Lesbók Morgunblaðsins - 12.09.1981, Blaðsíða 11
ALBANIA
ein í heiminum
eftir Mehmet Biber
Stöðugt er hvatt til vinnu og fórnfýsi fyrir ættlandið með áróðri. Hér er fólk að hefja
störf að morgni við eplauppskeru og fær fyrst sinn skammt af áróðri...
Þotan flaug í suöur frá Júgóslavíu yfir
dökkblátt Adríahafiö, beygöi síöan 90
gráður og stefndi að landi — til Albaníu.
Til forna héldu rómverskar hersveitir
eftir Via Appia til Brindisi á hael ítaiíu og
héldu þaöan yfir Otranto-sund, fóru á land
hér og héldu austur á bóginn eftir
þjóöveginum til Þessaloníku og Konstant-
ínópel. Albanía varö fyrir innrás Gota og
fleiri þjóöflokka og laut síöan yfirráöum
Býsanz, Búlgaríu, Serbíu og Feneyja. Síöan
komu Tyrkir og réöu yfir landinu í nær fimm
aldir og geröu Albaníu aö eina landinu í
Evrópu, þar sem flestir íbúanna eru
múhameöstrúar. Og svo komu herir
Mússóiínis og Hitlers.
En nú liggja engar alþjóöaieiöir um
Albaníu. Járnbrautarlínur landsins eru 300
km langar, en liggja ekki yfir nein landa-
mæri. Engum erlendum flugvélum er leyft
aö fljúga um lofthelgi landsins. Farþegavél-
ar eins og okkar, sem er hálftóm og flýgur
hálfsmánaöarlega frá Belgraö, veröa aö
koma af hafi og aðeins í dagsbirtu.
Ég leit í kringum mig í flugvélinni og virti
fyrir mér samferöamenn mína, roskna
konu, sendiráösmann, austurrískan próf-
essor í albönsku (sem er fjarskyld öörum
Evrópumálum) og kaupsýslumenn, sem
voru að fara til aö kaupa málma eöa selja
vélar. Hvar átti ég heima í reglugerö þeirri
um gesti til landsins, sem einvaldur
Albaníu, formaöur Kommúnistaflokksins,
Enver Hoxha, haföi sett? Samkvæmt henni
var landiö „lokað óvinum, njósnurum,
hippum og óaldarlýð, en opiö vinum, hvort
sem þeir eru marxistar eða ekki, byltingar-
sinnum og róttækum lýöræðissinnum,
heiöarlegum feröamönnum ... sem ekki
hlutast til um innanríkismál okkar“.
Hann fór víst nær því starfsmaöurinn á
feröaskrifstofunni, sem sagöi: „Aöeins vit-
firringur, diplómatar og blaöamenn fara til
Albaníu." Ég var tyrkneskur blaðamaöur
og var búinn aö bíöa í nær ár eftir
vegabréfsáritun.
Við flugum inn yfir strönd lands arnarins.
Þaö er nú oröið aö einu allsherjar sam-
yrkjubúi. Þaö er síðasta virki Stalínismans,
kreddubundnasta kommúnistaland Evrópu
undir stjórn ósveigjanlegs leiötoga. Þar fer
fram óvenjuleg, þjóöfélagsleg tilraun: heil
kynslóö er alin upp frá barnæsku í lokuðu
landi, eins konar tilraunastöö hreinræktaös
sósíalisma, sem storkar umheiminum, ein-
angrar sig og varast spillingu úr austri eöa
vestri.
Ósjálfrátt strauk ég um hökuskeggiö á
mér — og datt þá allt í einu í hug, hvort ég
myndi kannske missa þaö! Mönnum meö
sítt hár eöa alskegg er meinað aö koma inn
í Albaníu, sem og konum í stuttpilsum og
áberandi síöbuxum eöa ööru því, sem er
táknrænt fyrir borgaralega hnignun. Heyrzt
hefur um ólánsama gesti, sem hafa veriö
reknir til rakara á flugvellinum til klipp-
ingar.
