Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.1979, Side 2
Soðbollar og rimlapungar fljóta
furðanlega í róti Atlantshafsins,
en silfurkerin glæstu hafa ekki
alltaf átt því láni að fagna.
Frá því aö menn fleyttu sér yfir polla
og sprænur meö þeim hætti aö setjast
kolfvega á trjábol og nota krumlurnar
fyrir árar, og til risaskipa nútímans er
löng og ströng saga.
Einhver einkennilegasti farkostur og
kunnasti í sögunni er Örkin hans Nóa.
Eftir lýsingum í biblíunni, Genesis, 6.
kap. 16. vers, hafa margir reynt að
smíöa líkön af þessu skipi, en tekist
misjafnlega. Auk þess aö vera skipa-
smiöur og vínræktarmaður var Gamli
Nói til fyrirmyndar um þaö, aö hann
drakk sig ekki fullan nema einu sinni á
950 árum. Geri aðrir betur.
íslendingar fleyttu sér lengi mest með
„árum á bárum," enda fengu þeir oft
hastarleg áföll vegna lélegra báta.
Líklega hefur mesta sjóslys viö ísland
veriö 8. mars 1685, en þann dag
drukknuöu 136 menn. í dag svarar
þetta nokkurnveginn til þess, aö
Bandaríkin misstu 660 þúsund menn á
einum degi. Samanlagt manntjón
Bandaríkjanna í heimsstyrjöldinni síöari
var 292 þúsund manns.
Nokkuö kaldræn staöhæfing Kiljans
um að þaö sé meinlaust grín að taka
þátt í stórorustu og styrjöld á viö hitt aö
vera fiskimaöur á íslandsmiöum, er ekki
alveg út í bláinn.
Samt er þaö svo þegar bornir eru
saman stórir og velbúnir farkostir
annarsvegar, en hinsvegar smáfleytur
og hálfgeröir manndrápsbollar, þá er
eins og oft gildi gamla vísubrotiö:
„Silfurkerin sökkva í sjó, soðbollarnir
fljóta.“ Um allan hnöttinn er sóttur sjór
á litlum og oft einkennilegum fleytum,
og fara litlar sögur af, en risastór og
velbúin olíuskip eru aö farast og
stranda alltaf ööru veifi, og valda tjóni
og vandræðum á legi og láöi.
Það er líka staöreynd, sem
tryggingarfélög vita um, t.d. Lloyd's í
London, aö tugir skipa og sum stór
hverfa meö öllu hér og hvar á hnettin-
um, án þess að nokkuö sé vitaö um
afdrif þeirra.
Þaö átti ekki viö um eitt nafnkunn-
asta sjóslys síöari tíma, Titanic-slysiö.
Þaö skip var stærsta og hraöskreiöasta
skip heims, og svo vandlega byggt aö
þaö var talið aö skipiö gæti ekki sokkiö.
Þaö fórst þó 1912 í fyrstu ferö vestur
um haf, og meö skipinu gleypti Atlands-
hafið 1498 manns.
Bóröur
Jakobsson
SKIPIÐ
SIGLIR
Margt er vitaö um Titanic-slysiö, og
sama er aö segja um hiö mikla sjótjón
1956, þegar ítalska skipiö Andrea Doris
og sænska skipiö Stockholm, bæöi stór
og glæsileg farþegaskip, skullu saman í
logni og sléttum sjó en þokuveöri
skammt undan austurströnd Noröur--
Ameríku. Út af þessu spunnust ferleg
málaferli, en aöilar voru ítalska ríkið og
hiö sænska, skipafélögin og fjöldi
sjóvátryggingarfélaga. Yfirmenn og
áhafnir skipanna voru yfirheyröar
nokkuö, og þar voru aö verki sér-
fræöingar og hundruð hálæröra lög-
fræöinga.
Ekki er hægt aö segja aö skortur hafa
verið upplýsinga. Þar voru línurit, rat-
sjárkort m.fl., en aö lesa úr þessu
reyndist furöu torvelt. Það fór enda svo
eftir fremur ófullkomna og endasleppa
rannsókn, aö aöilar sáu þann kost
grænstan aö fella máliö niöur. Má
næstum þar um segja aö fariö hafi veriö
eftir hinni gömlu reglu: „Þaö er best aö
hver hafi sitt, þá hefur fjandinn ekki
neitt.“
Þótt þarna yröi mikill eignaskaði auk
skipanna, bæöi hjá áhöfnum og farþeg-
um, þá fórust furöu fáir í þessum
stórkostlegasta skipaárekstri sögunnar,
eöa 43 af. 1706 manns, sem viö sögu
komu. Hefur Atlanshafiö oft verið
gráöugra og höggviö stærra.
Manntjón verður aldrei tíundaö meö
tölum því þaö er ómetanlegt og
óbætanlegt, en skaöabótakröfur í sam-
bandi við þetta slys voru gífurlegar. Tók
mörg ár aö semsa þau mál, en heildar-
upphæöir hafa ekki veriö gefnar upp
svo vitaö sé. Það er enda vafamál hvort
þaö er hægt, en fyrir víst veltur þaö á
milljöröum.
Mikiö hefur veriö skrifaö um þetta
slys, jafnvel skáldsögur, og er þó margt
óljóst um þaö hvaö olli slysinu. Svo
mikið er þó víst aö þarna voru mannleg
mistök aö verki, sennilega meiri af hálfu
Itala heldur en Svía.
Því má aöeins bæta viö, aö sænska
skipið Stockholm leit aö framan og
aftur aö bógum út eins og rifinn og
beyglaöur harmonikubelgur, en skipiö
komst þá hjálparlaust til hafnar. Andrea
Doria fékk heljarmiklu glufu rétt aftan
viö miösíöu, tók þegar aö hallast og var
yfirgefiö, en háöi í hálfan sólarhring og í
augsýn marga, sem á vettvang komu,
dauöastríð sitt, uns yfir lauk á björtum
morgni, logni og sléttum sjó. Þetta
ítalska skip var meö afbrigðum fallegt
og skrautlegt. Var margt dýrmæti þar
innanborðs, og vitaö er aö í farmi
skipsins var mikill gullforöi, þótt aldrei
Einhver minnsti farkostur sem um getur á Atlantshafinu: Eskimóahúðkeypur, sem nú er á safni í
Aberdeen.
Gamli maðurinn og hafið. Spencer Tracy glímir við stórfiskinn f
kvikmyndinni eftir sögu Hemingways.