Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.1979, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.1979, Blaðsíða 7
Hér lýkur samantekt úr bók Henry Kyemba, fyrrum heil- brigðisráðherra í stjórn Idi Amins í Uganda. Ráðherrann stakk af frá ráðstefnu í Sviss eins og sagt var frá í síðasta hluta. ekki, því aö í þeirra augum var þaö aöeins á færi hvítra manna að beita slíku misrétti. Þaö var sjálf skilgreiningin á fyrirbærinu. í öngum sínum hættu Bretar allri aöstoö viö Uganda í seþtember 1972, en í hefndar- skyni rak Amin burt brezka landstjórann og kallaöi heim sendiherra sinn í London. Hiö voöalega við hina einstæðu réttlæt- ingu Amins á þessum gjöröum sínum var, að hún haföi tilætluð áhrif. Ég ferðaðist til margra landa á þessum tíma og varð þess var, aö almennt var litiö á Amin sem hetju, sem hefði sparkað burt útlendingum til hagsbóta fyrir sína eigin þjóö. Ég furðaði mig á viöbrögöunum viö hinum einfeld- ingslega og auðvirðilega áróðri Amins. Hugmynd um samband viö svertingja í Bandaríkjunum En ef til vill voru viöbrögö svertingja í Bandaríkjunum furöulegust. Asíumenn voru vart horfnir úr landi, fyrr en fjöldi samtaka bandarískra svertingja haföi samband viö Amin. Sérstaklega var þaö leiötogi samtakanna CORE (Congress of Racial Equality), Roy Innes, sem lagöi fast aö Amin aö fá svertingja frá Bandaríkj- unum til aö fylla í sköröin, sem Asíumenn- irnir skildu eftir sig. Hann kvaö langþreytt- a bandaríska blökkumenn fúsa til aö taka upp samband viö hin upprunalegu heimkynni sín í Afríku og aðstoöa hin blökku systkini sín þar. Amin varö stórhrifinn af þessari hug- mynd. Hann sá ótal kosti viö aö notfæra sér sambandið viö svertingja í Bandaríkj- unum og árásir þeirra á hina hvítu. Hann vildi hraöa aögerðum í þessu máli sem mest og baö Innis um aö vinna áfram aö því. En engum í ríkisstjórninni leizt vel á þessa hugmynd. Viö höföum sáralitla trú á því, aö nokkrir bandarískir negrar myndu leysa hin gífurlegu vandamál, sem Amin heföi skapaö. Þaö yröi aðeins skipt um minnihluta, og hinn nýi myndi veröa dýrari. Viö töldum, aö of margir banda- rískir svertingjar vildu styöja Amin sem einstakling og njóta gestrisni hans og örlætis, en heföu ekki áhuga í alvöru á landinu og þjáningum íbúa Uganda. Viö höföum kynnzt nokkrum bandarískum svertingjum, sem höföu verri afstööu gagnvart Afríkumönnum en hvítir menn — sem töldu sig upp yfir afríska negra hafna. Þetta gilti ekki um alla bandaríska svertingja, því aö við höföum einning kynnzt mörgum heilsteyptum hugsjóna- mönnum, en mótbárur okkar voru þó Ljóð frá liðnum tíma PÁT.T, ÓLAFSSON fæddist 1827 á Dvergasteini við Seyðisfjörð, ólst upp við Fáskrúðs- fjörð, en á manndómsárum sínum var hann bóndi á Fljótsdalshéraði. Hann þótti glæsimenni og hrókur alls fagnaðar í gleðskap og létt um að yrkja. Hann var í senn skáld og talandi hagyrðingur og flugu vísur hans víða. Yrkisefni Páls eru náttúran og umhverfið, en einnig unaður, bless- un og bölvun víndrykkju, og umfram allt þó seinni konan hans, sem hann tileinkaði fjölda ástarljóða. Hún var 16 árum yngri en skáldið. Páli gekk ekki vel að komast í álnir og var nokkuð á flækingi síðast, snauður að kalla. Hann dó 1905. NAFNLAUST LJÓÐ Lúin langan daginn lóan mín hljóða, mjóa feig