Lesbók Morgunblaðsins - 01.09.1979, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 01.09.1979, Blaðsíða 12
 Un " m 1 fi j 1 1 H |i u\ r ,í Séð yfir aðalsalinn í Hnitbjörgum — myndin tekin hátt uppi, en sýningargesturinn sér aðeins upp undir verkin, sem standa flest á alltof háum stöllum. Listasafn Einars Jónssonar GEYMSLA EÐA GRAFHÝSI sem hindrar fremur en örvar, að verkin komi fyrir almennings- sjónir, enda eru Þau hvert ofan í öðru og njóta sín með eindæm- um illa. © Snemma á þessu sumri var íbúö þeirra hjóna, Önnu og Einars Jónssonar, opnuö til sýnis. Nokkrar myndir birtust í blöðun- um af því tilefni og var þaö sannarlega tilbreyting, því venjulega er hljótt um safnið og ævistarf Einars Jónssonar; jafnvel dauöaþögn. Má til samanburöar minna á Ásgrímssafn, sem Bjarnveig Bjarnadóttir sér um, aö alltaf er eitthvað aö gerast; sumarsýningar og vetrarsýn- ingar, nýjar uþphengingar, jafnvel nýjar myndir, sem gefnar hafa veriö safninu. Enda þótt safn Einars Jónssonar sé kastala líkast, er þaö versta safnhús, sem ég hef nokkru sinni augum litiö. í rauninni er þaö grafhýsi fremur en safn og þjónar fremur þeim tilgangi aö verk Einars Jónssonar komi ekki fyrir almennings- sjónir. Þaö var út af fyrir sig kraftaverk, aö Einar skyldi mæta þeim skilningi á heimili foreldra sinna í Galtafelli, aö hann gat siglt utan til náms og alla tíö síöan gefiö sig óskiptur aö myndsköpun. Hann er vissulega einn af þeim stóru í myndlistar- sögu okkar, en þrátt fyrir safniö, sem geyma skyldi lífsverk hans nærri hjarta höfuðstaðarins, er Einar lítt þekktur meöal þess helmings þjóöarlnnar, sem er undir þrítugsaldri. Hann gekk ekki í takt viö breytt viöhorf í myndlist, sem fram komu snemma á öldinni og hélt ótrauöur sínu striki sem myndskáld. Verk hans eru ýmist trúarlegs eöa táknræns eölis, oft meö þjóölegu ívafi, en unnin undir merki klassískrar höggmyndalistar. Styttur þeirra Ingólfs Arnarsonar, Þor- finns Karlsefnis, Jóns Sigurössonar, Kristjáns IX. og Jónasar Hallgrímssonar eru eftir Elnar og standa allar á almanna- færi í Reykjavík. Þar er hinsvegar sorg- lega lítiö aö sjá af verkum Einars, sem telja má skáldskaparlegs eölis. Útilegu- maöurinn víö Hringbraut er þó í áttina, en rækilega falinn á bak viö stóran og fallegan trjálund. Afsteypa verksins á Akureyri nýtur sín þó ólíkt betur. Þaö er til skammar, aö ekki skuii hafa veriö komiö upp afsteypum af meiri háttar verkum Einars svo sem Öldu aldanna, Hvíld, Fæöingu sálarinnar, Úr álögum og Dögun. Afsteypan af Öldu aldanna hefur þó verið komið upp í Vestmannaeyjum fyrir framtak Árna Johnsen o.fl. og var þaö lofsvert. Standmyndir af ákveönum persónum eru eitt og fjráls höggmyndalist er annað. Reykjavík er sæmilega búin listaverkum og raunar ótrúlega margar höggmyndir á almanna- færi, þegar betur er aö gáð. Yfirleitt eru það frjáls höggmyndalist; flest verkin eftir Ásmund Sveinsson og Sigurjón Ólafsson, en einnig prýöa borgina verk eftir Ragnar Kjartansson, Ólöfu Pálsdóttur og fleiri. Aö útilegumaöur Einars Jónssonar skuli vera einasta frjálsa myndverk hans á almannafæri í borginni er hreint ótrúlegt og vitnar betur en margt annað um þaö, aö Einar var á seinni parti ævi sinnar ekki í náöinni hjá þeim sem réöu fyrir listpóli- tíkinni. Hann einangraöist í Hnitbjörgum og sú einangrun mun ekki hafa veriö honum allfjarri skapi, því Einar var einfarl í eðli sínu og sérvitur þótt hann væri vinur vina sinna. Framúrstefna og nýtízku höggmyndalist undir áhrifum frá kúbisma og öörum rétttrúnaöi aldarinnar, var honum ekki aö skapi. En þaö var náttúru- lega ekki hægt aö líöa manninum aö turnast ekki í byltingunum og svo langt gekk dellan, aö sumir samtíöarmenn Einars í listamannastétt, virtust trúa því staðfastlega aö verk hans væru ekki listræn eðlis. Meira aö segja er ekki ýkja langt síöan Halldór Laxness kom því á framfæri, aö Einar hafi ekki kunnaö anatómíu. Þaö er aö sjálfsögöu ekki verri fullyrðing út í bláinn en hver önnur og

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.