Lesbók Morgunblaðsins - 14.02.1987, Qupperneq 12
B
AI.DRIKSBII.AR
1987
Audi markaði upphaf aldrifssamkeppni bílaframleiðenda með Quattro-stefnunni.
Aðrir framleiðendur hafa meira eða minna neyðst til þess að fyigja henni eftir. Japan-
skir framleiðendur hafa hins vegar hingað til stuðst að mestu leyti við einfaldari
útfærslu aldrifsbúnaðar, framdrif með tengjanlegu afturdrifi. Þessi ódýrari útfærsla al-
drifsins hefur stuðlað að miklum vinsældum japanskra bíla af þessu tagi.
Hlutfall aldrifinna bíia á markaðnum er þó ennþá almennt mjög iítið í Evrópulöndum
en þó eru þeir víðast hvar orðnir algengari en hinir eiginlegu jeppar, sem mörkuðu
upphafið að vinsældum aldrifsins. Jón Baidur Þorbjömsson þýddi.
Alfa Romeo
Ríkisrekna fyrirtækið Alfa Romeo í
Mflanó, sem hefur átt við allmikil innan-
mein að stríða að undanfömu, vonaðist
til þess að aldrifsmarkaðurinn yrði sér
eins og öðrum bflaframleiðendum til
uppdráttar. Sú hefur þó ekki orðið raun-
in, a.m.k. ekki hvað evrópska markaðinn
varðar, því Alfa 33 skutbfllinn með tengj-
anlegu afturdrifí selst sáralítið. Vart er
þar um að kenna ytra útliti því Sergio
Pininfarina er skrifaður fyrir útlits-
hönnuninni. Hann hefur einnig séð um
útfærslu drifrásarinnar. 1,5 lítra boxer-
mótorinn afkastar 90 hestöflum.
Audí
Quattro var fyrsti sídrifni sportbíllinn
með aldrifí og markaði upphafíð að vel-
gengni aldrifsbíla, kannski ekki síst
vegna fjölda rallsigra. En því er ekki að
leyna að nokkuð er farið að slá í útlit
þessarar köntuðu coupé-útgáfu.
200 Turiw Quaííro
Eins og Audi 100 er toppmódel 200-
línunnar einnig fáanlegt með sídrifnu
aldrifi. Aksturseiginleikar bflsins eru
góðir og hámarkshraðinn er 235 km/
klst. Qjafn gangur 5 strokka, 182
hestafla túrbínuvélarinnar við háan
snúning og hlutfallslega mikil bensín-
eyðsla eru helstu ókostir þessarar gerðar
af Audi.
Meðal hinna beztu meðal aldrifsfólks-
bfla má telja nýju útgáfuna af þessum
sídrifna Audi 80 Quattro. Hún býður upp
á mikið innamými, mikil þægindi, góða
aksturseiginleika og möguleika á mörg-
um stærðum mótora. En veikleikar eru
einnig fyrir hendi, s.s. lítið pláss fyrir
farangur í skotti, neyðar-varahjól að-
eins, og hátt verð miðað við framdrifna
bflinn.
BMW
Bflaframleiðendumir í Munchen komu
mátulega með nýtt sídrifíð aldrifsmódel
á markað fyrir snjóþungan veturinn
85/86. Þessi útgáfa er búin misjafnri
deilingu snúningsvægis mótors á fram-
og afturás og er fáanleg bæði tveggja
og fjögurra dyra.
Chevrolet
Samhliða íturvaxinni útgáfu „garnla"
Blazersins framleiðir General Motors nú
einnig S-gerðina sem er Blazer í veru-
lega smækkaðri mynd. Hún er með V6
mótor, tengjanlegu framdrifi og er
ríkmannlega búin aukahlutum. Helstu
kostir eru þokkalegir aksturseiginleikar
og ýmis önnur þægindi. Ókostur er hins
vegar mikil bensíneyðsla.
Daihatsu
Villikötturinn er nokkuð stór og rúm-
góður af bfl að vera frá þessum japanska
bílaframleiðanda sem annars hefur ein-
beitt sér að smíði smábíla. Hann fæst
sem styttri og lengri gerð og með tveim-
ur útfærslum af húsi. Einnig er Daihatsu
Wildcat fáanlegur með þremur mismun-
andi gerðum véla, tveggja lítra bensín-
vélar og tveimur gerðum díselvéla.
Fiat
4x4 Pandan er einn ódýrasti aldrifs-
bfllinn á markaðnum. Drifbúnaðurinn
kemur frá austurrísku Steyr-Daimler-
Puch-verksmiðjunum en aflið úr nýja 44
hestafla „Fire“ mótomum frá Fiat.
Ford
Sierra XR 4X4
í samanburði við eldri XR 4i gerðina,
sem aðeins var með venjulegu aftur-
drifí, er nýi XR 4x4 bíllinn skref aftur
á við. Erfiðara er orðið að eiga við hann,
hann eyðir meira og aksturseiginleikar
hafa versnað. Því er ekki að undra þótt
mjög lítið hafi farið fyrir vinsældum
þessara bfla.
.—.-...-.—
Toppmódelið frá Ford er búið sídrifnu
aldrifí í líkingu við Sierra-bflinn. Snún-
ingsvægi vélarinnar deilist einnig hér í
hlutföllunum 34% á ffamás og 66% á
afturás. Aksturseiginleikamir eru þó
ekki sérlega sannfærandi þar sem nokk-
urs óstöðugleika gætir við beygjur og
hemlun í hraðakstri. 2,8 1 V6 vélin er
ekki heldur lengur alveg í takt við
tímann.
Þessi aldrifni skutbfll í Ghia-útfærslu
ætti að falla í kramið hjá þeim Ford-
aðdáendum sem gefnir eru fyrir lúxus.
Allir bflamir hafa 2,8 lítra V6 vélina,
en hún er reyndar nokkuð komin til ára
sinna. Kostir 4x4 Tumier em gott rými
í hvívetna og ríkulegur búnaður.
Honda
Civk Shuttle 4WD
Þessi skut-límúsína með tengjanlegu
afturdrifí er traustur bíll til daglegs
brúks og nýtist einnig vel í snjóþungum
fjallahéruðum. Honda hefur þegar séð
fyrir rökréttu framhaldi á þessari smíði,
aldrifínni skutlu með sídrifí sem kom á
markað síðasta haust.
1^11711
•JLÍj MM Æj JJp-
ora, einum bensin og tveimur dísel, allir
með 2,2 lítra slagrými. Einnig er um að
ræða mismunandi útfærslur af húsi.
Sá sem leysir hinn sígilda Jeep CJ af
heitir Wrangler. Þótt ekki leyni sér, að
búið er að tileinka honum borgaralegra
útlit og aksturseiginleika, og jafnvel
ákveðin þægindi í akstri, heldur hinn
eini sanni jeppi enn uppi merkinu sem
einn duglegasti torfæmbíllinn.
Rúmgóður bíll og vel búinn aukahlut-
um, með tengjanlegu framdrifi. Bíllinn
er fáanlegur með þremur gerðum mót-
12