Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 21.04.1979, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 21.04.1979, Qupperneq 6
Kerlingar- raus um sið- ferðisfötlun Ekki er ég í vafa um hvern ég heföi valiö „Mann ársins 1978“ ef mér hefði veríö faliö Þaö: Magnús Kjart- ansson fyrrv. ráðherra, sem með skeleggri baráttu sinni fyrir jafnrétti fatlaðra bæöi hér heima og á bingi Sameinuðu bjóðanna í New York hefur komið almenningi og ráða- mönnum til að íhuga mál bessi og gera úrbætur á beim og er vonandi, að gott og mikiö áframhald veröi bar á. Ég fór í jafnréttisgöngu fatlaðra s.l. haust, en ég skal játa, aö ég geröi bað meö hálfum huga. Mér fannst nefnilega svo „billegt" fyrir fullfrískt fólk að ganga á eftir hjólastólunum jafnvel bó að í rigningu og kalsaveðri væri. Já, baö er sárt að finna vanmátt sinn til úrbóta, begar horft er upp á meðbræður sína, sem eíga við alls- kyns fötlun að stríða. En kannski er enn sárara að horfa upp á bá siðferðisfötlun af mannavöldum, sem dunið hefur yfir heiminn á undanförnum árum. Við hér á bessu útskeri höfum svo sannarlega ekki farið varhluta af bessu. Það hefur flætt yfir okkur í sjónvarpi og kvik- myndahúsum og allskonar niöurrifs- öfl meðal pjóðarinnar sjálfrar hafa keppzt um aö uppræta fornar dyggð- ir í nafni nútíma og frelsis. Sárast er að sjá, hvernig óharðn- aöir unglingar, sem eiginlega eru hvorki börn né fullorðnir hafa oröið fyrir barðinu á bessu. Og allra sárast finnst mér að sjá, hvernig ástin hefur verið skrumskæld og lítilsvírt í beirra augum og eyrum. Hver heyrir annars talað um ást nú á dögum? Þeim mun meira er talað um kynlíf. 15—17 ára unglingar eru fengnír til viðtals í sjónvarpi og útvarpi bar sem þeir fullyrða, að kynmök séu yfirleitt hafin á pessum aldri. Hvað á Þá allur sá fjöldi, sem ekki hefur kynnzt slíku aö halda um sjálfan sig? Það er sárgrætilegt að lesa t.d. í Póstinum í Vikunni, pegar unglingsstelpur spyrja, hvort Þær séu eitthvað afbrigöilegar, ef bær vilja ekki „hleypa strákum upp á sig“ eins og paö er oröaö. Ég er handviss um að unglingar verða skotnir alveg á sama hátt og viö urðum í gamla daga: Þeir fá í magann, fá hjartslátt, fá í hnén, bara ef beir sjá bann eða Þá heittelskuðu og lifa í marga daga á minningunni um hýrlegt bros eða augnatillit. En slíkt á ekki við nú á dögum. Ungling- um er talin trú um, að Þeir eigi að vera „töff“ og Þeir séu „töff“. Og til Þess að vinna bug á eðlislægri feimni bessara ára, til Þess aö bora aö vera „töff“ og sofa hjá er æöi gripið til áfengisins með Þeim hörmulegu afleiðingum beinum og óbeinum, sem neyzla Þess á of ungum aldri getur haft í för meö sér. Vitaskuld hefur fólk alltaf veriö misjafnlega Þroskað á bessum aldri og oft hefur verið stofnaö til góðra hjónabanda skömmu eftir fermingu. En baö er synd og skömm aö róa undir Því, aö unglingar hefji kynlíf sem allra fyrst, áður en Þeir hafa andlegan broska og jafnvel nokkra verulega löngun bar til. En menn Þurfa að hafa öðlazt andlegan Þroska til bess að geta hafið ham- ingjusamt kynlíf, pó aö dýr burfi bess ekki. Sem betur fer komast langflestir unglíngar aö mestu óskemmdir gegnum betta erfiða tímabil, en miskunnarlaus tíðarandinn og niður- rifsöflin gera allt, sem bau geta til Þess aö svipta pá einum fegursta bættí æskuáranna: draumnum um