En hermaöurinn, sem tók á móti mér viö
dyr flugvélarinnar, haföi meiri áhuga á
vegabréfi mínu en skeggi, svo aö ég gekk í
hádegissól þessa septemberdags niöur á
einn af minnstu og dauflegustu flugvöllum
Evrópu.
Kopi Kycyku heilsaði mér og bauö mig
velkominn á tyrknesku. Hann var frá
móttökunefnd utanrískisráöuneytisins og
átti eftir aö afhenda leiösögumanni mínum
og túlki áætlun dagsins á hverjum morgni.
Eftir aö hafa gengið frá formsatriöum bauö
hann mér sæti í pólskum Fiat og viö ókum
hálfrar stundar leiö til höfuðborgarinnar,
Tirana. Á leiöinni litu hópar bænda upp frá
vinnu sinni á ökrunum, en umferð á
veginum var lítil.
Hjarta Tirana er Skanderbeg-torg meö
styttu af þjóöhetjunni, sem baröist gegn
veldi Tyrkja, en Skanderbeg var uppi á 15.
öld. Gegnt styttunni er hin nýja Menningar-
höll, en umhverfis torgiö eru einnig ýmsar
byggingar frá tímum Zogs, konungs, sem
var viö völd á þriöja og fjórða áratug
þessarar aldar.
Frá Skanderbeg-torgi til Háskólatorgs,
um eins kílómetra leiö, liggur Breiöstræti
fallinna hetja, en viö þaö eru risastórar
styttur af Lenín og Stalín, aöalbygging
kommúnistaflokksins, helztu ráöuneytin og
knattspyrnuleikvangur. Torgiö virtist nær
autt á þessum tíma dags: þar sást aöeins
einn bíll, eitt bifhjól, strætisvagn og nokkur
reiðhjól og dreifður hópur roskinna kvenna
aö sópa götuna. En þó stóö lögreglumaður
á miöju torginu og stjórnaöi umferöinni
hátíölegur á svip.
Albanía leyfir enga einkabíla, og í
höfuöborginni eru aðeins fáir leigubílar,
sem eru í eigu ríkisins. Flestir standa í röö
við torgið, og Albanir nota þá sjaldan.
Við námum staðar fyrir framan Hótel
Dajti, sem ítalir byggöu upp úr 1940, þegar
gatan hét Viale Savoia. Þaö er annað
tveggja hótela í Tirana, sem ætluð eru fyrir
útlendinga, en Albanir sjálfir mega ekki
búa þar.
Ég fékk herbergi meö svölum og fallegri
gólfábreiðu. í gjafabúöinni niöri sá ég á
eftir, aö slík gólfteppi voru til sölu á 20
dollara fermetrinn. Ég skoöaöi sjónvarps-
herbergiö og komst aö raun um, að aðeins
var hægt aö ná innlendri dagskrá. Ég leit á
blaðatilkynningar, sem dreift haföi veriö á
borö í anddyrinu, og blöðin, sem voru til
sýnis. Þarna var tímaritið „Nýja Albanía" og
blað flokksins, „Zéri i Popullit" (Rödd
þjóöarinnar) og nokkur önnur albönsk
dagblöö, sem öll voru svipaðs efnis.
Pappírskilju útgáfur af bókum Envers
Hoxha var hægt aö fá á ýmsum tungumál-
um, en ekkert einasta útlent blaö, tímarit
eöa bókarkorn. Þaö var eins og umheimur-
inn væri ekki til.
Þaö var farið að rökkva, þegar ég fór af
hótelinu á göngu og kom aftur aö Skander-
beg-torgi. En hvílík breyting! Þaö var eins
og helmingurinn af hinum 200 þús. íbúum
Tirana heföi safnazt þarna saman eftir
vinnu. Sumir gengu í hægöum sínum eftir
trjágöngunum meðfram Stalíns-breiögötu,
en aörir spjölluöu saman í smáhópum eöa
stóöu í rööum viö söluturna ti aö kaupa
albanskar sígarettur, gosdrykki eöa blöö.
