Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.1980, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.1980, Qupperneq 6
Salvador gerir sprell. Hann reynir að gera lífift súrrealíakt eins og myndir sínar. Nýleg grein úr norsku blaði, þar sem sagt er frá auglýsingabrellum og trúðleik þessa fræga súrrealista sem hvorki slakar á klónni í þeim efnum né listinni þótt orð- inn sé nær áttræður. Enn kemur „Ég elska konuna mína, Gölu, svo heitt, aö mig langar til aö boröa hana, ef hún deyr á undan mér. Aö vísu get ég alls ekki ímyndaö mér, aö hún geti dáið, en ef þaö skyldi nú gerast samt, gæti ég hugsaö mér aö éta líkið. Þaö yröi vottur um þá innilegu ást, sem ég ber til hennar, þó aö sumt fólk myndi auövitaö kalla þaö mannát,“ segir Salvador Dali. Gala Dali er nú 81 árs, en hinn undarlegi eiginmaöur hennar er 75 ára. Aila sína ævi hefur hinn aldni listamaöur haft yndi af því aö ofbjóöa fólki, og hann hefur aldrei duliö hina barnslegu gleöi sína viö þá iöju. Hann býöur til dæmis gestum í miðdegisverö og hefur humar á boröum. En svo er hellt yfir humarinn súkkulaöisósu. Ein nunna og þrír Kínverjar Heimili Salvadors Dali nálægt hafnar- bænum Lligat ber þess eins Ijósan vott og hugsazt getur, aö þar býr sérvitringur, sem veit, hvað hann vill. Heimili hans samanstendur af fimm fiskimannakofum, sem eru tengdir meö göngum, húsagörö- um og stígum og alls staöar getur aö líta hina furöulegustu hluti. í einu herbergjanna hangir snúra niöur úr horni. Ef einhver gestanna getur ekki stillt sig um aö kippa í snúruna, kveöa viö tónar úr vögguvísu eftir Brahms. Sund- laug, sem er í laginu eins og mannslimur, lét hann byggja til aö sýna þeim þúsund- um ferðamanna, sem koma af forvitni til heimilis hans og glápa gegnum rúöurnar, hvaö honum finnist um röskun þeirra á friöhelgi einkalífs hans. Skriflegt boö Salvador Dali býr ekki með sinni heittelskuöu eiginkonu. Fyrir nokkrum árum létu þau hjónin reisa höll eina 160 km frá fiskimannakofum Dalis. Þar býr Gala Dali út af fyrir sig, og hinn stórskrítni listamaður er gallharður á því, aö hann heimsæki konu sína því aöeins, aö hann fái skriflegt boö. ¥ a óvart Þegar hann var 15 ára, lét hann hár sitt vaxa og heimtaði aö fá aö ganga í stuttbuxum, hnéháum sokkum og meö feikistóran flókahatt á höföl og vakti oft skelfingu innan fjölskyldunnar og meöal gesta meö því aö hanga meö höfuöið niður af þaki hússins, þangaö til honum lá viö öngviti. Dali sótti listaháskólann í Madrid, en þó aöeins skamma hríö, því aö hin undarlega hegöun hans átti illa viö hiö virðulega umhverfi og honum var brátt vísaö burt. Dali meft „mjúka“ sjálfsmynd. Súrrealísk uppákoma: Þannig klæddur mætti Dali í hátíftlegt samkvæmi í London. Á jakka hans hanga 88 glös meö piparmintulíkjör — og eitt meft dauðri flugu. Jakkinn a tarna hefur einstaklega jákvæft áhrif 6 kynlífiö, segir Dali. Dyravörður í ruggustól En Dali var óforbetranlegur. í fyrstu ferö hans til Bandaríkjanna, þegar hann var þrítugur að aldri, voru myndirnar, sem hann ætlaöi aö sýna, bundnar viö annan handlegg hans alla leiöina á skipinu. Skömmu áður en skipiö lagöi aö bryggju í New York, fékk hann bakara skipsins til aö baka tveggja metra langt brauö, sem hann veifaöi framan í blaða- mennina, sem biöu hans, um leiö og hann bauð þeim góöan daginn. Sýningin gekk ágætlega og hiö sama má segja um kveöjuhóf Dalis. Þegar gestirnir komu og afhentu boöskort sín, fengu þeir í staðinn hráa pylsu úr hendi dyravaröarins, sem sat í ruggustól meö krans af Ijósrauöum rósum um höfuö sér. Yfir stiga hékk baðker fullt af vatni og einnig stór ísklumpur, sem draup úr ofan á gestina, þegar þeir gengu undir honum. í einu horninu lá dauð kýr, en milli rifja henni haföi veriö stungiö hátalara úr gömlum grammifóni og úr honum drundi franskur vísnasöngur. Köfunarútbúnaður Þegar Salvador Dali var eitt sinn staddur í London, sem ekki var oft, var hann beðinn aö halda fyrirlestur um llst. Hann mætti til fyrirlestrarhaldsins klædd- ur fullkomnum kafarabúningi meö hjálmi og öllu saman, þar á meðal níöþungum blýstígvélum, sem hann átti afar erfitt meö aö hreyfa sig í. En þannig þrammaöi hann þó inn í salinn. Meö billiard-stöng í annarri hendi og gimsteinum sett sverö í hinni sem og meö tvo rússneska úlfhunda í bandi. Þegar hann stóö á sviöinu og reyndi aö skrúfa hjálminn af, var hann svo fastur, aö þaö varö honum ofviða. Menn skunduöu Dali til hjálpar, en honum lá viö yfirliöi kófsveittum. Hann baröi allt hvaö af tók í hjálminn til aö losa hann, en áheyrendur héldu, aö þetta væri allt tómt Dali-grín, skemmtu sér ágætlega og skellihlógu. Hin fáránlegu uppátæki Dalis hafa flest heppnazt, en honum hefur einnig mistek- izt hrapallega. Fyrir mörgum árum fékk hann þá hugmynd aö ríöa á fíl eins og Hannibal yfir Pýreneafjöll. Þaö tókst að fá fíl, en þegar til kom kæröi fíllinn sig hvorki um þennan fíflalega listamann eöa hinn mikla fjölda áhorfenda, sem kom til aö horfa á ósköpin. Fíllinn, sem hét Surus, þrjózkaöist við að láta aö stjórn Dalis, og eftir aö hann haföi aöeins komizt áfram 35 kílómetra á fjórum dögum og fíllinn margsinnis nærri búinn aö kasta Dali af baki, gafst hann upp á öllu saman. Fílinn gaf hann dýragaröinum í Valencia. Þegar Dali afhenti fílinn formlega, sagöi hann: „Hann á ekki heima í garöinum okkar, og svo er konan mín meira fyrir nashyrninga." Dauöinn hefur löngum hrifiö huga Salvadors Dali sem og kynlíf. Hann heldur því fram, aö hann haldi sér í þjálfun til ástaleikja meö því aö baöa sig í sírópi og drekka tvö glös af rauðvíni. Þegar hann var einu sinni spuröur að því, hvort hann væri ekki í rauninni blekk- ingameistari, svaraöi hann: — Þvert á móti. Ég er pottþétt dæmi um snilligáfu. Sumir kynnu aö vilja halda því fram, aö Salvador Dali væri jafnsnjall vió aó vekja á sér athygli og hann er aö mála. ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.