðum sem svar við spurningu. Þú
getur líka gert þaö í athöfn, með
lífernismáta þínum. Þú veizt aldrei,
hvenær annar maður dregur lærdóm af
lífi þínu. Þetta felur í sér, að þér er
fengin mikil ábyrgð, og þér kann að
finnast hún þung. En þaö felur líka í sér,
að þú hefur ótrúlega möguleika til að
hjálpa, og það veitir styrk.
Sumir menn líta fyrst og fremst á
vandamál lífsins sem vandamál ein-
staklingsins. Aörir líta á þau sem
vandamál mannkynsins alls. Þú stendur
Ef þú vilt skýra, hvað kristin trú felur í
sem þú hefur getu tii að hjálpa, jafnvel
þó aö hann biðji þig ekki um hjálp.
Sjaldnast fær þú losað hann við
örðugleikana, en þú getur veitt honum
styrk til aö standast þá.
Maður, sem missir vonina, er mjög
óhamingjusamur. Hann þreifar á því, að
örðugleikarnir eru honum ofurefli. Það
sem úrslitum ræður er einmitt ekki hin
mikla, heldur hlutfallslega stærð þeirra,
þegar miðað er við orku mannsins til að
bera þá. Ef samferðamaður þinn fær
nýjan kroft, öðlast hann um leið nýja
von. Það er sá kraftur, sem þú skalt
reyna að miðla honum.
Þú hjálpar ekki ráðþrota manni með
því að segja einungis, að hann skuli
ekki missa vonina, heldur horfa fram
mót bjartari framtíö. Þú veröur líka að
sýna, að þú stendur undir orðum
þínum. Það er þá, er þú skalt sannfæra
einhvern annan, sem á reynir, hvort þú
ert sjálfur viss í þinni sök. Á sama hátt
færðu reynslu af því, hvort þú þorir aö
treysta á kenningu Krists og vilt breiða
hana út.
því frammi fyrir spurningunni um, hvort
kristin von heldur, einnig þegar um
heimsvandamál er að ræöa. Þorir þú aö
vona, að þau verði leyst á kristnum
grundvelli?
Við þurfum á svari þínu við spurning-
unni aö halda — við þörfnumst svara
margra til þess aö hjálpast aö viö aö
finna lausnir. Tilraun mín til svars
hljóðar svo: Til þess að greiða úr
kreppu mannkynsins verðum við að
stilla saman alla jákvæöa krafta. Einn
af þeim er einmitt kristin von. Kristin
lífsskoöun verður að vera fyrir hendi við
allar ákvarðanir, sem teknar kunna að
verða, ekki aðeins hvað snertir ein-
staklinginn, heldur um leið á sviði
samfélags og stjórnmála. Sérhvert
okkar hefur því miklu hlutverki að
gegna, ef viö meö öllu lífi okkar viljum
sýna, að kristin von sé haldgóö.
Bölsýnismaöurinn segir: ekkert gott
nema það hafi eitthvað illt í för með
sér.
Bjartsýnismaðurinn segir: ekkert illt
nema það hafi eitthvaö gott í för með
sér.
I
NÚPSKÖTLU
Ég heyri þungan ægis andardrátt
þar undir núþnum rauöa um sumarnátt
og minnist þess aö Halla fæddist hér
og heiöarbýliö veröur nálægt mér.
Krían vaknar fyrst af kríublund
og kann sér ekki læti rétt um stund.
Vestanáttin ýfir ijósan flöt.
Undarleg er skeglan, hvít og löt.
Sem opnist flóögátt brýst fram bjargsins raust
viö birtu dags meö ný stef endalaust.
Samt geymir þögnin lag, sem lítiö var,
því líka verpti haftyröillinn þar.
Viö yztu rönd um sólhvörf oft má sjá
hvar súlur elds upp stíga af hafsins gljá.
Trausti karlinn tigna rósemd ber.
Tjörnesið er framlágt uppi hér.
Hér lifa ennþá landsins fornu rögn,
í Ijóöi þeirra er stefiö hávær þögn.
Siguröur bóndi býr á þessum staö
og býsna margir fuglar vita þaö.
©