Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1985, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1985, Blaðsíða 7
Úr „Orðinu“, sem Dreyer byggði á leikriti Kaj Munk. Hér er sá sálsjúki Jóhannes, sem béit að bann ræri Kristur. vildi hann gera kvikmyndaupptökur on loc- ation (í sínu rétta náttúrulega umhverfi), 'en væri það ekki gerlegt, lagði hann afar mikið upp úr því að gera sviðsmynd, sem líkti eins nákvæmlega eftir fyrirmynd raunveruleikans og frekast var unnt. Að því er Dreyer varðaði, þýddu þessar ströngu gæðakröfur hans til sviðsmynd- anna, að hann varð sjálfur að sinna öllum einstökum smáatriðum sviðsmyndarinnar og fella þau saman í eðlilega heild. Þegar Carl Th. Dreyer hóf að gera kvikmyndir, var það viðtekin regla, að kvikmyndaleikstjórar pöntuðu bara sviðsmynd, og var þá til taks hópur fast- ráðinna handiðnaðarmanna, sem tók til óspilltra málanna við að framleiða þá sviðsmynd, sem óskað var eftir. Dreyer kaus hins vegar að annast smíði sinna sviðsmynda sjálfur og af stökustu um- hyggju valdi hann svo alla þá muni, sem áttu að vera til staðar í hverri sviðsmynd, allt frá viðeigandi húsgögnum, glugga- tjöldum, liti og svo framvegis. Tilgangur hans með þeirri nákvæmnisvinnu, sem hann lagði í þessa þætti, var að skapa um- Úr kvikmyndinni Gertrud. um við strendur Norðursjávar varð ég greinilega var við þann gífurlega áhuga, sem menn höfðu á þessari kvikmynd á hin- um ýmsu bændabýlum þarna á strand- lengjunni, sem einkennist af lágum, sendnum hæðum. Þetta fólk sýndi alveg einstakan fórnarvilja, sem meðal annars kom þannig í ljós við okkur, að við fengum leyfi til þess að fá hjá þeim húsgögn að láni við kvikmyndunina, og það voru hús- gögn, sem staðið höfðu á sínum stað í bóndabæjunum í búskapartið margra kyn- slóða. Og við fengum líka léðar myndir, sem eru svo einkennandi fyrir heimilin þar um slóðir. JEANNE d’ARC „La passion de Jeanne d’Arc“ frá árinu 1928 varð án nokkurs vafa sú kvikmynd, sem aflaði Carl Th. Dreyer hvað mestrar frægðar sem kvikmyndaleikstjóra. í þess- ari mynd vinnúr Dreyer markvisst að því að skapa kvikmyndinni nýtt tjáningar- form með því að beita nærmyndum á skipulegan hátt við að lýsa nánar þján- ingarsögu Jeanne d’Arc og varpa skýrara ljósi á þær manngerðir sem eiga veiga- mestan þátt í þeirri kvöl og niðurlægingu, sem hún má þola. Á heimssýningunni í Brussel árið 1958 var kvikmynd Dreyers ásamt m.a. „Gull- æðinu" eftir Charlie Chaplin, „Citizen Kane“ eftir Orson Welles og „Potemkin" eftir Eisenstein kjörin ein af tólf beztu kvikmyndum „allra tíma“. Kvikmyndunin á „Jeanne d’Arc" fór fram í Frakklandi á árunum 1926—1928 og var kostuð af La Société Générale de Films. í rauninni var ætlunin í fyrstu sú, að Carl Th. Dreyer skyldi leikstýra kvikmynd um Tosca, en Dreyer vildi sjálfur eindregið fá að kvikmynda eitthvað dramatískt, átakamikið efni og var ófús að nota þekkta óperu sem efnivið í kvikmynd sína. Hann valdi því söguna um ungu frönsku bónda- dótturina, sem frelsaði mikinn hluta Frakklands undan erlendu hernámi í Hundraðárastríðinu gegn Englendingum á 15. öld. Eins og alkunnugt er var Jeanne d’Arc að lokum tekin til fanga af Englend- ingum og brennd á báli sem galdranorn. Frásagnirnar