Lesbók Morgunblaðsins - 14.02.1987, Blaðsíða 9
Valtýr Pétursson: A svörtum grunni, 1951. Eign listamannsins.
1951 að fram kemur að hluta til fullkom-
lega geómetrískt málverk. Ljóst er að
viðmiðunin var orðin önnur. Ustamenn á
borð við Valtý Pétursson (1919) og Þorvald
Skúlason (1906—1984) höfðu dvalist í París
í lok 5. áratugarins og orðið vitni að fram-
rás geómetríska abstraktmálverksins. A 6.
áratugnum'var geómetrían sannleikurinn í
íslenskri myndlist. Er það með ólíkindum
hluti abstraktmálaranna farinn að linast í
sinni afdráttarlausu afstöðu til geómetrí-
unnar og lagði sig fram við að mýkja eða
jafnvel leysa upp hina ströngu myndbygg-
ingu og afgerandi litafleti. Nína Tryggva-
dóttir (1913—1968), Hörður Ágústsson
(1922), Kristján Davíðsson (1917) og Eirík-
ur Smith (1925) voru meðal þeirra sem
komu fram með nýjan kost í óhlutlægri
Eiríkur Smith: Hrím í borg, 1965. Eign listamannsins.
Jóhannes Jóhannesson: Landnám, 1978-79. Listasafn íslands.
KarlKvaran: Fljótt, Ftfótt...,1981. Listasafn Háskóla íslands.
Kristinn Guðbrandur Harðarson: Málverk, 1981. Eign listamannsins.
hversu margir íslenskir myndlistarmenn til-
einkuðu sér þessa myndgerð og er ekki
fjarri lagi að tala um sefjun! Allan 6. áratug-
inn glímdu íslenskir abstraktmálarar við
harðlínumyndbyggingar, þar sem formum
var ýmist stillt upp á flötinn eða þau látin
skarast inn í rýmið. Voru myndrænar lausn-
ir listamanna á þessum tíma oft keimlíkar
og nátengdar lausnum kollega þeirra er birt-
ust í erlendum listtímaritum. Menn unnu
þröngt og stóðu þétt saman í reykvísku
listalífi.
Þegar leið að lokum 6. áratugarins var
myndgerð sem nefndur hefur verið ljóðræn
abstraktion. Upp úr 1960 voru því, iíkt og
erlendis, komnar fram tvær greinar óhlut-
lægrar myndlistar. Önnur byggði á grund-
vallarreglun geómetríunnar en hin lagði
áherslu á sjálfsprottna tjáningu. Lástamenn
tóku til við að vinna úr þeim efnivið og
þeirri reynslu sem þeir höfðu öðlast. List-
sköpun var orðin eintal listamannsins sem
hafði yfír að ráða öllu því hráefni sem til
þurfti til að láta sköpunarverkið ganga. Með
nokkurri einföldun getum við sagt að þessi
skipting hafí haldist allt fram á daginn í
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 14. FEBRÚAR 1987 8