Unga fólkiö var aö kankast á og daöra, en
foreldrarnir streymdu í Menningarhöllina á
hljómleika, leiksýningu eöa bókasafniö þar.
Á torginu var ringulreiö almenningsvagna,
reiöhjóla og fótgangenda, en lögreglu-
þjónninn reyndi þó að stjórna umferöinni
meö hvellu flautublístri.
Miöbik Tirana iöaði af lífi í um þaö bil
tvær stundir, og síöan varö allt þögult á ný.
Jafnvel umferöar lögregluþjónninn fór heim
til sín.
Risaveldum vísað
á bug vegna
„endurskoðunarstefnu“
Morguninn eftir fór leiösögumaður minn
og túlkur, Bashkim Babani, með mig um
Menningarhöllina. Albanir eru stoltir af
þessari byggingu, sem Rússar byrjuðu á,
en skildu eftir ókláraöa, þegar þeir ruku
burt úr Albaníu 1961 vegna hugmynda-
fræöilegs ágreinings. Leiösögumaöur minn
sagöi: „Sovézku endurskoöunarsinnarnir
og heimsvaldasinnarnir tóku fyrir alla
aöstoö viö okkur og settu okkur í efna-
hagslega einangrun í þeirri trú, aö okkur
væri brátt glötunin vís. En viö skárum upp
herör og lukum viö þessa byggingu. Nú
stendur hún sem tákn um sigur okkar."
Hoxha sneri sér síöan til hins svarna
óvinar Sovétríkjanna, Mao Tse-tung í Kína,
eftir aö hafa sagt skiliö viö „svikarann
Krústév og klíku hans."
Albanía varö nánasta vinaþjóö Kínverja
og talaði máli þeirra á vettvangi Samein-
uöu þjoðanna og hlaut efnahags- og
hernaðaraöstoö frá þeim, sem metin hefur
veriö á eitt til tvö þúsund milljónir dollara.
Þannig gekk það fram til ársins 1978,
þegar vaxandi vinfengi Kína og hinna
„heimsvaldasinnuöu" Bandaríkja og Júgó-
slavíu „endurskoöunarsinna" batt enda á
hina „eilífu vináttu“. Á bak viö hiö „hræsn-
isfulla bros“ arftaka Maos þóttust Albanir
greina „sviksemi þess, sem rekur rýting í
bak manna á nóttu, en syrgir þá aö
morgni“, og síðan varö Albanía eina virki
hins „sanna Marx-Leninisma“, sem eftir var
í heiminum.
Hvert átti Albanía nú aö snúa sér?
Svariö er aö finna í vígoröum, sem blasa
viö mönnum í Tirana og öllum bæjum og
þorpum landsins, á götunum, á bygging-
um, í verksmiðjum, skólum og samyrkju-
búum.
Á stórum boröa á Skanderbeg-torgi
stendur: „Viö treystum algerlega á eigin
mátt án nokkurrar erlendrar aðstoöar eöa
neinna lána erlendis." Á ráöhúsinu stendur:
„Við munum rjúfa einangrunina og umsátur
heimsvaldasinna og endurskoöunarsinna."
í kennslutímum í ensku læra nemendur
vígorö Hoxha á því máli. Á töflunni stendur
til dæmis: „Byggjum upp sósíalisma meö
haka í annarri hönd, en riffil í hinni.“
Meö frýjunarorðum og full af þrjózku
gagnvart umheiminum fer litla Albanía ein
síns liös sína eigin braut. Hún telur
kínverska risann vera á móti sér og sér
stafi ógn af Sovétríkjunum og fylgiríkjum
þeirra. Og hún er hrædd og tortryggin
gagnvart nágrönnum sínum, Júgóslayíu og
Grikklandi, og hinum vestrænu ríkjum.
