Lesbók Morgunblaðsins - 27.06.1981, Blaðsíða 13
Bauhaus í Dessau, 1925—26, frægasta byggingarverk
Gropiusar og hugsanlega hefur enginn arkitekt á þessari
öld haft önnur eins áhrif og Gropius meö þessu húsi.
íbúöarblokk í Hansa-hverfinu í Berlín, 1956.
feldshúsið (1921), sem er timburbygg-
ing, er féll ákaflega vel að þörfum
eigandans, og er jafnframt mjög
skemmtilega útfærð. Hann teiknaði
einnig stríðsminnismerki í. Weimar
(1922), sem er mjög vel útfært í
steinsteypu, og leikhús í Jena, skammt
frá Weimar (1923—24), sem talið er eitt
þriggja beztu verka Gropiusar. Þarna
má finna frábært jafnvægi efnis og
rýmis. Áriö 1925 varö Bauhaus-skólinn
aö fara frá Weimar af pólitískum ástæö-
um. Fékkst byggingarlóð undir hann í
Dessau viö Elbu, og teiknaði Gropius
nýbyggingarnar undir skólann. Tækifær-
iö var stórkostlegt, og hann notfærði sér
það líka á eftirminnilegan hátt með því
aö móta þarna hugmyndir sínar í
kennslumálum og þjóðfélagsuppbygg-
ingu í form ágætrar byggingar. Bau-
haus-byggingarnar í Dessau (1925—26)
eru sérstaklega vel útfærðar og skipu-
lagöar utan um starfsemi skólans, þar
sem allar helztu hugmyndir Gropiusar
eru dregnar saman í hnitmiðað verk, eitt
hið fremsta í nútíma arkitektúr frá þeim
tíma. Byggingin vakti líka verðskuldaða
athygli víöa um heim og er meöal helztu
áhrifavalda á arkitektúr þriðja áratugar-
ins og síðar. Á árunum 1926—28
teiknaöi Gropius verkamannabústaða-
hverfi í Dessau, þar sem byggingarnar
voru að hluta til reistar úr verksmiðju-
framleiddum einingum. Skipulag hverfis-
ins tókst þó ekki eins vel og skyldi, og
reyndist hvert hús of einangrað frá
öðrum hiutum hverfisins. Gropius lét af
skólastjórn Bauhaus áriö 1928, vegna
innbyrðis óeiningar í stofnuninni, og tók
Hannes Meyer viö embættinu um stutt
skeið.
Eftir að beinum afskiptum Gropiusar
af Bauhaus lauk, sneri hann sér aö
arkitektúrstörfum í auknum mæli. Gerði
hann skipulag að tveim verkamannabú-
staðahverfum, öðru í Karlsruhe en hinu í
Berlín, þar sem hann bjó íbúunum
þægilegt næsta nágrenni, en þó hefur
IIHHIUKKIIÍI ll|
á hes
riiriíiiiÍHirtiúiuiH i|
ifBfiÚEtwimiiíiíiii kj
tmfrrf.iiMFfK«Pfffw ií
wmwummmmi n
KÍIIHIIf ItiIH'EWMK I!
!>»iiiiiiiiji.,|j
»!!!»
íteisir
I !S|
B! “ifcj
riitWsíminimiffFif
mrttriiiifimiiiiifir
iifiiiiffW’l
rfffWIWí'!
r Fíiimrríiirrrrtifffm
t fi'riíFffirftrrt'rí'iffmt
1' íwiiiimfliiiiiffiiifi
t HíiöEíinrwiiiiiiilí
I rffriíöairrriirriiiTii
f siifiiiiifirirtfiiiöiH
j rfffiiriiiiffifiífifiirf
;r Sísiifiriifiiiirii'ffiíit
T liirtiifiiiiifilfiiiiiir
TmwMmKnpmn
sffBtrriíiwmiiffiir
Éííteiiwiriitóka
ríifHfiiiiiiiiiitóuw
mtt tmiirfmttim
■rrrr
Pan American-byggingin í New York 1958.
