Lesbók Morgunblaðsins - 20.06.1981, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 20.06.1981, Blaðsíða 7
Falleg fluga. Skyldi lax- inn hafa sama smekk og maöur- inn? Greinir hann liti á sama hátt? Þessi er fal- leg og heitir Silver Doct- or. miklu lægra vegna offramboös á veiöi- dögum, sem nú þegar væri fyrir hendi. Væntanlega yröi verðiö eitthvaö lægra ef miöa skal viö erlendan gjald- eyri. Öllu réttara væri þó aö segja, að veröhækkanir á veiðileyfum, yröu kannski ekki eins miklar í okkar mynt og þær hafa veriö hingað til. Ég tel frjálsa verðmyndun innanlands eölilega á þessu sviöi sem öörum. Stangaveiöimenn vilja greiöa vel fyrir veiöileyfi eins og verö veiðileyfa á þessu sumri bera vitni um. Þaö er þó augljóst mál að landsmenn veröa aö sætta sig viö þau laun, sem þjóðfélagiö og atvinnuvegirnir þola. Viö gtum ekki keppt viö erlenda auömenn um verö veiðileyfa á alþjóöamarkaöi. Stangaveiöin á aö vera afþreyingar- íþrótt, sem flestir landsmenn eiga aö geta stundaö. Bjóðum útlendingum svokallaða „afgangsveiðidaga“ Hinsvegar vísa ég offramboöi á veiði- dögum á bug. Þetta tal um offramboð, er aöeins þaö, aö þessir sömu menn vilja koma út leyfum á svæöum, þar sem veiöivon er lítil, stundum engin. Svo er ég ekki þeirrar skoöunar aö erlendir stangaveiðimenn hverfi héöan alfariö. Hvernig væri aö reyna aö selja útlendingum þessa „veiöidaga"? Er ekki sífellt veriö aö tala um aö veiöimagniö skipti þá litlu. Eigum viö endilega aö hiröa þessa mola? Ég minnist þess aö fyrir nokkrum árum auglýsti einn veiöiréttareigandi leyfi til sölu, áður en hinn svonefndi útlendingatími hófst. Skömmu síðar bar hann sig undan, í blaöagrein, aö þessi leyfi seldust ekki. Ástæöan var einfaldlega sú, aö menn vissu aö laxinn er venjulega ekki kominn á þetta svæöi á þeim tíma, sem í boöi var. Árnar fyllast ekki af laxi á einni kvöldstund eöa svo, eins og þegar fólk fer inn á skemmtistaö. Hann er aö ganga í árnar nær allt sumariö, þótt hann geri þaö meira einn tíma en annan. Veiöi- svæöin opnast því oftast smátt og smátt. Noröurá í Borgarfiröi, ein af fegurstu og beztu laxveiöiám landsina. Samstarf Stangaveiöimenn vilja hafa góöa sam- vinnu viö veiöiréttareigendur. í mörgum tilfellum hefur hún veriö meö ágætum og hefur þá skapast á milli þessara aöila gagnkvæmt traust. Meöal veiöibænda eru margir bænda- höfðingjar, sem láta skammtímasjón- armiö ekki villa sér sýn. Þeir segja aö bestu og traustustu leigutakarnir séu stangaveiðifélögin. Því miöur eru það þó margir veiöirétt- areigendur, sem ekki eru þannig þenkj- andi. Þeir láta sig litlu skipta áhuga almennings á stangaveiði, ef þeir telja auöfenginn gróöa annars vegar. Hér vil ég taka þaö alveg sérstaklega fram, aö veiðiréttareigendur eru engan veginn ailir bændur. Þeir, sem eiga jafnvel stærstu hlutina í veiöirétti í mörgum bestu veiöiánum eru oft menn eöa fjölskyldur, sem ekki eru bændafólk, en hafa ýmist erft hann eöa keypt jaröir meö veiöirétti. Þaö eru einmitt þessir aöilar, sem eru hvaö skammsýnastir. Þá má minna á, aö ríkið á einnig margar jaröir meö veiðihlunnindum. Skógræktin á einnig jarðir með veiöiréttindum. Viö, sem erum á miöjum aldri og þar yfir, erum flest komin af bændafólki á aöra hvora ættina. Þannig er þaö meö mig og þykir heiður aö. Viö eigum því skyldfólk, vini eöa kunningja meöal bændafólks. Því skiljum viö öörum fremur afstööu þeirra til verömæta sinna, en hörmum jafnframt þegar æsingamenn reyna aö spilla fyrir eöli- legum og góöum samskiptum milli þessara aöilja. Ég held áö veiðiréttareigendur ættu í alvöru aö leiða hugann aö því, aö þegar ný kynslóö er vaxin úr grasi og tengslin milli sveita- og þéttbýlisfólks rofna, gæti skapast sú hætta aö réttur þeirra veröi skertur verulega og þaö fyrr en seinna, ef þeir reyna ekki að setja sig betur inn í sjónarmið og þarfir stangaveiöimanna og annars þéttbylisfólks. Þaö er engan veginn víst að þeir geti seinna náö eins góöu samkomulagi og nú. Þaö leiöir aldrei til góös, þegar fámennir hópar standa í vegi fyrir hagsmunum almennings. Um þaö höfum viö ótal dæmi úr mannkynssögunni. Aö lokum vil ég minna á þau eftirtekt- arveröu orö, sem hinn þjóökunni bændahöfðingi, Þorsteinn heitinn Sig- urðsson, viöhaföi í lok Veiðimálaráð- stefnunnar, sem var haldin í desember 1969. Hann sagöi „aö þaö leysti engan vanda aö vilja ekki ræöa þau vandamál, er viö væri aö glíma hverju sinni“. Ef menn heföu þessi orö í huga og ræddust jafnan viö meö jákvæöu hug- arfari, ekki sízt þau mál, sem okkur greinir á um, þá væri ailt auðveldara viðfangs.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.