Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1980, Síða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1980, Síða 13
R OG PLEBEJAR Smásaga eftir Hans Kirk Halldór Stefáns- son þýddi pao heyröist dynkur frá risher- bergjunum og frú Pliníus þeyttist upp, til aö áminna drengina um aö þeir yröu aö vera kyrrlátir, svo læddist hún niður og hlustaöi andartak viö dyr vinnuherbergisins, en guöi sé lof Pliníus haföi ekki vaknað. Hún heyrði djúpan, rólegan andardrátt hans. — Ojá ojá, Pliníus gapti, þegar konan hans gekk inn meö kaffibakk- ann. — Þá er maður aftur úthvíldur og tilbúinn í stríöiö. Þakka þér fyrir, viltu svo rétta mér kassann meö smá- vindlunum. Frú Pliníus brosti ánægö, maöur- inn var í góöu skapi. Á milli gat hann verið dálítiö erfiöur, þegar hann vakn- aöi og átti aö fara aftur í skólann. Hann haföi ákaflega viökvæmt skaplyndi. Hún strauk sér yfir þunnt, fölnaö háriö og ákvaö aö segja frá því stríöi sem hún haföi átt í með stofustúlkuna í húsinu. — Fyrir 10 mínútum bað ég fröken Hansen aö fara til Justesens kaupmanns, eftir vörum, sagöi hún, en hún fullyrti aö fólk mundi gera grín aö henni, ef hún léti sjá sig meö körfu á götunni. Hún vill fá vörurnar heim- sendar. En mér sýnist nú samt, enda þótt hún sé ráðin sem stofustúlka en ekki sem vinnukona aö hún sé skyldug tll aö reka þau erindi sem henni er falið. — Þetta er táknrænt, sagöi Pliníus. — í hæsta lagi táknrænt. Þessi hálfmenntunarhroki. í gamla daga voru hinar virkilegu hugsjónir í heiðri haföar, nú fyrirfinnst ekkert nema hrokinn. Eins og hinn virkilega menntaöi maöur mundi fyrirveröa sig fyrir aö sýn sig meö körfu á armi á götunni. Vilt þú biöja fröken Hansen aö koma inn til mín. Og heyrðu kallaöu á drengina. Þaö er góö lexía í uppeldi hvernig ég bregst viö slíkum vanda. Frú Pliníus flýtti sér út til aö kalla saman íbúa hússins. Andartaki síöar voru allir samankomnir í stofu doktors- ins. Drengirnir gáfu hver öörum olnbogaskot. Þeir voru ekki á þvi hreina meö hvort þaö voru þeir sem höföu misstigið sig. Fröken Hansen var rjóö í kinnum. Frú Pliníus haföi tekiö sér stööu við dyrnar, sem dyravörð- ur. Pliníus lagfæröi á sér gleraugun og leit rannsóknaraugum á ungu stúlk- una. — Fröken Hansen, sagöi hann, konan mín hefur látið mig vita að þér hafið neitaö aö sækja vörur til kaup- manns Justesens í körfu.. . — Ég neitaöi ekki, greip unga stúlkan fram í, mér fannst bara .. . — Viljið þér sýna mér þá velvild aö lofa mér aö tala út, sagði Pliníus og þurrkaði enniö, þér færöust aö minnsta kosti undan svo að konu minni fannst þaö skylda sín, aö láta mig vita um það .. . Viljið þér segja mér hvort okkar þér haldiö aö sé þekktara í þessum bæ, og þar af leiöandi viökvæmara fyrir gagnrýni og bjánalegum athugasemdum. Mér mundi aldrei detta þaö í hug, aö reyna aö telja yöur hughvarf til aö fara með körfu út á götu, ég ætla þess vegna aö biöja yður um leiðsögn þegar ég núna eftir nokkrar mínútur fer í skól- ann. Ég ber körfuna og þegar viö komum aö dyrum Justesens kaup- manns, takiö þér hana og pantið hinar umbeönu vörur og látiö sendil Justesens kaupmanns fara meö körf- una heim. — Já en fyrst aö drengurinn á hvort sem er aö bera körfuna heim, geturm við alveg eins hringt, sagði fröken Hansen þrjósk. Pliníus andvarpaöi uppgefinn og greip í grásprengt háriö. Stúlkan skildi sem sagt ekki aö hann hæddi hana yfirlætislega. — Viljið þér fylgja mér niður götuna fröken Hansen, eða viljiö þér þaö ekki, sagöi hann. Gott, viljiö þér þá vera svo vinsamlegar að fara fram og finna körfuna og þið drengir verðið aö koma ykkur í skólann. — Þaö er eitt enn, sagöi frú Pliníus frammi í ganginum. — Ég held ég veröi aö segja þér að hænsni Knudsens kennara hafa aftur veriö inni í garöinum okkar. Þau hafa rótaö til í jurtabeöinu svo skelfing er aö sjá. — Jæja, sagöi Pliníus, ég er greinilega neyddur til aö biöja herra Knudsen kennara um aö koma því inn í höfuöið á hænsnunum sínum að viö lifum enn þá í samfélagi þar sem eignarrétturinn er virtur. Það skal verða gert. Fröken Hansen kom með körfuna og rétti doktornum hana. Um leið rétti frú Pliníus honum silfurbúinn staf. Pliníus vafraði á undan niöur veginn. Unga stúlkan fylgdi honum eftir í nokkurra skrefa fjarlægö. Viö horniö á aðalgötunni stansaöi Pliníus aöeins, stúlkan var komin upp að hliö hans. — Við fylgjumst, sagöi hann hranalega. Göngulag Pliníusar var sambland af viröulegum vöövahreyfingum og fyrirmyndar galliskum þokka. Hann var útskeifur og fjaöraði mjög í hnjáliðun- um viö hvert skref. Þegar hann mætti einhverjum sem hann þekkti, heilsaöi hann með yfirdrifnum hátíöleg- um serimonium. í tíu skrefa fjarlægð færöi hann körfuna yfir í þá hönd sem hann hélt á stafnum í og sveiflaði barðabreiöum hattinum í glæsilegum boga, og boraöi augunum í ásjónu viðkomandi. Eftir einn tvo tíma yröi þaö komiö út um allan þennan litla bæ, aö dr. Pliníus heföi í eigin persónu boriö körfuna til kaupmannsins, vegna þess aö þjónustustúlkan heföi neit- aö því. Fólk myndi skilja, aö svoleiðis framkomu hafði aðeins sérstakur and- ans jöfur og fordómalaust fólk. Viö dyr Justesens kaupmanns rétti hann frk. Hansen körfuna meö form- legri kveðju. Kona er kona, jafnvel þótt þaö sé hlutskipti hennar aö bursta stígvél manns. Svoleiöis kemur andans aristokrat fram. Látum nú demokratana leika það eftir hugsaði hann ánægður. í síöasta tíma haföi Pliníus þriöja bekk í latínu. Sá fyrsti sem hann tók upp var sonur Knudsens kennara. Fórnardýrið lauk tveimur erfiöum spurningum málfræöilegum, en viö hina þriöju lenti hann í strandi. — Gott, sagöi Pliníus, þá reynum viö að fara aðra leiö. Eftir um þaö bil fimm mínútur haföi honum tekist meö regni af spurningum aö gera Knud- sen kolruglaðan og taugaveiklaöan, og hann hjó velhirtri hendinni í púltið og sagöi: — Þetta er einfaldlega forsmán! Aörir í bekknum önduöu léttar. Fórnardýrið var fundið. Þaö sem eftir var tímans mundi Plinius óskapast, sökkva sér niöur í eyöilegginguna,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.