veriö fundiö að því, aö hann hafi ekki
tekið fullt tillit til ýmissa mannlegra þátta
í skipulagi hverfanna, og því hafi þau
ekki reynzt mjög vel. Á árunum 1929 og
30 hannaði Gropius bifreiðir fyrir Adler-
verksmiðjurnar. Einnig teiknaði hann
skrifstofur verkalýðsfélags í Dessau
(1927—28), verzlunarhús í Dessau
(1928) og verkfræöiskóla í Hagen (1929),
auk nýstárlegrar leikhússbyggingar, Tot-
alleikhússins (1927), þar sem t.d. engin
skýr skil voru á milli leiksviös og
áhorfendarýmis. En upp frá þessu er
eins og þáttaskil verði á starfsferli
Gropiusar. í nærri tuttugu ár hafði hann
veriö frumherji í nútíma arkitektúr og
komið fram meö fjölmargar nýjungar,
bæði á sviði bygginga og kennsluhátta,
en upp úr 1930 er eins og hygmyndaflug
hans lækki smám saman, Gropius var
reyndar höfundur margra góðra bygg-
inga, sem reistar voru á mjög raunhæfan
hátt eftir 1930, en meðal þeirra voru
engin tímamótaverk. Árið 1930 skilaði
hann inn samkeppnistillögu fyrir leikhús
í Charkov og ári síöar tillögu í sam-
keppni um Sovéthöllina í Moskvu, en
hvorug tillagan fékk verölaun.
Gropius dvaldi aðeins rúmt ár í
Þýzkalandi eftir aö Hitler komst þar til
valda, en flúði síöan til Englands.
Starfaði hann þar í þrjú ár, fyrstu tvö
árin með enska arkitektinum Maxell Fry
(f. 1899). Unnu þeir saman að teikningu
skólabyggingar í Impington Willage,
nærri Cambridge, og var hún reist áriö
1936. Einnig teiknuöu þeir tvo aðra
skóla og nokkur einbýiishús, auk þess
sem þeir skipulögðu kvikmyndaver.
Byggingar Gropiusar á Englandi eru ekki
ólíkar ýmsum smærri verkefnum hans í
Þýzkalandi. Impington-skólinn var fyrst-
ur í hópi skólabygginga á Bretlandi, sem
skipulagöur var á óformlegan hátt. Á
þessum tiltölulega skamma tíma, er
Gropius dvaldi á Englandi hafði hann
mikil áhrif á framvindu nútíma arkitekt-
úrs þar. Honum bauöst síðan kennara-
staöa vestan hafs viö arkitektúrskólann í
Harvard, Massachussets, og hélt þang-
að áriö 1937, 54 ára að aldri.
( Bandaríkjunum samdi Gropius sig
strax aö nýjum hugsunarhætti, og eftir
aðeins eins árs starf sem kennari var
hann skipaður skólastjóri viö Harvard-
skólann. Er Gropius langmerkastur fyrir
afskipti sín af skólamálum vestan hafs,
þar sem hann vann mjög gott starf fyrir
Harvard-skólann og reyndar fleiri arki-
tektúrskóla og haföi mikil áhrif á yngri
kynslóð arkitekta í Bandaríkjunum. Jafn-
framt kennslu starfaði hann að ýmsum
byggingaverkefnum með nokkrum
gömlum vinum sínum frá Þýzkalandi,
sem einnig höfðu flúið vestur um haf.
Þeirra á meöal var Ungverjinn Marcel
Breuer (f. 1902), er unnið hafði með
Gropiusi á Bauhaus. Unnu þeir saman
að >mörgum einbýlishúsateikningum á
árunum 1937—40. Eftir styrjöldina setti
Gropius á stofn stóra arkitektastofu —
TAC — ásamt hópi ungra arkitekta og
nemenda sinna úr Harvard-skólanum. A
síöasta skeiði starfsferils síns átti hann
hlut í mörgum traustum byggingum, og
er nemendamiðstöð Harvardháskóla
(1950) sennilega markverðust þeirra, en
einnig má telja til fjölbýlishús fyrir
stjórnvöld Berlínar fyrir Interbau-sýning-
urta þar (1957), háskólabyggingar í
Baghdad í írak (1965) og sendiráðs-
byggingu Bandaríkjanna í Aþenu
(1957—61) og glerverksmiðju í Ham-
borg (1967). Ennfremur var hann ráö-
gjafi við hönnun Pan Am-byggingarinnar
í New York (1958). Gropius starfaði
ötullega allt fram í andlátiö. Hann lézt
áriö 1969, 86 ára gamall.