um jökulinn flýgur, fær ekkert til aö nærast. Dýröar aldrei oröi (augun í tárum laugast, fót beit nöpur nepja nakinn) von er hún kvaki. Líkt eins og lóan flökti, lét ég á þessum vetri suöur um háar heiöar hugann oft þreyta flugið. Minn kom muni sunnan marga nótt án bjargar. Vonarvængir lúnir veröa á slíkum feröum. HEIMKOMAN Glöö hvíldum á beö bæöi, brann ég í höndumsvanna. Dulið gat svanni sælu sína ekki í faömi mínum. Ljúf tók liljan dúka lín frá brjósti sínu. Orð þá að kossum uröu, uröu kossar aö blossa. Verðlagseftirlit í Uganda. Bara eitt lítið smáatriði úr stjórnsýslunni, sem sýnir, hvernig á málum er haldið: Hermenn lemja með bareflum á nokkrum kaupmönnum, sem lagt höfðu of mikið á vörur sínar. nógu greinilegar og sannfærandi til þess, aö Amin hætti viö allar áætlanir um innflutning blakkra Bandaríkjamanna. Nákvæmlega skipu- lagðir skrípaleikir Framkoma blökkumanna frá Bandaríkj- unum, er þeir hafa komið í heimsókn, hefur yfirleitt valdiö ábyrgum Ugandabú- um skelfingu. Svo virðist sem vegna sinna eigin þjáninga í Bandaríkjunum í fortíöinni hneigist margir til aö li'ta svo á, aö allt hvítt sé rangt, en allt svart fallegt. Slík afstaöa var fyrirlitleg aö dómi allra, sem höföu lotiö stjórn Amins. En Amin hefur aö sjálfsögöu reynt að ala á slíkum viöhorfum. Og því hefur hann boöiö mörgum blökkum ráðherrum, sem eru Múhameðstrúar, og blökkum blaða- mönnum frá Bandaríkjunum til Uganda, eins og hann geröi til dæmis í febrúar 1977 eftir moröin á erkibiskupnum og ráöherrunum tveimur. Slíkar heimsóknir eru nákvæmlega skipulagðir skrípaleikir. Gestunum er veitt allt hiö bezta, sem Amin hefur völ á, og vel er séö fyrir því, að gestirnir komist aldrei í snertingu við almenna borgara. Aö þessir gestir skuli gleypa viö slíkum áróöri sem sönnunum og byggja síöan á þeim frásagnir sínar um ástandiö í Uganda, er eins mikill ógreiði við landiö og hægt er að ímynda sér. Aö vissu leyti er þetta skiljanlegt aö vísu, þar sem þaö er í rauninni ógerlegt að afla áreiöanlegra upplýsinga um atburði í Uganda nema frá útlögum þaöan og þá síöustu fréttir frá síðustu flóttamönnum. Amin velur þá blaðamenn, sem hann leyfir aö koma til landsins, en þar eru nú varla nokkrir erlendir fréttaritarar nema frá rússnesku fréttastofunni TASS og ef til vill einn eða tveir frá öðrum Austur-Evrópu- löndum. Amin hefur breytt landinu í fangelsi, en þó njóta fangarnir þar ekki lágmarksrétt- inda sem slíkir. Það má ekki senda neina pakka með matvælum til þeirra, því aö það væri viöurkenning á matvælaskorti og vöruþurrð í Uganda. Eitt blað dugar Öll erlend blöö eru aö sjálfsögöu bönnuö í Uganda, og þar kemur nú aöeins út eitt blað, „Rödd Uganda“, eftir aö kaþólska blaöið „Munno" var bannaö og ritstjórar þess myrtir. „Rödd Uganda" er oft furöuleg. Eftir aö forseti Zambíu, Kaunda, hafði gagnrýnt Amin harölega á ráöstefnu Samveldis- landanna í júní 1977, sagöi í blaðinu, aö þess væri vænzt, aö Hennar hátign, drottningin gæfi honum 25 ára gamlar blúndubuxur af sér í tilefni krýningaraf- mælisins. Og sama heiðurs myndi vænt- anlega Callaghan, forsætisráðherra, veröa aönjótandi fyrir viöleitni sína til aö spilla hinu góöa áliti Uganda út á viö. Framhald á bls. 13 ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.