ástina. Einn Þáttinn í siöferöísfötluninni tel ég án efa vera Þá stefnu í menntamálum að lækka sífellt kröf- urnar til nemenda, miða yfirleitt aldrei hærra en að meðaltalinu og varla bað, bjóða sem sagt undanláts- seminni heim. Sem betur fer eru til menn á meðal okkar, sem Þora aö spyrna viö fótum gegn pessu og bar tel ég fremstan í flokki Guðna rektor í M.R. og bakka honum sérstaklega baö, sem hann lét hafa eftir sér í viðtali við Morg- unblaðið 9.febrúar s.l. M.a. segist hann meðmæltur pví, aö allir eigi jafna möguleika til náms, en Það nám eigi aö vera í samræmi viö getu og vilja nemendanna, líka beirra beztu og tilgangurinn meö skólum eigi að vera að koma öllum upp á hæsta menntunarstig, sem unnt er. Fram að bessu hefur Háskóli ís- lands ekki slakað á kröfunum, hvað sem verða kann. Enda stórbregður mörgum, sem Þangað koma, begar allt í einu er farið að gera kröfur til Þess aö beir stundi námið af alefli. Eins bregöur mörgum, pegar beir hefja atvinnu eftir skólanám og vinnuveitandinn krefst bess, að beir geri sitt bezta og reiknar með kunn- áttu, sem raunverulega er ekki fyrir hendi, af bví að nemandanum hefur veriö leyft aö slugsast í gegnum skólann. Sem betur fer er hér nú á meðal okkar margt ungt fólk, sem Þróar meö sér af alefli bær gáfur, sem Það hlaut í vöggugjöf og nær glæsilegum árangri, sem bæði gleður Það sjálft og marga aöra. Ég get ekki stillt mig um að nefna í bessu sambandi 18 ára piltana tvo, Þórhall og Þorstein, sem héldu útskrifunartónleika úr Tónlist- arskólanum og léku einleik með Sinfóníuhljómsveit íslands í Há- skólabíói fyrir skemmstu. Þar nutu margir mikíllar ánægjustundar. Vissulega eru menn mjög misjöfn- um hæfileikum búnir, en allir hafa til síns ágætis nokkuð og bað ætti spursmálalaust að vera hlutverk skólanna að efla bessa hæfileika hjá hverjum og einum, en varast að draga alla niður á sama lága planið eins og manni hefur virzt stefnan vera undanfarin ár. Kannski komum við á hjóli tímans á pann stað, sem „fornar dyggðir" eru í heiðri haföar. Þá verður í tízku að allir geri sitt bezta, geri mestu kröfurnar til sjálfs sín. Anna María Þórisdóttir. Hrafnhildur Schram GAMALT OG NÝTTI FLÓRENS Hátt yfir Flórensborg gnæfir Belvedere kastalinn og minnir á vald og auð Medicifurstanna sem létu reisa þetta mikla tákn síns veldis, í lok 16. aldarinnar, og höfðu einkum í huga aö geta varist þar lýðveldissinnuöum Flórensbúum þegar á reyndi. Eftir gagngerða endurnýjun og uppbyggingu um miðja þessa öld, þar sem fullt tillit var tekið til upphaflegs stíls fékk kastalinn nýtt hlutverk sem útsýnis og útivistarstaður Flórensbúa. Enda er umhverfið hið fegursta, háar hæðir með mjúkum útlínum vaxnar vínviöi og ólífu- trjám þar sem aðeins kýprusviður og strjál furutré rjúfa láréttar bylgjur lands- lagsins. Yfirbragð miöborgarinnar hefur ekki mikið breytst frá Endurreisnartíman- um þegar Leonardo, Michelangelo og fleiri snillingar gengu meðfram Arnófljóti eða rótuðu í varningnum í sölubúðum á gömlu brúnni, Ponte Vecchio, sem stendur enn, einu brúnni sem hlíft var af þjóðverjum í heimsstyrjöldinni síðari. í Flórens, eru flest hús með fornlegum blæ. Það vill svo vel til aö í flestum þeirra er búiö og þau ekki látin víkja fyrir nýjum húsum meö framandi svip, heldur er reynt að nýta gömlu húsin og gera við