Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1982, Qupperneq 13

Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1982, Qupperneq 13
sem var orðinn heimskunnur fyrir skilvind- una. Gustaf Dalén skrifaöi honum til Stokk- hólms með ósk um að mega sýna honum tæki sitt og fékk það svar, að hann væri velkominn. Hann hélt því til höfuðborgar- innar með lítinn pakka undir hendinni, en þetta var í fyrsta sinn, sem hann fór út fyrir heimabyggð sína. Laval skoöaði tækið vandlega, og þaö virtist koma honum mjög á óvart. „Mjög merkilegt, stórmerkilegt . . .“ Síðan fór hann í næsta herbergi og kom aftur með teikningar og einkaleyfisskjöl. Hann hafði þá nýlega fengiö einkaleyfi á fitumæli, sem var nær alveg eins og Daléns. Og sá mælir átti eftir að fara um heim allan undir nafn- inu „butyrometer" eða smjörmælir. Eini munurinn var eiginlega sá, að Laval notaði nokkra dropa af brennisteinssýru til að aö- greina fituna, en Dalén dugði hristingur. Þetta urðu vonbrigöi fyrir Dalén, en þó hvatning um leiö. Hann spuröi nú Laval, hvort hann myndi geta fengið starf á til- raunastofu hans, en hann réði honum frá því aö fara aö fást viö slíka hluti án undir- stöðumenntunar. Hann myndi staöna í vexti. „En þegar þér hafiö aflaö yöur menntunar, eruö þér velkomnir aftur.“ Síö- an tók Laval fram nafnspjald sitt og skrif- aði á þaö. Síðan sagði hann: „Ungi maður, þegar þér komið aftur, verö ég búinn að gleyma því, sem ég nú hef sagt. Ég hef svo margt um að hugsa. En geymið þetta nafnspjald og fáiö mér það, þegar þér komið aftur, og þá rifjast þetta upp fyrir mér.“ Nafnspjaldið átti þó aldrei eftir aö koma að þeim notum, sem til var ætlazt, en það varð honum þó til stuðnings. Það auöveld- aöi honum að taka þá miklu ákvöröun, sem hann tók, og aö ná því námstakmarki, sem hann setti sér. Hann ákvaö að freista þess aö taka inn- tökupróf í Chalmers-tækniskólann í Gauta- borg um haustiö, og hann haföi sumarið til stefnu. Albin, bróðir hans, sem þá stundaði nám í læknisfræði og síðar varö einn þekktasti augnlæknir Svía, var heima þetta sumar og veitti bróöur sínum tilsögn eftir föngum. Gustaf Dalén stóðst þrófið um haustið og settist á skólabekk 23 ára gam- all. Chalmers fékk engan venjulegan nem- anda, þar sem Gustaf Dalén var. Hér var kominn fulltíða maður og þroskaöur, bóndi, sem hafði yfirgefið jörð sína, mjólk- urbússtjóri, sem sagt hafði skilið viö skil- vindu og brúsa, garðyrkjumaður, sem horf- iö haföi frá beðum sínum, og frækaupmaö- ur, sem lagt hafði frá sér litlu pokana. Og hann sneri sér að náminu af eldlegum áhuga og hafði slíka ánægju af náminu, aö hann kunni sér vart læti. Væri það eitthvað, sem hann skildi ekki, var hann óspar á spurningar. Það fór einnig oft svo, aö kennararnir báöu hann að tala við sig, eftir að kennslustund væri lokiö, og þá voru málin rædd fram og aftur. Að ööru leyti var Dalén ósköp venjulegur maður og skar sig ekki úr hópnum, og þannig var hann alla ævi. Hann var félags- lyndur, góðlyndur og glaðlyndur. Hann var kvikur í hreyfingum, tali og hugsun. Jafnt kennarar sem skólafélagar mátu hann mik- ils og væntu þess, aö úr honum yrði eitt- hvaö sérstakt. Síöar bauð hann mörgum þessara félaga sinna að starfa meö sér, þegar hann stjórnaði stórum fyrirtækjum. Gustaf Dalén útskrifaðist