Lesbók Morgunblaðsins - 01.09.1979, Blaðsíða 2
VÆNGJAÐUR DRAUMUR
Wright-bræður trúðu því staðfastlega, að unnt væri að búa til flugvél, sem stjórnað
yrði á flugi og þeir skildu, að lögmál skrúfunnar gildir jafnt í lofti sem vatni.
Þaö var kuldalegt um aö litast í
Kitty Hawk í Norður Karolinafylki í
Bandaríkjunum aö morgni þess 17.
desember 1903. Þaö haföi kólnaö
um nóttina og pollarnir, sem lágu
víösvegar á ströndinni eftir nýafstaö-
iö regn, voru ísi lagöir. Sterkur
vindur blés af noröri og þeytti gráum
skýstrókum yfir himininn. Þaö var
fátt, sem benti til þess, aö þeir
atburðir væru í vændum, sem áttu
eftir aö gera nafn þessa litla drunga-
lega fiskiþorps frægt á spjöldum
sögunnar um alla framtíö. Ekkert
benti til þess, aö nýtt og dýrölegt
tímabil væri aö hefjast í sögu mann-
kynsins, — tími flugsins.
Kitty Hawk er miðja vegu á 100 km
löngu sandrifi, sem liggur meðfram
og samhliöa strönd Karolinafylkis og
aöskilur Currituck og Alber-
marle-sundin frá ólgandi Atlantshaf-
inu. Árið 1903 var þorpið ekki annaö
en ein eöa tvær verzlanir, kirkja,
nokkur einkahús og smá húsaþyrp-
ing, sem hýsti áhöld og tæki Slysa-
varnafélags Bandaríkjanna og
Veöurstofunnar.
Suöur frá þorpinu, yfir sandflák-
ana, iá slóö í áttina aö næstu
varöstöö Slysavarnafélagsins, en
þær lágu meö um þaö bil 11 km
millibili suöur eftir ströndinni, sem
lengi haföi gengiö undir nafninu
„kirkjugaröur Atlantshafsins.“ Þegar
farnir eru um 6 km eftir þessari slóö í
áttina aö stööinni og í eins og hálfs
km fjarlægð frá henni, rísa sandöld-
ur í 23—30 m hæð upp af ströndinni.
Þær voru nefndar Kill Devil hæöir, en
nafnið kemur af rommi, sem brugg-
aö var þarna og ferðamenn á síöustu
öld sögöu að væri svo sterkt, aö þaö
gæti drepið ojöfulinn (kill the devil).
Þaö var á þessum slóöum, í nánd viö
hæðirnar, sem Wilbur og Orville
Wright höföu búiö um sig.
íbúar Kitty Hawk litu á þessa ungu
bræður frá Dayton í Ohio, sem
hálfgerö furðuverk. Þeir höföu fyrst
komið til staöarins sem feröalangar í
sumarfríi áriö 1900 og lýst því þá yfir,
aö einangrun staðarins, stööugur
vindur, stór flæmi af lausasandi og
afiíöandi brekkur í sandhólunum,
geröu staöinn sérlega ákjósanlegan
fyrir tilraunir þeirra í „vísindalegu
drekaflugi", eins og þeir orðuðu þaö.
Þeir komu svo aftur 1901 og 1902 og
fluttu meö sér nokkur stykki af
skringilega útlítandi flugtækjum. Og
þaö varö strax daglegur viöburöur
aö sjá ýmis furöuverk á lofti yfir Kitty
Hawk.
Wrightbræöur nutu óskiptrar virö-
ingar í Kitty Hawk. Á mælikvaröa
íbúanna þar voru þeir efnaöir menn
og höföu undir öllum kringumstæö-
um komið vinsamlega og kurteislega
fram og sýnt óskiptan áhuga á
þorpinu og íbúum þess. Samt sem
áöur voru þorpsbúar í vafa: þeir voru
raunsæir menn, unnu höröum hönd-
um og trúöu á, eins og einn þeirra
orðaöi þaö ... „á góöan Guö, heitt
helvíti og ... aö hinn sami góöi Guö
heföi aldrei ætlast til þess, aö
maöurinn gæti flogið“.
— O —
Þaö voru margar samverkandi
ástæöur fyrir því, að Wilbur og
Orville Wright voru komnir til Kill
Devil hæöa. Þeir voru synir biskups í
Sameinuðu Bræörakirkjunni og voru
36 og 32 ára 1903, Wilbur eldri.
