Lesbók Morgunblaðsins - 27.06.1981, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 27.06.1981, Blaðsíða 8
Austur í Burgenlandi 18. maí. — Æfing í Musikvereinsaal. í þetta sinn fengum viö aðeins forsmekk- inn af stóra konsertsalnum; allt í einu var því líkast sem magnarar væru komnir á öll hljóðfærin og hljómurinn varö í senn stórkostlegur og gersamlega ósambæri- legur við þaö sem áheyrendur eru vanir úr Háskólabíói. Því miöur get ég ekki fremur en aörir opinberaö þann leyndar- dóm, sem hér liggur aö baki, en eitt er víst: Veggir þurfa ekki aö vera sléttir eins og stundum er haldiö fram og mikið skraut viröist ekki vera hindrun í þessu sambandi. Seinnipart dags er haldið austur í Burgenland; þaö hérað veröur austast í Austurríki og liggur uppaö landamærum Tékkóslóvakíu og Ungverjalands. Þarna er fremur flatlent, en héraöiö dregur nafn sitt af nokkrum rammbyggöum köstulum, sem vitna um forna valdabar- áttu. Á sléttlendinu suður af Vínarborg eru vínekrur; þeir framleiöa þar meöal annars þetta rómaöa hvítvín, Gum- pohlskircheners Königswein, — þaö er í einu oröi sagt frábært. Feröinni er annars heitiö til Eisenstadt, sem er íítil borg suöaustur frá Vín og aðeins örfáa kílómetra frá landamærum Ungverja- íands. í leiðinni þarf aö taka á sig smávægi- egan útúrkrók á flugvöllinn viö Vínar- borg aö heimta tösku frá Jóhannesi Eggertssyni, sem einhverra hluta vegna hafði oröiö útundan, þegar bílarnir lögöu 'jpþ frá Þýzkalandi. Þeir Jóhannes og Sigurður Björnsson héldu inn í flug- atöðvarbygginguna, en liðið notaöi tæki- íærið til að velta sér ögn í sólinni á grænni flöt. Svo leiö og beiö; æfing átti senn að hefjast í Eisenstadt og ekkert bólaöi á þeim félögum. Loksins birtust beir meö töskuna og sögöu sínar farir akki sem sléttastar. Vildi yfirleitt enginn neitt fyrir þeim greiöa; þeir voru sendir upp og niöur stiga frá einum undirkont- óristanum til annars, látnir borga og borga, en hafa líklega ekki athugaö, aö borga strax undir boröið svo sem meö burfti. Þegar þeir birtust, varö Baldri Pálmasyni skáldi og útvarpsmanni limra á munni: Þaö var endalaus óskapasprengur svo orðinn var Jói einsog þvengur; upp tröppur og stiga, sem taugarnar sliga, — og Siguröur sést varla lengur. A tímaskeiði hinna voldugu lénsherra, em voru smákóngar og áttu með húð pg hári búandkarla í næsta nágrenni, var •.reifinn Esterhazy einskonar Pétur þrí- ross í Eisenstadt og notaöi auö sinn til ess aö reisa þá miklu höll, sem enn tendur með sóma og ber nafn hans. TEKIÐ Eins og sæmir stórbændum haföi Esterhazy margt vinnuhjúa; sum þeirra til aö gleöja hann meö músík. Þar á meðal var sá maöur, sem hét Joseph Haydn, eitt af frægustu tónskáldum austurrískum, fæddur ögn fyrr en Moz- art. Á þessum stað vann Haydn sum af meiriháttar verkum sínum, enda ber hljómleikasalurinn nafn hans. Vegna hallarinnar hefur hreppsnefnd- in sloppið viö aö byggja félagsheimili pg heföi vitaskuld aldrei ráöiö viö neitt í líkingu við konsertsalinn, sem er mikil prýði í þessu húsi — meö veggmálverk- um og loftmálverkum af guðlegum verum og blómlegu barokkvenfólki. Hljómaöi hátt og nokkuö hvellt í þessum sal, en tónleikagestum var boðiö uppá forleik eftir Beethoven, óbókonsert eftir Hertel og lék afkomandi tónskáldsins meö sama nafni einleikinn; síðan snún- ingurinn hans Schulze og endaö á 1. sinfóníu Sibeliusar. Okkur skildist, að fólk kæmi austan úr Tékkóslóvakíu og sunnan úr Ungverjalandi til aö hlusta á konserta í höll Esterhazys, en ekki gengur öllum jafn greiölega aö komast yfir — eöa undir — Járntjaldiö. Með okkur í förinni var Stefán Sojka, fiðlu- leikari um þriggja ára skeið á íslandi og kominn frá Bratislava, rétt austan viö landamærin. En þau voru honum lokuð, sagöi hann; þó var ekki loku fyrir þaö skotiö, aö hann fengi aö fara í sumar. Efst: Stóra stundin er runnin upp í Musíkvereinsaal og Páll lyftir tónsprotan- um. Aðeins hluti hljómsveitarinnar sést á myndinni. í miðju: Musikvereinsaal, rauöa húsiö á bak viö trén á miöri myndinni. Neöst: í samkvæmi hjá konsúl íslands í Vínarborg eftir hljómleikana: Svanhvít Egilsdóttir söngkennari í Vínarborg og Björn Sv. Björnsson aðstoöarfararstjóri. A OLLU SEM TIL VAI - í VÍN OG GRAZ AUSTURRIKI LANDSHORNA Á MILLI með Sinfóníuhljómsveit íslands Annar hluti af þremur Eftir Gísla Sigurösson

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.