frá Chalmers með frábærum vitnisburði, sem veitti hon- um aðgang aö verkfræðiháskólanum í Zúr- ich í Sviss, sem þá þótti einn hinn fremsti í sinni röð. Honum bauðst lán til að fara þangað, og þaðan kom hann heim aftur 1897 með hina beztu tæknimenntun, sem á þeim tíma var völ á. Eftir heimkomuna starfaöi hann fyrst í Gautaborg, en fluttist til Stokkhólms, þar sem hann stofnaði verkfræöifyrirtæki, sem fékk umboð fyrir Sænska karbid- og acet- ylen-fyrirtækið í Gautaborg. Samkeppnin var þá mjög hörð milli kolagass og acet- ylen-gass og reyndi þá mjög á hugvitssemi og hagsýni Daléns. Meðal annars fann hann þá upp gasþrýstistilli, sem hann fékk einkaleyfi á og náði meira að segja mikilli útbreiðslu í Þýzkalandi. En þrátt fyrir annir sínar hjá fyrirtækinu gaf hann sér tíma til að sinna ýmsum öðr- um áhugamálum. Bóndinn var ofarlega í honum, og hann langaði til aö leysa tækni- vandamál fyrir landbúnaöinn, sem margir höfðu glímt við án fullnægjandi árangurs. Hann fann upp gerilsneyðingarvél og einn- ig nothæfa mjaltavél, sem sjálfum Laval haföi ekki tekizt. En fyrirtæki Lavals keypti mjaltavél Daléns og framleiddi hana um langt árabil. Örlögin beindu Dalén brátt á nýjar brautir. Frakkar höfðu fundið upp aðferð til að sigrast á vandanum til að þjappa saman acetylen, sem er hætt við sprengingu þeg- ar við tvöfaldan loftþrýsting. Ráðið var fólgið í því að leysa acetyliö upp í aceton, sem er vökvi, sem líkist vínanda. Þetta uppleysta gas, „dissous-gas“, er síöan geymt í stálhylkjum, sem eru fyllt meö svampkenndu efni, sem sýgur í sig aceton- ið. í þessari mynd var acetylen-gasið fyrst notað til Ijósa, en vegna tíöra sprenginga fengu margir ótrú á þessari gaslýsingu. Áriö 1904 var stofnað nýtt fyrirtæki, AB Gasaccumulator, sem þekkt er undir nafn- inu AGA. (íslenzka umboðsfélagið ÍSAGA var stofnað 1919.) Dalén varð ráðgefandi verkfræðingur AGA, sem hafði einkarétt á frönsku „dissous“-aðferöinni og reyndi að vekja áhuga sænskra yfirvalda á að nota þetta gas til lýsingar á vitum. En vandinn var sá, að nauösyntegt væri að nota leift- urlýsingu eöa blossa. Dalén tók nú til óspilltra málanna og tókst að leysa vandann fullkomlega. Hann fann upp leifturtækið (klippapparaten), sem var svo þaulhugsað og nákvæmlega byggt, að það þurfti nánast engra endur- bóta við síöar. Honum tókst að gera það þannig úr garöi, að leiftrin gátu haft nálega hvaöa gang sem væri, verið löng eða stutt eða hvort tveggja á víxl, með löngu eða stuttu bili aö vild. Með þessum hætti mátti fá einkenni, Ijósmerki, sem væru svo auð- þekkt, að ekki væri hætt við, að þeim yrði ruglaö saman. Auövelt var aö reikna út, hve gífurlegur sparnaöur á gasi yröi með þessu. í staöinn fyrir stöðugt skin komu nú glampar, sem vöruöu 3/ioúr sekúndu á 10 sekúndna fresti. Lítri af gasi nægði fyrir 10.000 glampa. Gassparnaðurinn var 90%. Þetta táknaði, aö ekki þyrfti að hlaða gasgeym- ana nema einu sinni á ári, og ennfremur að hægt væri að setja upp vita á stöðum, sem ógerningur væri að komast til nema stuttan tíma að sumrum. (Dæmi um slíkt hér á landi er vitinn á Þrídröngum við Vest- mannaeyjar.) Þennan mikla sigur vann Dalén sumarið 1905. Leifturtækiö var reynt á allan hátt fram á haust og stóðst alla raun. Dalén hafði kvænzt æskuvinkonu sinni sumariö 1901, og