Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1979, Page 4
Hversv
verður
Þuríður J. Árnadóttir
Mannmargt á
Hallærisplaninu. Töiurnar
og merkingarnar eru
vegna talningar, sem
gerð var eítir
myndum og Útideild
Félagsmálaráðs og
Æskulýðsráðs hefur
lánað.
til Hallærisplan...?
■
Hallærisplanið svo nefnda má taka sem
dæmi um hvernig félagsleg fyrirbæri
veröa til, að því er viröist almennum
borgurum og stjórnvöldum aö óvörum.
Ekki er þaö vegna þess aö forsendur
þessa fyrirbæris séu svo nýjar af nálinni;
allmiklar umræöur hafa oröið á undan-
förnum árum um samkvæmismenningu
unglinga og hvernig beri aö samræma
óskir þeirra og þarfir í því efni gildandi
reglum samfélagsins þar um. Almanna fé
hefur veriö lagt fram á vegum Reykja-
víkurborgar til aö starfrækja samkomu-
hús, sérhæft fyrir þá aldurshópa ungs
fólks, sem almennar reglur banna aðgang
aö skemmtistööum hinna „þroskaöri og
reyndari" borgara.
Frá Tónabæ
á Hallærisplanið
í þeim tilgangi var Tónabær starfræktur
um nokkurt árabil. Staöurinn rúmaöi
fjölda unglinga og var þeim boöiö til
tómstundaiöju og dansleikja með gildandi
reglur um „eölilega og holla“ starfshætti í
huga. Reynslan sýndi aö samfélagsregl-
urnar og sjónarmið þeirra aldurshópa,
sem staöurinn var ætlaður, skárust í odda
og endaöi meö því, eins og kunnugt er, aö
Tónabæ var lokaö. Aðalásteitingarefniö
virtist vera bann við vínneyslu innan dyra
á staönum. Andsvör unglinganna viö því,
birtust í ölvun þeirra utan dyranna, meö
tilheyrandi árása- og glerbrotahneigð. Er
skemmst aö minnast fjölmiölafregna af
síendurteknum rúðubrotum upp á tugi
þúsunda í Tónabæ og nærliggjandi
byggingum á einu kvöldi að ógleymdum
flöskubrotafaraldri, sem virtist veröa
sérlega vinsælt „hobby" á þessu tímabili.
Um þaö leyti sem lokun Tónabæjar
virtist óumflýjanleg vegna þessa ástands
sem skapast haföi, tóku ungmenni aö
hasla sér nýjan völl í gamla miðbænum í
Reykjavík, aö því er viröist meö svipaö
takmark í huga og veriö haföi Tónabær.
Þessi samkomustaður er þekktur undir
nafninu „Hallærisplan". Fjölmiölar áttu
drjúgan þátt í aö kynna þennan félagshóp,
sem aðsetur haföi utan dyra í miöri
höfuðborginni á helgar-kvöldum og
nóttum. Þaðan tóku aö berast tíðindi af
sama toga og gerst höföu viö Tónabæ:
ofurölvun unglinga allt niöur í 10—12 ára
aldur og upp að tvítugu og þar yfir;
rúöubrotin frá Tónabæ færöust á
Hailærisplaniö ásamt óeiröum og árásum,
jafnvel löggæslumenn máttu þakka sínum
sæla aö sleppa lifandi úr þeirri Ijónagryfju,
sam þarna lýst var yfir almenningi í
fjölmiðlum.
Smám saman dró úr afskiptum lögreglu
og æsifregnum fjölmiöla af vandamálum
Hallærisplansins meö þeim árangri að nú
í seinni tíö er alla jafna lítiö um fréttnæma
viöburöi þaöan. En ungt fólk heldur sömu
tryggö viö staöinn og áöur; þaö viröist