Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1982, Síða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1982, Síða 8
Hrísgrjónaakur plægöur á Bali. Komodo-drekar að éta geit (sá til hægri er 290 sm á lengd). Hinn 14. ágúst á sumri komanda er skipiö Lindblad Explorer væntanlegt til Reykjavíkur á árlegri för sinni um hnöttinn. í fyrrasumar gekk eg um borö á því á höfninni í Denpasar á eyjunni Bali og fór meö því í 4052 sjómílna ævintýraferð um austur- hluta Indónesíu, til Nýju-Guineu, og þaðan noröur til Manila á Filippseyj- um. Þessi ólýsanlega för hófst meö því aö Bali var skoðuð. Fæstir Balibúar hafast við í húsum í hinni venjulegu íslenzku merkingu þess orðs, þ.e. undir þaki og innan fjögurra veggja. Þess í staö er giröing umhverfis aö- setursstað fjölskyldunnar (com- pound), og fyrir innan hana eru nokkrar byggingar þar sem matur er útbúinn, sofið og helgiathafnir um hönd hafðar. Aöeins ein þessara „bygginga" er alveg lokuð, en þaö er matarbúriö. Loftslagiö er heitt og rakt, og þak telst til þæginda, en ekki veggir. Sama máli gegnir um musterin, sem eru þaklaus. Þaö eru nokkrar skreyttar súlur og vegglausar byggingar. Hinar hindú- búddísku trúarathafnir, sem eg varö vitni aö, fóru aö öllu leyti fram undir berum himni. Söfnuöurinn kraup á steinstétt meö- an presturinn snart varir viöstaddra meö blómi. Fólkið á Bali vinnur mikiö, enda er veö-y urfari þannig háttaö aö rækta má hrísgrjón þar áriö um kring. Hrísgrjón ná fullum þroska á þremur og hálfum mánuði frá sáningu. Eg sá á einum og sama staö kon- ur vera aö þreskja og karla plægja og sá í

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.