um þennan dýrðling frönsku þjóðarinnar hefur orðið frönskum, jafnt sem erlendum, skáldum og rithöfundum efniviður í ótal mörg kvæði, skáldsögur og leikrit. Öll þau skáld, sem fjallað hafa um Jeanne d’Arc, hafa jafnan leitazt við að lýsa allri atburðarás helgisögunnar, en Dreyer kaus hins vegar að einskorða kvikmynd sína við yfirheyrslurnar yfir hinni ungu Jeanne d’Arc. Allur efnisþráð- Úr Degi reiðinnar, 1943. SVIÐSBÚNAÐUR OG Leikmunir Bæði í þessari fyrstu kvikmynd sinni svo og einnig í síðari myndum, sem hann gerði, leitaðist Carl Th. Dreyer mjög ákveðið við að einbeita sér að sviðsmynd- unum og reyndi allt hvað hann gat til þess að gera þær stöðugt fullkomnari. Viðhorf hans til sviðsmyndarinnar og leikmun- anna voru á þeim tímum alveg ný og fersk, ef miðað er við viðhorf annarra kvik- myndaleikstjóra til þessara þátta kvik- myndagerðar um sama leyti. Dreyer vildi ekki, að sviðsmyndir í kvikmyndum hans virkuðu sem sviðsmyndir. Helzt af öllu hverfi, sem bar svip af því fólki, sem bjó þar. Orðið Það má ef til vill líta svo á, að einföldun- in sé beinlínis eitt þýðingarmesta lykilorð- ið að því er varðar skilning á kvikmynda- list Dreyers. Hvernig þetta kemur fram í reynd, fá menn skilið, þegar Carl Th. Dreyer segir sjálfur frá kvikmyndum sinni á einstökum atriðum „Orðsins“, hinu fræga leikriti, sem Kaj Munk samdi skömmu fyrir dauða sinn. Þessi frásögn kemur fram í blaðaviðtali við hann frá árinu 1955. „Meðan ég dvaldist þarna úti í sveitun- ur kvikmyndarinnar er einskorðaður við atburðarásina á einum einasta sólarhring, það er að segja við síðasta daginn í lífi Jeanne d’Arc. Sem ósvikinn bakgrunn þessa áhrifa- mikla harmleiks vildi Dreyer ná fram and- rúmslofti hversdagslegs miðaldaumhverf- is. Eftir að hafa kynnt sér 500 ára gamlar franskar smámyndir af stakri gaumgæfni, hófst Carl Th. Dreyer handa við að láta reisa nákvæma eftirlíkingu af heilum smábæ frá miðöldum á stóru engi í Suð- ur-Frakklandi. Úr þessari ráðagerð Drey- ers varð svo afar viðamikil og dýr heildar- leikmynd, og vakti bæði kostnaðurinn og öll nostursemin i gerð miðaldabæjar Drey- ers mikinn úlfaþyt meðal kvikmyndagerð- armanna þeirra tíma. Það komu fram hvassyrtar, gagnrýnar spurningar um það, hvers vegna leikmyndirnar þyrftu að vera svo óskaplega nákvæmar í öllum smáatrið- um, úr því að Dreyer ætlaði sér ekki að beita fjarmyndun að neinu ráði við töku kvikmyndarinnar. Sjálfur var Dreyer sannfærður um að til þess að ná fram ósvikinni mynd af öllum blæbrigðum í svip leikaranna, þá yrðu leikmyndirnar að vera þannig gerðar, að hægt væri að búa í þeim. Þá fyrst áleit hann, að unnt væri að vinna að gerð kvikmyndarinnar á ósviknum heimildargrundvelli, sem svo aftur er for- senda raunverulegs listræns innblásturs í kvikmyndagerð. NÝR KVIKMYNDASTÍLL Dreyer hagaði töku kvikmyndarinnar á þann veg, aö andlit leikaranna töluðu sitt eigið mál, og með því að hagnýta til hins ýtrasta andstæðurnar milli hins skær- hvíta ljóss og dimmra skugga, tókst hon- um að skapa mjög áhrifamikinn myndstíl. í samvinnu við aðalkvikmyndatökumann- inn, Rudolf Maté, stefndi Dreyer að því að ná fram sérstakri myndgerð, þar sem áleitnar nærmyndir voru meginuppistað- an, en við