það var reyndar veröandi tengda- faðir hans, sem lánaði honum fyrir náms- dvölinni forðum. Nú deplaði leifturtækiö til þeirra og gaf þeim fyrirheit um bjarta og trygga framtíð. Dalén sneri sér síöan fyrir alvöru aö ac- etylen-gasinu. Enn voru veigamikil vanda- mál óleyst. Hvað eftir annaö skeöi þaö, að gashylki spryngju og yllu slysum. Þaö varð aö leysa það mál. Hann vann þrotlaust aö þessu verkefni ásamt efnaverkfræöingi í marga mánuði, unz vandinn var leystur. Hið svampkennda efni, sem notaö haföi verið í stálhylkin til að sjúga til sín acetoniö, var tekið til gagngerrar endurskoðunar, en það var franskt að uppfinningu og einka- leyfi, eins og áður er getið. Nú var það endurbætt, þannig að um enga sprengi- hættu gat veriö að ræða, hvernig sem með stálhylkin væri farið í flutningum. Hið nýja Brenniö þiö vitar Úr sögu vitanna Tvö af hinum sjö furöuverk- um veraldar til forna áttu aö vera sæfarendum til leiðsagnar. Risinn á Ródos og vitinn á eynni Faros viö Alexandríu voru báðir reistir á þriöju öld fyrir Krist. Myndhöggvarinn Kares geröi risastyttu til dýröar sólguðnum Helios, eftir aö Ródosbúar höföu verið leystir úr umsátri Makedóníumanna. Verkfæri sólguösins var nánast Ptolema- ios Soter, einn af hershöfðingj- um Alexanders mikla, en sagan segir, aö málmurinn í vopnum þeim, sem umsátursherinn skildi eftir á flóttanum, hafi ver- ið notaöur í styttuna. Hún var svo reist viö hiö þrönga hafnar- mynni og hefur sennilega meö ööru gegnt hlutverki frelsis- styttu. Rómverski sagnritarinn Pliní- us segir: „Þeir eru ekki margir, sem geta náö utan um þumal styttunnar, en hinir fingurnir eru hver um sig stærri en flest- ar styttur." Risinn á Ródos hefur aö sjálfsögöu sézt langt aö, en hann gæti einnig beinlínis hafa veriö viti, ef þaö er rétt, sem sumir herma, aö á nóttunni hafi Ródosbúar látiö elda loga í aug- um risans. En þegar risinn haföi staðiö þarna sem stolt Ródosbúa í rúmlega hálfa öld, tók jöröin aö skjálfa og risinn steyptist ( hafnarmynniö. Vitinn á eynni Faros logaði aftur á móti í þúsund ár. Hann var byggöur á árunum 280—270 f.Kr. og hefur veriö yfir 100 m hár. Risinn á Ródos var yfir 30 m og reistur um 290 f.Kr. Þegar vitinn á Faros var fullgeröur, lét byggingameistarinn meitla þessa áletrun á steininn: „Sostratus frá Knidos, sonur Dimokratesar, reisti hinum frelsandi guöum fyrir þá, aem sigla um hafiö.“ Þessi tvö furðuverk voru þó vissulega ekki fyrstu leiöar- merkin sem slík, því aö um aldir höföu eldar veriö látnir loga á ströndum Egyptalands sæfar- endum til leiöbeiningar. En vit- inn á Faros telst þó fyrsti eigin- legi vitinn, enda hefur nafn eyj- unnar, sem hann stóö á, oröið alþjóðlegt heiti á vitum. Róm- verjar sögðu pharos, Spánverj- ar og ítalir faros, Frakkar phare og frændur vorir á Noröurlönd- um segja „fyr“. Um vitann á Faros skrifar Pliníus: „Hlutverk turnsins er aö gefa skipum, sem eru á siglingu á nálægum slóðum, viövörunar- merki meö eldum, sem loga aö nóttu, og vísa þeim leiö inn á höfnina. Nú (það er viö upphaf tímatals okkar, viö Krists burö) eru svipaöir eldar haföir til merkis á mörgum stööum, til dæmis í Ostia og Ravenna. Hættan er aðeins sú, aö þessir eldar, sem látnir eru loga viö- stööulaust, geti veriö teknir fyrir stjörnur. Því aö í fjarlægð eru eldarnir að mörgu leyti Ifkir stjörnum aö sjá.