Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1983, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1983, Blaðsíða 8
I í upphafi var myndin Síðari hluti Chantal Akerman. Marguerite Duras. Móðir og samband við móður er þaó sem tengir myndir kvenna Þaö ósýnilega Chantal Akerman er ein af þeim. Hún byrjar að taka þar sem aðrir hætta. Myndir hennar eru þetta bælda í kvikmyndum, þessi ósýnilegi „hinn“ sem birt- ist þegar myndavélin er sett niður milli kafla, í greinaskilum, út á spássíur klassískrar frá- sagnar. Þannig skapar hún sitt eigið rúm og sinn eigin tíma út frá sínum persónulega sjónar- hóli (eða sjónarlægð því Chantal er mjög lág vexti og setur myndavélina alltaf í sína augn- hæð og er það orðinn hluti af hennar stíl). Hún hefur algjör- lega hafnað fimleikum í mynda- töku og notar kyrrstæðan myndramma beint andspænis myndefninu eða beina lateral (hliðar) hreyfingu. Akerman er alltaf í ákveðinni fjarlægð, per- sónur yfirleitt í fullri stærð inn- an myndar. Hún horfir á tímann líða eins og Henri Bergson á sykurinn bráðna. Hún horfir á fólk hrærast í þessum tíma við athafnir sínar, verk sín, án þess að hlutast þar til um, hún vísar burt tímaeyðum (ellipses) í frá- sögn, er ekki hrædd við endur- 8': Úr Jeanne Dielman eftir Chantal Akerman. Efftir Kristínu Jóhannesdóttur kvikmyndahöfund tekninguna, né lengdina, né línubilið. Jeanne Dielman lýsir lífi hús- freyju nokkurrar í Bruxelles í 3 daga, horfir á hana skræla kart- öflur, vaska upp, þjóna undir karlmönnum, gegna öllum venjulegum verkum húsmóður; allt í „raunverulegri" tímalengd og með þessum augum séð verða merkingarlaus verkin að merk- ingu heils verks. Innihaldið er ekki lengur upptalningin úr lífi konunnar, heldur upplifun. Þessi auðn og þetta tóm hvers- dagsleika þeirra sem heima sitja kemur til skila heildar- mynd úr lífi konu. Þessi verk eru upplifuð í þögn, eini textinn eru hrörleg sam- talsbrot milli mæðgina, þar sem móðirin hörfar stöðugt undan spurningum sonar síns, stendur dofin gagnvart matarinnkaupa- sífri nágrannakonu, leiðir við- skiptavini þegjandi til rekkju. Hún er múruð inni í þögn ein- angrunar, reyrð niður í fásinni hefðbundinna og taktfastra handverka, heft í málleysi hinna afskiptu. í Jeanne Dielman verður þögnin ekki bara þögn heldur hrópandi sem færir okkur heim allan sanninn um veru konunnar, í samleik sínum við mynd. Að heiman Stóriðjubákn kvikmyndanna með natúralisma og raunsæi að máttarstólpum hefur komið sér upp áhættulausu stöðnuðu kerfi myndar og máls, þar sem leitast er við að viðhalda skynsemis- hugmyndafræði hins vestræna heims. Því liggur það í augum uppi þegar farið er að velta fyrir sér kvikmyndamálinu til að koma áleiðis nýjum hugmynd- um, nýrri sýn, að önnur tengsl eru endurhugsuð milli myndar og tónbands. Þannig hafnar Chantal Ak- erman einnig öllum „eðlilegum" viðhorfum í þessu tilliti í mynd sinni News from Home (1976) sem hún myndar í New York og er sýn, angistarfull skynjun ungrar belgískrar konu (hennar sjálfrar) af borginni, þar sem myndavélinni er hjólað um Avenues og Streets, frá Man- hattan yfir í Harlem, sett niður á brautarpöllum, inn í subway- vögnum og látin ganga stöðugt, hvergi kvikar augað né hlífir nokkrum. Inn á þessa mynd les Chantal sjálf þindarlaust, áherslulausri, eintóna rödd bréf frá aldraðri móður sinni, öll bréfin eins, þar sem hún óttast um hagi dóttur sinnar í stór- borginni, kvartar yfir að heyra aldrei frá henni, sendir henni fáeina dollaraseðla fyrir frí- merkjum, segir fréttir af heilsu- fari ættingja, annríki föður og svo framvegis. I þessari mynd komumst við að því að bréf mæðra eru þau sömu hvort

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.