Lesbók Morgunblaðsins - 20.06.1981, Side 5
Hákon Jóhannsson
Stangaveiði er íþrótt
Aö kasta flugum og lóðum af stöng
(nákvæmnis- og lengdarköst) eru viður-
kenndar íþróttagreinar af Ólympíunefnd-
inni, þótt þær hafi ekki verið keppnis-
greinar á Ólympíuleikunum, en svo er
einnig um ýmsar aðrar íþróttagreinar.
Áöur en ég ræði um gildi stangaveið-
innar fyrir manninn og viðhorf mín til
þessara mála, ætla ég aö kynna tilgang
og störf stangaveiöifélaga og Lands-
sambands stangaveiðifélaga með fáum
oröum.
Tilgangur Landssamb. stanga-
veiðifél. er í megindráttum þessi:
Aö vinna að því aö bæta aöstöðu
manna til stangaveiða. Aö vinna að
aukinni fiskirækt og aö reyna aö koma í
veg fyrir hverskonar rányrkju og ofveiði
á göngu- og vatnafiskum. Áö stuöla aö
góðri samvinnu stangaveiðimanna og
veiðiréttareigenda. Að vinna að náttúru-
vernd og kenna mönnum að viröa lög og
reglur og sýna háttvísi í veiði og við
umhverfi sitt.
LS og stangaveiöifélögin hafa mörgu
góöu komiö til leiðar í þessum efnum.
Stofnun Fiskræktarsjóös er eitt
merkasta málið, LS byrjaði að vinna að
þessu máli árið 1954. Reynt var að fá
hann inn í lax- og silungsveiöilögin,
þegar þeim var breytt áriö 1957, en
tókst ekki. Þaö er fyrst áriö 1970, sem
ákvæöi eru um stofnun fiskræktarsjóös,
sbr. 14. kafla laga um lax- og silungs-
veiöi.
Laxveiði í Norður-Atlantshafi
LS er aöili að Norðurlandasambandi
stangaveiðimanna, skammst. NSU. Á
fundi hjá þessum samtökum, sem var
haldinn í Reykjavík árið 1967, voru hinar
auknu laxveiöar í N-Atlantshafi á
dagskrá samkv. beiðni okkar í LS. Þar
var samþykkt ályktun um bann við
laxveiðum á alþjóðahafsvæöum í N-Atl-
antshafi. Mér vitanlega er þetta fyrsta
ályktunin, sem var samþykkt um þessar
veiðar.
Svona til fróöleiks vil ég geta þess að
þaö var fyrst þegar bandarískir stanga-
veiðimenn höfðu við orð að hefja herferð
gegn dönskum vörum aö Danir létu sig
og féllust á friöun. Þetta er ágætt dæmi
um hverju áhugamannafélög geta fengið
áorkað.
Nú er aö koma upp alvarlegt mál. Þaö
eru auknar laxveiöar á línu norður af
Færeyjum, innan 200 sjóm. fiskveiði-
lögsögu. Það, sem er kannske hvað
alvarlegast, er aö þarna er veitt mikið af
smálaxi. Magniö er því miklu meira en
tonnafjöldinn segir til um. Laxveiðar eru
einnig stundaðar í allmiklum mæli vestur
af Norður-Noregi á alþjóöa hafsvæðum.
Einn stangaveiðimaöur sagöi viö mig
fyrir skömmu: „Stangaveiðimenn eiga aö
hætta að skipta sér af rányrkjulaxveið-
um Dana og Færeyinga í N-Atlantshafi.
Látum þá bara veiða laxinn okkar. Þá
minnkar um leið áhugi útlendinga fyrir
veiðum hér og viö fáum aö vera í friði
fyrir þeim.“ Þetta er sjónarmiö.
Veiöimálaráðstefna 1969
Landssamb. stangav.fél. efndi til
ráöstefnu um vatnafiskamál í des. áriö
1969.
Ráöstefna um mengun ferskvatns
Árið 1976 gekkst Landssamb.
stangav.fél. fyrir ráðstefnu um mengun í
ám og vötnum. Ráöstefna þessi var
mjög vel heppnuð, að dómi þeirra sem
hana sátu.
Greinarhöfundurinn, Hákon Jóhannsson.
Hákon veiddi sinn
fyrsta lax á fiugu eins
og þá sem hér sést og
heitir Black Doctor.
Veiðimönnum þykír
langmest spennandi að
veiða á flugu. Laxinn
hefur mikla möguleika
á að sleppa, oftast nán-
ast ósærður og þaö er
því engan veginn af
fordild, þegar veiöi-
maðurinn veiöir á flugu.