“ Einmitt. Þegar eldarnir loga viöstööulaust. Þarna er Pliníus meö þaö vandamál (huga, sem Svíinn Gustaf Dalén leysti svo snilldarlega 1900 árum síöar. Margar sögur hafa veriö sagöar af þessu furöuverki, Faros-vitanum, og flestar eiga þær rót sína aö rekja til hinna ímyndunarfullu Araba, sem hertóku hann á sjöundu öld. En víst er talið, aö eldiviöurinn ha<> veriö ftuttur * „e.tvögnum langleiöina upp turninn, en vinda notuö efst. Ennfremur er öruggt, aö notaöir hafa verið einhvers konar speglar, og sumir halda jafnvel linsur, til aö magna Ijósið. Svo langt voru hinir fornu Egyptar komnir. Rústir Faros-vitans voru enn til 1375, en þá hurfu þær í hafiö af völdum jaröskjálfta. Fyrstu afskipti norrænna manna af vitum þar syðra, sem sögur herma, voru ekki til aö auka hróöur þeirra. Áriö 811 varö Karl mikli að leggja fram stórfé til viögeröar á hinum glæsilega vita ( Boulogna á ft- alíu, en hann haföi Caligula keisari látiö reisa foröum, þar sem norrænir víkingar höföu gert þar strandhögg bölvandi og mölvandi. Cæsar segir frá eldum til leiðbeiningar skipum viö Erm- arsund. Og löngum voru hinir einu vitar, sem þekktust á Noröuriöndum, bálkestir á klettum, hömrum og hæöum. Aftur á móti hefur komiö í Ijós, aö þegar á víkingaöld var komiö á kerfi viö merkingar á innsigl- ingum viö strendur Noröur- landa, en þaö féll svo ( msku smám saman. 17. öld er fariö aö gera tíl- raunir meö nýjar aöferöir í Sv(- þjóö aö minnsta kosti. Meöal annars voru útbúin eins konar risaljósker, og voru tvær hliðar þeirra opnar og tvær lokaöar, en síöan var þeim snúiö. Svíar eignuöust snemma nú- tímalegan uppfinningamann, þar sem var Christoffer Polhem, sem uppi var 1661 til 1751. Han» fann upo !oi(SÍa steinkolsvita, sem tóku langt fram því, sem áöur haföi þekkzt í þeim efnum. Honum tókst á hugvitssamleg- an hátt aö fá fram reyklausan, hvítan loga. Polhems-vitar voru settir upp víöa um lönd, og þeir voru mest notaöir í nær heila öld. Næstu kaflaskipti í sögu vit- anna uröu meö tilkomu upp- finningar Jonasar Nordbergs, en honum hugkvæmdist aö nota fleygbjúga spegla, sem snerust um logann fyrir gang- verki. Fyrsti Nordbergs-vitinn tók formlega til starfa 1. ágúst 1781 í Svíþjóö, en brátt voru aðrir reistir í Dieppe í Frakk- landi og Liverpool (Englandi og síöan í flestum löndum heims. Allar uppfinningarnar og endurbæturnar voru til þess gerðar aö auka Ijósstyrkleika vitanna og spara vitavöröum vinnu og fyrirhöfn. Rekstur vit- anna var mjög dýr, og aöal- vandamáliö því fjárhagslegs eölis. Þaö þurfti aö byggja íbúö- arhús og bryggju ( sambandi viö hvern vita, og þar sem þeirra var ekki þeim mun brýnni þörf, varð þeirra lengi aö bíöa. Fyrsti vitinn meö acetylen- gasloga var reistur ( Svíþjóö 1904, en þar sem hann logaði stöðugt, varð gaseyðslan mjög mikil og reksturinn því dýr. En auk þess vantaði tæki til aö stilla skin vitans, svo aö hann sendi leiftur í staö stööugs skins. Vandann leysti Gustaf Dalén snilldarlega meö leiftur- tækinu, sem hann fann upp og var svo þaulhugsaö og ná- kvæmlega byggt, aö þaö byrít; engra enrt*^^ vjð síðar Fyrsti Dalén-vitinn var tekinn í notkun 1. apríl 1906. Um Gustaf Dalén segir í annarri grein. Sveinn Ásgeirsson 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.