En hvernig getur Albanía þetta?
Meö eins konar hervæðingu framleiösl-
unnar. í verksmiðjum er oft unniö á þremur
vöktum, svo að vélarnar nýtist allan
sólarhringinn. Ég sá dráttarvélar aö verki
meö Ijósum á ökrum, og síöan voru þær
fluttar á nóttunni til annars bús, þar sem
átti aö plægja morguninn eftir. Sumir
verkfræöingar, tæknimenn og verkamenn
bæta nokkrum vinnustundum viö sinn
fasta vinnutíma og lengja þannig 48 stunda
vinnuviku sína í þágu byltingarinar.
„Færöu aukagreiöslur fyrir yfirvinnu?"
Þessi spurning var lögö fyrir starfsmann í
verksmiöju, sem, framleiddi varahluti í
dráttarvélum og vörubíla.
„Nei, og viö förum ekki fram á þaö. Viö
vinnum sem sjálfboðaliöar, af því aö viö
teljum, aö meö þessu séum viö að stuðla
aö því, aö einangrunin veröi rofin. Þessi
byltingarandi mun færa okkur sigur.“
Mark Toma hætti störfum sextugur fyrir
þremur árum, en nú er hann aftur mættur
til vinnu í sömu verksmiðju.
„Viö stefnum sameinaöir aö þessu
marki, aö veröa öörum óháöir efnahags-
lega. Ég hef enn fulla starfskrafta. Ég get
ekki setið meö hendur í skauti, meðan öll
þjóöin heyir baráttu sína."
Fengi hann laun? „Ég er þegar kominn á
eftirlaun."
Opinberir starfsmenn, námsmenn og
jafnvel embættismenn flokksins og diplóm-
atar leggja fram aö minnsta kosti eins
mánaöar vinnu á ári í verksmiöju eöa á
búgarði.
Vinnusveitir keppa um afköst og geta
hlotið aö launum heiðurspeninga, verö-
launaskjöl og viöbótarorlof á sumardvalar-
staö. Hvarvetna er haföur uppi áróöur til aö
efla „hernaöarandann" og auka afköstin
meö sjálfsgagnrýni.
Enver Hoxha-verksmiöjurnar í Tirana
eru fyrir nokkru farnar aö framleiöa
albanskar dráttarvélar. Þegar Kínverjar
hættu allri aöstoö, skildu þeir við þessa
verksmiöju ófullgeröa sem og vatnsafls-
stöð og létu lönd og leið fleiri meiri háttar
verkefni, sem þeir höföu verið aö vinna aö.
„Kínversku verkfræöingarnir fóru meira
aö segja með allar teikningarnar," sagöi
forstjóri verksmiðjunnar gremjulega. Síöan
reyndu þeir aö skemma fyrir verksmiöjunni
meö þvi aö neita aö afhenda nauösynlegar
vélar. En viö lukum við bygginguna og
fengum vélar og annaö frá öörum löndum.
Ekki sem erlenda aöstoö og heldur ekki aö
láni. Viö höfum fengið nóg af slíkri hjálp frá
Rússum og Kínverjum. Ef viö þörfnumst
einhvers, þá kaupum viö þaö frá hvaöa
landi sem er — gegn staögreiöslu. Eöa
meö vöruskiptum. Þannig varöveitum við
sjálfstæði okkar.“
Reyndar bannar stjórnarskrá Albaníu frá
1976 lánsviðskipti og kemur þannig í veg
fyrir bankalán úr austri eöa vestri.
Fá önnur lönd gætu hafa valið þessa
erfiðu leiö til framfara. En Albaníu er
stjórnaö af stálhörku. Ög Albanir eru illu
vanir, örbirgð og áþján. Jarðskjálftar og
flóö hafa fylgt í kjölfar styrjalda. Þegar
Rússar ruku burt, voföi hungur yfir lands-
I Framhald á bls. 14.
11