Stangaveiði og giídi
hennar fyrir manninn
Veiöimennskan og veiöigleöin er arf-
ur, sem maöurinn hefur gengiö með, allt
frá frumbernsku mannkynsins.
Það er því eölilegt að maöur hafi
löngun til að taka sér veiöistöng í hönd
og fást við sprettharða laxa, oft og tíöum
í straumþungum ám viö erfiöar kringum-;
stæöur, en þá reynir einmitt á hæfni
veiöimannsins.
Stundum virðist það gleymast að
maöurinn er útivistarvera. Með aukinni
menningu, tækni og allskonar þjónustu
fer þeim sífjölgandi sem stunda atvinnu
sína innan dyra. Þetta fólk hefur brýna
þörf á útiveru og aö stunda einhverja
íþrótt meö hæfilegu álagi. Vegna legu
landsins höfum viö ekki um margt að
velja, að sumarlagi, eins og margar
aðrar þjóðir.
Hér er stangaveiðin kjörin íþrótt fyrir
alla fjölskylduna enda vinsæl.
Fólk á öllum aldri stundar hana, allt
frá börnum og uppúr, eftir því sem líf og
heilsa endist hverjum einum. Hvaö mig
snertir, þá byrjaði ég sem 6—7 ára
snáöi að veiða með elsta bróður mínum
á færi af klöppum og bryggjum. Á
unglingsárunum veiddi ég silung en á
fulloröinsárunum hef ég haft mestan
áhuga á laxveiöinni þótt silungsveiöi sé
einnig spennandi. Þannig er mörgum
öörum stangaveiðimönnum einnig fariö.
Þaö er erfitt að segja hvaö margir
stunda stangaveiði hér á landi. Um það
eru ekki til skýrslur. Ég tel að það muni
vera um eða rúmlega 25 þúsund manns.
Þar af sennilega um 6 þús., sem stunda
laxveiöi.
Án nokkurs vafa er stangaveiöi mjög
heilbrigð íþrótt. Menn eru úti allan
daginn, ganga meö strönd vatnsins eða
með ánni, oftast fleiri km í misjöfnu
Laxi landað í Noróurá. Aö veiöum í Hvítá í landi Snæfoksstaöa í Grímsnesi. Skógræktar-
félag Árnesinga á jörðina. Nú þykir viö hæfi að stunda þar
netaveiöar.
Fiskrækt — fiskeldi
Aukin friöun, fiskrækt og fiskeldi eru
þau mál, sem stangaveiöimenn hafa sýnt
hvaö mestan áhuga.
Stangaveiðifélögin hafa beitt sér fyrir
fiskræktarframkvæmdum á vatnasvæð-
um, sem áöur voru ýmist fisklítil eöa
fisklaus, meö seiöasleppingu o.fl. Á
þetta bæöi við um ár og stööuvötn. Þaö
kom reyndar fram í mjög fróölegu erindi
Teits Arnlaugssonar, á veiðimálaráð-
stefnu, sem var haldin hér fyrir skömmu,
aö þaö var Stangaveiöifél. Reykjavíkur
sem sleppti flestum sumaröldum seiöum
áriö 1979. Stangaveiðimenn eiga hluti í
mörgum klak- og eldisstöðvum.
Eins og fram kemur í þessu stutta
yfirliti hafa stangaveiöifélögin og Lands-
samband þeirra unniö aö mörgum
áhugaveröum og góöum málum, ekki
aðeins beinlínis hvaö viö kemur stanga-
veiði, heldur miklu oftar en hitt að
aukinni friðun, fiskrækt og umhverfis-
vernd, sem er reyndar mjög eðlilegt,
þegar betur er aö gáð.
Ástæöan er augljóslega sú, aö
stangaveiðimenn kynnast ám, vötnum
og umhverfinu betur en flestir aðrir. Þeir
iæra aö hafa augun opin og einn af
eiginleikum góös veiðimanns er að
skynja umhverfi sitt.
veöri, eins og þaö er hjá okkur. Oftar en
hitt blæs vindurinn, eöa þá aö þaö rignir,
stundum reyndar hvort tveggja, enda
þótt viö fáum einnig góðviðrisdaga.
Þetta herðir okkur aöeins og veitir okkur
líkamlegan styrk, já og einnig andlegt
jafnvægi.
Margir spyrja hvaö þaö sé, sem geri
stangaveiðina svo heillandi og eftirsótta,
sem raun ber vitni. Vafalaust eru það
mörg samverkandi áhrif, eins og aö
komast burt frá dagsins önn, aö dveljast
viö ána eöa vatniö og njóta friösældar,
ýmist einn eöa meö góöum félögum.
Virða fyrir sér straumlag og geta sér til
5