þau eftir efnum og aðstæöum meö fullri virðingu fyrir fortíðinni. Iðulega væri samsvarandi húsnæði hér úrskuröað óhentugt nútíma- lífi og jafnvel heilsuspillandi. En það er mikill vandi sem fylgir því að erfa svo forna og glæsta borg og aðlaga hana nútímalífi án þess að spilla því gamla, þar sem sagan talar í hverju fótmáli og gamli og nýi tíminn mætast. í Belvedere kastalanum áttu gamli og nýi tíminn skemmtilegt stefnumót í sumar þar sem stóð sýning ísraelska nýlistamannsins Dani Karavan. Karavan, er fæddur í Tel Aviv 1930 og eftir listnám í heimaborg sinni vann hann um tíma á samyrkjubúi eða þar til hann heldur til Flórens til að nema fresku-tækni og hefur þar væntanlega kynnst okkar heimsfræga Erró sem er þar við nám í sömu listgrein um miðjan sjötta áratug- inn. Frá 1959 hefur hann starfað sem umhverfislistamaður og myndhöggvari auk þess sem hann hefur starfað mikiö fyrir leikhús sem leikmynda og búninga- teiknari. í beinum tengslum við sýninguna í Belvedere stendur önnur sýning í Prato, fjórum km. fyrir utan Flórens í kastala Friöriks II keisara, sem á 13. öldinni útnefndi sig konung Jerúsalem. í Prato hefur Karavan byggt upp svipað umhverfi innan kastalamúranna og í Belvedere og að kvöldlagi má sjá Lasergeisla sem gengur úr dómkirkjuturni Flórensborgar yfir í Keisarakastalann í Prato tengja saman þessi tvö^imhverfisverk eins og nútímalegur naflastrengur. Líta má á verk Karavans í Flórens og Prato sem beint framhald af verkum þeim sem hann gerði fyrir Biennalinn í Feneyj- um 1976 og Documenta í Kassel 1977. Þau verk þróuðust hins vegar út frá gríðarstóru verki eða réttara sagt arkitektúr (10x100m) sem reist var í Negev-eyðimörkinni í suður-ísrael á sjötta áratugnum. Negev minnisvarðinn, eins og verk þetta er kallað, er byggt úr stein- steyþtum einingum með lífrænum og geometrískum formum. Oft notar Kravan náttúrufyrirbæri sem vatn, landslag, sólargeisla og hljóð vindsins til að gefa verkum sínum aukið gildi og reynir hann að fella þessi náttúru- fyrirbæri inn í verkin í staðinn fyrir að láta náttúruna vera hlutlaust baksvið fyrir verkin. Náttúrufyrirbærin notar Karavan hvorki í táknrænum né háspekilegum tilgangi heldur er fólki ætlað að skynja þau á sama hátt og úti í náttúrunni. Vatnsæðar eru áberandi í öllum stærri verkum Karavans, vatnsæðina kallar hann líflínuna, sem hún og er fyrir íbúa eyðimerkurinnar. Niður vatnsins og hljóð vindflautanna sem hann kemur fyrir í opnum gluggum Negevminnismerkisins hafa mikilvægu hlutverki að gegna og á þann hátt höföar Karavan í verkum sínum ekki aðeins til sjónar og tilfinningu heldur einnig til heyrnar. í flæðandi sólarljósi Negev-eyðimerkur- innar brjótast Ijósgeislar í gegnum raufar og op á steinsteyptum göngum og rang- ölum Negevminnismerkisins og á þann hátt teiknar Karavan með sólarljósinu FORSÍÐU- MYNDIN FORSÍÐUMYNDIN er eftir SÍKríði Björnsdúttur listmalara. sem nýlega hélt sýninKU í FÍM-salnum 0« hlaut ágætar við- tökur. Myndin er unnin með acryl- litum (>k viðfanfísefnið er landslaK eins (>k reyndar á flestum mynda hennar á sýninfjunni. bessi mynd er svo ný af nálinni, að hún var ekki á sýninKunni, en hún er hinsvefíar í sama stfl. Gafjnrýn- endur töldu þessa sýninjtu merkan áfanfía á listferli Sigríðar.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.