töku nærmyndanna var kvik- myndavélinni oftast beint neðan frá og upp á við; sú aðferð gengur jafnan undir heitinu froskaperspektív. Veigamikið atriði við kvikmyndunina var í augum Dreyers svo sjálf staðsetning persónanna hverju sinni á myndfletinum með tilliti til þess, að ljá þeim tignarlegan blæ, sem að vísu getur á stundum allt að því minnt á myndastyttur. Um þá myndtækni, sem bætt var í „Jeanne d’Arc“ hefur Carl Th. Dreyer sjálfur látið svo ummælt: „Ég geri mér vel ljóst, að notkun nærmynda á þennan hátt var reyndar í algjörri andstöðu við þau fræðilegu undirstöðuatriði, sem í þá daga voru lögð til grundvallar raunverulegri og viðurkenndri kunnáttu í kvikmyndagerð. 1 mínum augum voru nærmyndirnar aftur á móti alveg óhjákvæmileg nauðsyn. Þau orðaskipti, sem fram fóru á milli Jeanne d’Arc og dómara hennar þykja að mörgu leyti einstæð í mannkynssögunni, og hefðu þau verið sýnd með fjarmyndun, þá myndi bæði sú göfuga afstaða, sem fram kemur í svörum Jeanne og svo aftur hinn lúalegi óþverraháttur, sem felst í ósk prestanna um að fá hana dregna á bálið hið fyrsta, algjörlega hafa misst marks og farið fyrir ofan garð og neðan hjá áhorfendum. Þar með hefði áhrifamáttur þessara atriða verið eyðilagður með öllu.“ Það er ekki einungis í kvikmyndinni „Jeanne d’Arc“, sem nærmyndir eru svo snar þáttur í frásagnarmáta kvikmyndar Dreyers. í myndinni „Blöð úr dagbók sat- ans“, (1921) er lokaatriðið, þar sem hin mikilhæfa danska leikkona Clara Pont- oppidan leikur konu á dánarbeði, fest á filmuna með nærmyndun frá ýmsum hlið- um og sjónarhornum. Sama er að segja um dauðaatriði það, sem leikið er af danska leikaranum Benjamin Christensen í kvik- myndinni „Mikaél“ eftir Dreyer. 1 mynd- inni „Vampyr“ er meginstefið rækilega undirstrikað með nærmyndaatriðum, þar sem Léone (leikin af Sibylle Schmitz) ligg- ur dösuð í rúminu eftir að kvenvampírinn hefur ráðizt á hana. Hinn Innri Heimur Til Frásagnar Carl Th. Dreyer lagði í kvikmyndagerð sinni mikla áherslu á beitingu nærmynd- unar. Hann áleit það vera beztu aðferð kvikmyndamiðilsins til þess að fá skyggnzt inn í hinn innri heim mannsins og geta lýst þeim innri veruleika, sem með manninum býr. Það var einmitt þetta, sem var alla tíð æðsta ósk Dreyers í kvik- myndalist hans. Á efri árum hélt hann því ótrautt fram, að hinn listræni kvikmynda- gerðarmaður megnaði að renna styrkari stoðum undir hina andlegu geymd veru- leikans með því að sveigja myndfrásögn- ina á braut út frá veruleikanum og um- breyta honum þannig. Eða svo komizt sé ofurlítið öðru vísi að orði: Æðsta takmark raunverulegrar kvikmyndalistar er að leiöa okkur á vit hins innra en ekki hins ytra. Það skiptir höfuðmáli, að leikstjór- anum takist að beina athygli áhorfend- anna að hans eigin listrænu og sálrænu upplifun og veiti þeim hlutdeild í henni. Heimildir: Carl Th. Dreyer „Fire film: Jeanne d’Arc, Wampyr, Vredensdag, Ordet“, Gyldendal, Knbenhavn 1964. Carl Th. Dreyer: „Om film“, Gyldendals nye bnger, Knbenhavn 1964. Ebbe Neergaards bog om Dreyer, Dansk vid- enskap forlag, Kebenhavn 1963. Michael Dal er kennari við Háskóla íslands. i LESBOK MORGUNBLAÐSINS 26 JANÚAR 1986 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.