Fjölskylda þeirra var meö eindæm-
um samheldin, en þó lá Ijóst fyrir frá
upphafi, aö afar náiö samband var
milli bræöranna tveggja. Seinna
sagöi Wilbur, að „... frá þeim tíma,
aö viö vorum smádrengir, liföum viö
Orville saman, lékum okkur saman
og í rauninni hugsuöum saman."
Wilbur lézt 1912, aöeins 45 ára
gamall, en Orwiile liföi til ársins
1948, varö áttræöur.
Áriö 1896, þegar þeir fengu fyrst
áhuga fyrir flugi, voru þeir orönir
eigendur að fyrirtæki sem fram-
leiddi, gerði viö og seldi reiöhjól.
Þó nágrannar þeirra litu aöeins á
þá sem venjulega smáborgara í
kaupsýslustétt, fannst bræðrunum
sjálfum, aö hæfileikar sínir heföu enn
ekki fengiö aö njóta sín til fullnustu.
Þaö var óeyrö í þeim og leir leituöu
einhvers tii aö spreyta sig á. Sú
óleysta þraut að geta flogiö á flug-
tæki, sem var þyngra en loftið, var
einmitt veröugt verkefni.
— O —
Menn haföi alltaf dreymt um aö
geta flogið, en enginn umtalsveröur
árangur haföi náöst á þessu sviði,
fyrr en í byrjun 19. aldar. Frá því um
1800 hafði þó áhugi á málinu stór-
aukist og margir verkfræöingar þess
tíma, bæöi í Ameríku og Evrópu,
höföu reynt aö leysa þau vandamál,
sem stóðu í vegi fyrir gerö nothæfrar
flugvélar.
Arið 1896 var merkisár í sögu
fiugtilrauna. Blöö og tímarit í Banda-
ríkjunum voru full af fréttum, sem
virtust benda til þess, að skammt
væri aö bíöa þess, aö nothæf flugvél
sæi dagsins Ijós. Frá Þýzkalandi
bárust sögusagnir og Ijósmyndir af
Otto Lilienthal, þar sem hann sveif
um loftin blá í einskonar svifflugu. Á
sama sumri tókst S.P. Langley,
ritara Smithsonian-stofnunarinnar,
aö fljúga tveim módelum, gufuknúö-
um, um allt aö 1250 metra vega-
lengd. Og nálægt Chicago var
Octave Chanute og félagar hans aö
smíöa og fljúga svifdrekum, aö hætti
Lilienthals, á sandflákunum viö
Michiganvatn.
Wilbur og Orville Wright hrifust
mjög af þessum fréttum. Þeir bók-
staflega kembdu bókasöfnin í leit aö
skrifuðum heimildum um loftsigling-
ar og skrifuðu Smithsonian-stofnun-
inni og báöu um frekari upplýsingar.
Þeir komust aö þeirri niöurstöðu,
að þrátt fyrir ýmsar tilraunir, sem
gerðar höfðu verið og virtust vel
heppnaðar og lofa miklu, þá var
vitneskja manna um þessi mál öll í
molum og meira og minna blönduö
misskilningi, missögnum og mót-
sagnarkenndum hugmyndum. Þaö
var fátt aö finna, sem gæti orðið
væntanlegum flugmanni til halds og
trausts. Þetta var hvort tveggja í
senn, letjandi og hvetjandi fyrir þá.
Þar sem hiö óþekkta var mun stærri
stærö í dæminu, en þá haföi grunaö,
þá leyndist hér möguleiki fyrir snjalla
aðila til aö láta Ijós sitt skína og.
leggja sinn skerf til þess, sem aö
lokum mundi takast aö vinna loka-
sigurinn.“
Þeir geröu sér Ijóst, eftir aö hafa
kynnt sér athuganir annarra, að
meginvandamáliö var fólgiö í stjórn
flugtækisins. Ólíkt því, sem er um
vagna og skip, sem aðeins þurfa aö
beygja til vinstri eöa hægri, þá þurfa
flugtæki einnig aö hækka sig og
lækka og halla sér til beggja hliöa,
Nú eru 76 ár liðin síðan Wright-bræður hófu mannkyniö til flugs á
söndum Kitty Hawk. Nýtt tímabil hraðfleygrar þróunar hélt innreið
sína og sér ekki fyrir endann á því. Þótt tækið væri frumstætt, er
flug bræðranna eitt mesta tækniafrek aldarinnar.
Eftir Tom D. Crouch.