Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.1980, Side 8

Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.1980, Side 8
! Mikið þrái " A eg Þorstein Ö Þegar Ríkisútvarpiö haföi starfað í tæpan áratug viö stööugt og vaxandi gengi, þrátt fyrir höröustu heims- kreppu og yfirvofandi nýja heims- styrjöld, stofnaöi ungur og dugandi kennari úr Þingeyjasýslu Utvarpstíö- indi. Hann hét Kristján Friðriksson, heitir þaö raunar enn. Nú landskunn- ur iðnrekandi og áhugamaöur um þjóömál. Þetta rit hans varö mjög útbreitt á stríðsárunum, birti myndir af útvarþsfólki og kynnti efni. Þar kom og mikiö af tækifærisvísum. Þá var enn á lífi Ólína Jónsdóttir skáld- kona á Sauðárkróki. Hún orti lands- kunnar vísur um Vilhjálm Þ. og Þorstein Ö. aö maöur nú ekki tali um Helga okkar Hjörvar. Hér er sýnis- horn: Þreyta dags úr huga hörfar, held ég út á gömul miö, þegar rómur Helga Hjörvar hljómar gegnum útvarpiö. Frásögn hans minn anda örvar, oft er hún af töfrum full. Sálin í þér, Helgi Hjörvar, hlýtur að vera kostagull. Ellín vonir niður njörvar, neitar þrátt um bros og yl. Sælla væri að sjá þig, Hjörvar, samt er þaö mesta hættuspil. Helgi svaraði auðvitað: Hnígur allt á ina sveif, um ástir vart ég hirði, en sú er fyrst mitt hjarta hreif, hún var úr Skagafirði. Dregur föl um hólm og höf, horfum við á þaö bæði. Yfir hennar grónu gröf gerirðu til mín kvæöi. Valt mun traust á veika sál, vil ég ei um þaö rita. Sjónin verður sumum tál. Sælla er að trúa en vita. Ónefndur orti: Dýrðarkarlinn Helgi Hjörvar, hér í lífsins táradal, konur vorar ætíð örvar, eins og líka vera skal. Guöbjörg Vigfúsdóttir var lengi aöalþula útvarpsins. Þá voru konur þulur, en karlar þulir. Fáar konur þjóöarinnar nutu meiri víröingar, aö- dáunar, jafnvel ástríkis á fyrstu árum útvarpsins en einmitt þulurnar. Hag- yröingarnir sendu þeim vísur, en þoröu ekki alltaf aö láta nöfn sín fylgja, stundum var þaö af hæversku, en stundum gat ástæöan veriö sú, að einhver önnur, þeim nálægari, gat tekiö þaö illa upp aö vinur þeirra væri aö yrkja um þessar opinberu dýrö- arkonur. Hér er vísa til Guöbjargar frá Hrútfirðingi: Röddin skæra hljómahlý hylli nær hjá þjóöum. Hugarkærar þakkir því þér skal færa í Ijóðum. Eflaust hafa vísurnar veriö fleiri, og dýrt er kveöið, en þessi eina fær aö fljóta á ný til aö minnast þessarra góðu ára. Helga Halldórsdóttir á Dagveröará, Snæfellsnesi, sendi Helga Hjörvar þessa stöku: Enn hvað skemmta ætíð mér ævintýrin fögur. Helgi minn, ég þakka þér þínar góðu sögur. Á fyrstu árum útvarpsins var versl- unarmaöur á Raufarhöfn, er Siguröur hét Árnason. Veöurspár útvarpsins voru daglegt umræöuefni. Einhver varpaöi fram þeirri spurningu, hvort veðurspáin hans Jóns Eyþórssonar myndi nú rætast í dag. Sigurður orti: Mikill liggur munur í maður og guð aö vera. Annar getur upp á því hvaö ætli hinn aö gera. Theresía Guömundsson veöur- stofustjóri er norsk aö ætt. Hún giftist ung Baröa sagnfræöingi, alþingis- manni og þjóöskjalaveröi. Hún var meöal fyrstu kvenna hérlendis, sem uröu forstööumenn ríkisstofnana. Oft voru veðurfréttirnar í útvarpinu við hana kenndar. Menn sögöu: Hvaö syngur nú í Theresíu? Ólína Jónas- dóttir orti: Ennþá lægð viö landið er, lítið um sumarhlýju. Hreint er einsog heyrist mér hrollur í Theresíu. Þegar þetta var bjó Ólína ekkja ein í litlu koti á Sauöárkróki. Einhverju sinni þurfti hún aö fá lagtækan mann til aö dytta að húsi sínu fyrir veturinn. Það er tilefni eftirfarandi vísu: Mér finnst eitt og annað bresta á þaö sem ég frekast kaus. En eitthvað meö því allra versta er að vera karlmannslaus. Þorsteinn Ö. Stephensen var á sínum yngri árum og raunar langt fram eftir starfsaldri sínum útvarps- þulur, þar eins og á leiksviði manna vinsæiastur. Þaö kemur fram í þess- ari vísu Ólínu: Ekki er klukkan orðin sjö, ennþá hefur birtan völdin. Mikiö þrái ég Þorstein Ö., þegar fer að skyggja á kvöldin. Sogamýrin er orðin snyrtileg og baggahestur Sigurjóns Ólafssonar stendur dálitið einmana innan um ungar trjáplöntur. En hver er ávinningurinn af þvi að hafa þessa galeyðu óbyggða? Á flugvallarsvæðinu væri hægt að koma fyrir 20—40 þúsund manna byggð og þar meo yrðu skapaðar betri forsendur fyrir uppbyggingu og endurlífgun gamla miðbæjarins. Eitt af meiriháttar bersvæðum borgarinnar er vestast í Fossvogi, frá kirkjugarðinum að Borgarsjúkrahúsinu.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.